Réttur - 01.08.1931, Blaðsíða 1
Hvað verður um tekjurnar
af búi þínu, bóndi?
Bóndi sæll!
Þú þykist lifa við sult og seyru. Þú hefir unnið eins
og kraftar þínir hafa leyft, og þú hefir neitað þér um
alt annað en það, sem þú hefir nauðsynlega þurft til
að halda við óskertum líkamskröftum þínum og þinna,
og sennilega einnig um eitthvað þeirra hluta, sem verða
að teljast nauðsynlegir. Sennilega fullnægir fæði þitt
og þinna því sem nauðsynlegt er. Við skulum einnig
gera ráð fyrir því, að föt þín, konu þinnar og barna
séu svo rífleg, að engu ykkar geti stafað heilsutjón af
klæðleysi, en líklega fullnægja húsakynni þín ekki
þeim skilyrðum, sem heilbrigðisfræðin telur nauðsyn
að gera kröfu til.
En þú ert nægjusamur. Nægjusemin er »dygð«, sem
ræktuð hefir verið í blóði þínu gegnum tugi kynslóða.
Á meðan þú hefir nokkurnveginn húsaskjól, föt að
klæðast og mat að borða, þá finnur þú ef til vill ekki
til annars en að þú fáir viðunanlegan ávöxt af þrot-
lausri vinnu þinni frá morgni til kvölds, meira muni
þér ekki bera og það muni aðeins spiltum hugsunar-
hætti nútímans um að kenna, ef elcki er hægt með þess-
um kjörum að njóta lífsins og eiga glaða daga. Þú
gerir þér ef til vill engar rellur út af því, þótt þú hafir
engin ráð á því að kaupa bækur og tímarit og engan
8