Réttur - 01.08.1931, Blaðsíða 34
146
STJETTABARÁTTAN í SVEITUM [RjetW
Frá Reykjavíkur höllum hám
heildsalar h'ta augum smám
embættismenn sem annað hjóm,
er þeir brátt festi Mammons klóm;
landssjóður væitir launin rýr
leppur heildsalans gulli spýr.
Góðir hálsar, nú gætum vor,
göngum þar til hin rjettu spor,
að ekki kaupi þeir alt í hring
af oss lög, rjett og sannfæring,
og á því svo græði eins og fisk
eða krami við búðardisk.
Brátt leiðir Mammon lög og rjett,
læsir nöglum í hverja stjett,
Alþingi verður alt hans þý,
ef ekki er hafin sókn á ný
og fjanda þeim með fals og glys
fleygt í skyndi til Helvítis.
Þingeyskur bóndi.
Stéttabaráttan í sveitum
og verkalýður kaupstaðanna.
Af hálfu auðvaldsins og þeirra stjórnmálaflokka,
sem leynt eða ljóst fylgja því að málum, er sífelt unn-
ið að því að rægja saman bændur og verkamenn,
sveitabúa og kaupstaðalýð, til þess á þann hátt að
»deila og drotna«. Án klofningar vinnandi lýðsins til
sjávar og sveita, sem er 85% af þjóðinni, gæti auð-