Réttur - 01.08.1931, Síða 7
Rjettur] HVAÐ VERÐUR UM TEKJURNAR
119
af sykri 1 krónu og 50 aura. Ef gera mætti ráð fyrir
að þú eyddir á ári hverju 50 pundum af kaffi, 20
pundum af exporti og 100 pundum af sykri, þá er toll-
urinn af kaffinu 15 krónur, exportinu 7,50 og sykrin-
urn 7,50, — alls 30 krónur. 25% af þeirri upphæð er
7,50, svo að alls er sá skattur, sem tollur af kaffi, sykri
og exporti leggur á þig með þeirri neytslu, sem hér er
gert ráð fyrir, 37 krónur og 50 aurar. Þeir eru ekki
svo lélegir dilkarnir þínir, ef þú þarft ekki fulla tvo til
greiðslu þessarar upphæðar, og ef áframhald verður á
verðfallinu, þá verða þeir þrír innan lítils tíma. En
leiðréttu nú þennan reikning út frá neytslu þinni og
bættu svo við tolli af öllum öðrum vörum þínum: tó-
baki, matvöru, klæðnaði o. s. frv. og sjáðu til, hvort
upphæðin verður ekki nokkuð ægilega há. Og mundu
það, að um leið og þetta er nauðsynlegt fyrir sjálfan
þig að gera þér þessa grein, þá mun það einnig vera
mjög heilsusamlegt fyrir þann valdsmann sveitar
þinnar, sem þú leitar aðstoðar hjá, að setja sig ofur-
lítið inn í þessi efni. Og umfram alt máttu ekki gleyma
því, að því stærri fjölskyldu, sem þú hefir fram að
færa, því fleiri börn, sem þú elur upp til að taka við
starfinu meðal næstu kynslóðarinnar, því fleiri far-
lama gamalmenni, sem eru á vegi þínum, því dýpra
seilist þjóðfélagið niður í vasa þinn á þessu sviði.
II.
í línum þessum, sem á undan eru gengnar, hefi' ég
gert ráð fyrir því, að þú búir á óræktarkoti. Nú hefi
ég sennilega móðgað þig stórkostlega, því að auðvitað
ert þú svo mikill nýrri tímans maður, að þú hefir gert
mikilvægar umbætur á litlu jörðinni þinni. Það gefur
svo sem að skilja, að ungur bóndi, sem fylgist svo vel
með að hann les »Rétt« í matmálstímanum sínum og
sofnar út frá honum á kvöldin,. hann gerir sig ekki