Réttur - 01.08.1931, Blaðsíða 4
116
HVAÐ VERÐUR UM TEKJURNAR [Rjettur
sleppa því að vekja athygli þína á því, að þar er um
mikið fé að ræða.
Örlítill hluti framleiðslu þinnar fer beint úr vasa
þínum til opinberra þarfa: í fasteignaskatt af kotinu,
sem þú erjar og kofaræflunum, sem þú hýrist í, ef til
vill einhvern örlítinn tekjuskatt og útsvar til hrepps-
félagsins. Við skulum gera ráð fyrir þessum upphæð-
um fremur lágum og þær eru því lægri, því fátækari,
sem þú ert, því minni tekjur sem þú hefir og því fleiri
ómögum, sem þú átt fyrir að sjá. En rétt er þó fyrir
þig að skrifa þessa upphæð niður, því að svo mikil
auðæfi veitstu að til eru í landinu, að allt mælir á móti
því, að verið sé að heimta fé til opinberra þarfa af
þeim mönnum, sem ekki geta aflað sér nauðþurfta með
öðru en því að hækka skuld sína, að minsta kosti þau
árin, sem eitthvað ber út af. Auk þess greiðir þú gjald
til prests og kirkju. Það er kr. 2.75 fyrir hvern þann
fjölskyldumann þinn, sem kominn er yfir 16 ára aldur.
Eigir þú fyrir að sjá foreldrum þínum eða tengdafor-
eldrum eða hvorutveggja og þegar eldstu börnin þín
fara að komast yfir fermingaraldurinn, þá fer skattur
þessi að verða all-tilfinnanlegur. Og ef gera mætti ráð
fyrir því, að þér fyndist þú eiga lítið til prests þíns
og prestastéttarinnar í heild að sækja, þá finst mér
sjálfsagt að þú skrifir þessa upphæð á lista þann, sem
ég vona að þú gerir nú yfir það, hve miklu þjóðfélagið
og auðvaldið í skjóli þess, rænir þig af arði þínum.
í öðru lagi skaltu athuga, hve mikið þú greiðir í vexti
af skuldum þínum í bönkum, við verslanir eða hjá ein-
stökum mönnum. Þar færðu upphæð, sem verður því
hærri, sem hagur þinn er erfiðari. Þar er um upphæð
að ræða, sem fer beint í vasa þeirra, sem mestar hafa
gnægðirnar. Hún rennur til manna, sem í gegnum fyr-
irtæki sín hafa dregið í vasa sinn arð af vinnu annara
manna, eða þá afkomenda þeirra. Láttu það ekki
blekkja þig, þótt nábúi þinn segi þér, að auðsöfnun