Réttur - 01.08.1931, Blaðsíða 10
122 HVAÐ VERÐUR UM TEKJURNAR [Rjettur
sviptir þig atvinnuskilyrðunum og hendir þér út á
kaldan klakann.
III.
Vinur minn! Barátta þín hefir verið erfið og horf-
urnar eru svartar. Ég vonast til að hafa með orðum
mínum getað gert þér það ljóst, að fátækt þín stafar
fyrst og fremst af því, að þér er ekki leyft að njóta
þeirra auðæfa, sem þú framleiðir úr skauti jarðarinn-
ar í sveita þíns andlitis. Ef til vill vilt þú gera ein-
hverjar athugasemdir við þetta álit mitt, en það þykir
mér þó heldur ólíklegt, því að svo augljóst mál virðist
mér þetta vera. En mikil ánægja væri mér það, ef þú
vildir stinga niður penna og skrifa mér athugasemdir
þínar, ásamt fyrirspurnum um ýms atriði þessu við-
víkjandi, svo sem hvernig helst bæri að reyna að ráða
bót á þessu ástandi. Ef ég verð ekki því meiri önnum
kafinn, þá myndi ég hafa mikla ánægju af því að
standa í bréfaviðskiptum við þig um þessi' mikilvægu
og alvarlegu mál. Ég hefi nokkra reynslu í þessum efn-
um, eins og þú, en aðstæður mínar hafa verið það
betri, að ég hefi getað veitt mér meiri tíma til að hugsa
róttækt um þessi mál, og kynna mér kenningar og
reynslu um nýja skipulagsháttu á þessu sviði.
Kreppan harðnar með ári hverju, og þú horfir fram
á æ ægilegra ástand. Þú veitst líka, að þú ert ekki neitt
einstakur á þessu sviði, heldur hafa þúsundir stéttar-
bræðra þinna sömu sögu að segja, sömu baráttu að
baki og sömu ógnir fram á að horfa. — Réttmætar
kröfur um að þú fáir að njóta ávaxtanna af erfiði
þínu, sérðu að muni vera tilgangslítið fyrir þig einan
að bera fram, en öðru máli gegnir, ef allar þær þúsund-
ir, sem hafa af sömu reynslunni og þú að segja, stæðu
á bak við þær kröfur. Það er erfitt fyrir ykkur, sem
búið dreifðir og einangraðir út um bygðir landsins, að
styrkja svo samtök ykkar, að sjáanlegt sé að veruleg-