Réttur - 01.02.1937, Qupperneq 57
Spánn.
í meira en hálft ár hefir borgarastyrjöldin geis-
að á Spáni. Marokkanskar leigusveitir, þýzkar og
ítalskar ríkishersveitir halda uppi raunverulegu
landvinningastríði gegn hinni spánsku þjóð. Alls-
herjarsamsæri er hafið gegn lýðræðinu í heiminum,
en lýðræðisríkin hafast ekki að. Stjórnarfáni Fran-
cos blaktir í Burgos eins og æpandi níðstöng öllu
réttlæti og alþjóðalögum.
— Nýjustu fregnir frá Spáni herma, að fasista-
. hernum hafi tekizt að vinna Malaga. Og nú æða
hinar erlendu fasistasveitir um götur borgarinnar,
brytjandi niður kai'la, konur og börn, eins og í
Bajadoz, Irun og San Sebastian í haust. Undan-
farna daga hafði reyndar ítalska herstjórnin sett á
land á Suður-Spáni 16 þúsund manna herlið, vopnað
fullkomnustu hernaðartækjum.
Á meðan þessu fer fram, er fasistaríkjunum látið
haldast uppi að tefja allar ákvarðanir um eftirlit
með ákvæðum hlutleysissamningsins og allar fram-
kvæmdir um hindrun á flutningi ,,sjálfboðaliða“ til
Spánar.
Eins og kunnugt er, sendi enska stjórnin 10. jan.
ríkjum þeim, sem sæti eiga í hlutleysisnefndinni,
fyrirspurn um það, hvort þau væru því samþykk, að
teknar væru upp ráðstafanir til eftirlits með því, að
sjálfboðaliðar færu ekki til Spánar. Jafnframt bann-
aði enska stjórnin (samkvæmt lögum frá 1870!)
öllum enskum ríkisborgurum þátttöku í Spánarstyrj-
♦ öldinni. (Auðvitað var bann, áður en svar og full
trygging hafði borizt frá fasistaríkjunum um það,
að þau myndu gera hið sama, einhliða stuðningur
við uppreisnarliðið og bein endurtekning á hinni ó-
heillavænlegu villu frönsku stjórnarinnar í ágúst í
sumar, er hún lögleiddi einhliða vopnasölubann til
Spánar).
Frakkland og Sovétríkin svöruðu fyrirspurn þess-
185