Réttur - 01.08.1931, Blaðsíða 78
100 RARÁTTA RÆNDA ERLENDIS [Rjettur
Og þetta er talinn mesti fyrirmyndar landbúnaður
Evrópu.
óánægja meðal bænda vex geysilega. »Bændanefnd-
in« hefur þar málgagn, er »Plovfuren« heitir.
Bændauppþot í ítalíu.
Skattar ríkisins eru ítölskum bændum þungbærir.
Sumstaðar hafa þeir með valdi risið upp gegn skatt-
krefjendunum, svo fasistarnir hafa orðið að beita her-
liði gegn þeim og kasta þeim í fangelsi. Annarsstaðar
hafa þeir svarað loforðasvikum stjórnarinnar með því
að ráðast undir rauðum fánum á hjeraðsstjórnarbygg-
inguna og mölbrjóta þar alt, til að minna á sig.
ítölsku stórjarðeigendurnir óttast mjög bændahreyf-
inguna. Haft er eftir einum þeirra, er hann var spurð-
ur um álit hans á ítölskum bændum: »ítalski bóndinn
er sá byltingarsinnaðasti bóndi, sem til er«. Og úr
augum hans skein hatur og ótti.
Sjálfshjálp fátælcra bænda í Austurríld.
Neyðin í Austurríki er ógurleg.
16. júní átti að selja á nauðungaruppboði jörð bónda
eins í Lanyvrechtsberg, en þegar uppboðshaldari kem-
ur voru þar fyrir á jörðinni fjöldi bænda og atvinnu-
lausra verkamanna og var hópurinn ekki árennilegur.
Hurfu embættismennirnir frá, og bóndanum var greitt
það lán út á jörðina, sem hann hafði átt að fá og yfir-
völdin gáfust upp við nauðungarsöluna.
Þýskir verkamenn og bændur talca höndum saman
gegn auðvaldinu.
Sífelt vex gagnkvæmur skilningur fátækra bænda
og verkamanna í Þýskalandi á að þeir geti aðeins sigr-
ast á auðvaldinu og örbirgðinni með því að standa
sameinaðir.