Réttur - 01.08.1931, Blaðsíða 62
174 STEFNA KOMMÚNISTAFLOKKS ÍSLANDS [Rjettuv
Að skuldir þær, sem hvíla svo þungt á fátækum
bændum, að þær gera þeim ókleift að búa á jörðun-
um, verði gefnar upp.
Að fátækum bændum verði veittur óendurkræfur
styrkur og lán með afarvægum kjörum, og fátækustu
bændunum rentulaus rekstrarlán, til ræktunar, vjela-
kaupa og bygginga yfir menn og skepnur. Að slík lán
sjeu aðeins veitt fátækum vinnandi bændum, og að
engra slíkra trygginga sje krafist, sem gera lánsheim-
ildina að dauðum bókstaf fyrir þá bændur, sem helst
þurfa slíkrar hjálpar við.
Að leiga á jörðum fátækra leiguliða sje takmörkuð
með lögum og fátækir bændur, sem búa á ríkisjörðum
þurfi enga leigu að borga.
Að komið sje upp tilrauna- og kynbótastofnunum til
að útvega bændum betri bústofn, betri tegundir af
nytjajurtum, betri tegundir áburðar, og betri aðferðir
heynýtingar. Að kensla og uppihald á landbúnaðar-
skólum sje ókeypis.
Að samgöngutækin milli sjávar og sveita sjeu bætt
stórkostlega, og að stórfeldar ráðstafanir verði gerð-
ar af ríkisins hálfu til að gera fátækum bændum kleift
að afla sjer rafmagns til heimilisþarfa.
Að allir tollar á nauðsynjavörum bænda verði af-
numdir, sömuleiðis alt útflutningsgjald á afurðum
þeirra.
Kommúnistar beita sjer fyrir samtökum meðal
bænda, gegn verslunar-auðmagninu og bankaauðmagn-
inu. Þeir hvetja smábændur til að beita samtökum til
að hindra það að jarðir þeirra sjeu seldar á nauðung-
aruppboðum.
Innan samvinnufjelaganna berjast kommúnistar
gegn yfirráðum stórbændanna, fyrir hagsmunum smá-
bændanna.
Þessi barátta getur því aðeins orðið sigurvænleg, ef
verkamenn og vinnandi bændur berjast sameiginlega.