Réttur - 01.08.1931, Blaðsíða 58
170 STEFNA KOMMÚNISTAFLOKKS ÍSLANDS [Rjettur
andi auðlegð hinna fáu þýðir aukin fátækt og basl
hinna mörgu. Þessvegna lýgur hver sá flokkur, sem
þykist berjast fyrir hagsmunum allra bænda, undan-
tekningarlaust. Einmitt vegna þess að Kommúnista-
flokkurinn berst fyrir hagsmunum alls þorra bænda,
allra þeirra, sem skapa auðlegð og verðmæti sveitanna
með vinnu sinni, er hann á öndverðum meið við stór-
bændurna og auðvaldshákarla sveitanna. Og einmitt
vegna þess að Framsóknarflokkurinn gætir hagsmuna
stórbændanna og stórjarðeigenda, mun allur þorri ís-
lenskra bænda snúa baki við honum fyr eða síðar. Það
er allmikil nauðsyn að það verði sem fyrst. Og þjóð-
fjelagsleg nauðsyn verður jafnan að þjóðfjelagslegri
staðreynd.
Hver verða ráð íslenskra bænda til að öðlast vel-
megun?
Til eru tvær leiðir: leið auðvaldsins og leið kommún-
ismans. Hvortveggja hefir verið reynd. Og reynslan
verður að skera úr um það hvor er heppilegri.
Leið auðvaldsins hafa amerískir bændur farið. Og
hver er reynsla þeirra?
Ekki hefði ameríska auðvaldinu orðið skotaskuld úr
því að gefa út bók í líkingu við »Verkin tala«. Vjela-
notkunin hefir rutt sjej- óðfluga til rúms. Á síðustu 10
árum bætti landbúnaðurinn við sig tæpri miljón hekt-
ara. Það myndi hafa orðið meir en nóg til að tvöfalda
ræktaða landið. En hvað skeði? Sáðlandið hefir alls
ekki stækkað. Og efnahagur bænda hefir versnað svo
gífurlega, að miljónir bænda hafa flúið til bæjanna
og orðið þar atvinnuleysinu að bráð. (í Bandaríkjun-
um eru nú um 10 miljónir sveltandi atvinnuleysingja).
Og nú er ástandið þannig, að í ráði er að eyðileggja
þriðjung bómullarframleiðslunnar, hveitinu er brent í
stað kola, kaffinu hent í sjóinn, akurlöndunum breytt
í skóglendi að ráði auðvalds-»sjerfræðinganna«. Og
bændurnir, sem framleiða alla þessa gnægð lífsnauð-