Réttur - 01.08.1931, Blaðsíða 77
Rjettur] BARÁTTA BÆNRA ERLENDIS 189
ar bændahreyfingar eru: »Jörðina til bændanna, verk-
smiðjurnar til verkamannanna! Bændur og verkamenn
í veröldinni, sameinistk
Sífelt vex andstaða bænda gegn auðvaldsskipulag-
inu, en sökum þess að of langt mál er að skýra hjer
frá bændahreyfingunni í hverju landi, skulu hjer að-
eins sögð nokkur dæmi og frásagnir um rót það, sem
nú er komið á fátæka bændur víðast hvar í Evrópu.
N(mðungariippboðin i Finnlandi.
í júnímánuði átti eftir kröfu finska ríkisbankans að
selja á nauðungaruppboði 2000 stórskuldugar og veð-
settar bændajarðir. Á næstu dögum áttu 1000 að bæt-
ast við. En á síðasta ári (1930) höfðu alls yfir 5000
bændabýli verið seld á nauðungaruppboði.
Bændurnir hjeldu fjölda funda til að mótmæla þessu
og ljetu ekki sitja við orðin tóm. Þegar bjóða átti upp
jarðir í Pikis við Abo, hindruðu bændurnir nauðung-
aruppboðið með valdi, ráku embættismennina burtu og
ákváðu á fundi að hindra framvegis sjerhvert nauð-
ungaruppboð og hætta að greiða vexti þá, sem fallnir
voru í gjalddaga.
Borgara- og kratablöðin eru hrædd við þetta og
segja að þessi hreyfing sje að breiðast út um alt
landið.
Bændaneyð i Danmörku.
Um miðjan júní fjell verðið á aðalvöru dönsku
bændanna, fleski, um 12 aura, niður í 70 aura, en var
144 aura í sömu mund 1930. Smjörið, önnur aðalfram-
leiðsluvara þeirra, fjell úr 283 aurum (1929) niður í
194 aura nú. Hrun vofir yfir danska landbúnaðinum.
Tala nauðungaruppboða á bændabýlum hefur fimm-
faldast. Aðeins í Norður-Sljesvík voru 300 jarðir seld-
ar á nauðungaruppboði í vor og fólksfjölgun rýrnar
geysilega.