Réttur - 01.08.1931, Blaðsíða 2
Í14 HVAÐ VERÐUR UM TEKJURNAR [Rjettur
tíma til að lesa, það sem þú gætir náð í á annan hátt,
— þótt þú sjáir ekki nein ráð til að styrkja fróðleiks-
fús og listelsk börn þín til skólanáms, — þótt þú getir
ekki látið konu þinni í té hin allra nauðsynlegustu inn-
anhússþægindi. — Eg dæmi þig ekki hart, þótt þannig
sé komið nægjusemi þinni. Eg get vel skilið, hvernig
þrotlaust strit árum saman hefir getað sljófgað til-
finningu þína í'yrir því, hvers krefjast ber til handa
svo fullkominni veru, sem maðurinn er, eða hver
ábyrgð hvílir á þér gagnvart þeim þrám og hæfileik-
um, sem bærast í brjósti barna þinna, og sem þau eiga
lífshamingju sína undir, hvort fá að þroskast og njóta
sín. — En svo miklu vil ég mega vonast eftir, að þú
hafir orðið fyrir »spillingu« nýja tímans, að þú skiljir,
að þú og ástvinir þínir myndu geta notið lífsins í rík-
ara mæli, ef þú ættir þess einhvern kost að fá meiri
ávöxt af striti þínu, og með því gæti líf ykkar verið
bæði fullkomnara og sæluríkara.
En þótt nægjusemi sé. orðin svo hreinræktuð í blóði
þínu, að þú sjáir enga ástæðu til að ergja þig yfir því,
þótt þú getir ekki veitt þér og þínum neitt annað en
það, sem nauðsynlegt er til viðhalds lífi og limum, þá
gæti hugsast, að þolinmæði þín þryti, þegar þú sæir,
að nú er ekki lengur um það að ræða, að þú fáir nauð-
synlegustu kröfur þínar uppfyltar, heldur safnar
skuldum, þrátt fyrir ýtrasta sparnað og hvíldarlaust
starf beggja ykkar hjóna. Þegar svo er komið, þá ferðu
ef til vill að sjá ástæðu til að athuga, hvernig á því
stendur, að ykkur er ekki einu sinni veittur réttur til
brýnustu nauðþurfta og hvað muni verða um það, sem
búið ykkar gefur af sér. Það vildi ég mega athuga með
þér ofurlitla stund.
I.
Þar sem mikil vinna og litlar tekjur fara saman,
geta tvær ástæður legið til grundvallar. önnur er sú,