Morgunblaðið - 07.05.2006, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 17
FRÉTTIR
DAÐI Guðmundsson varði dokt-
orsritgerð sína á síðasta ári við iðn-
aðarverkfræði- og aðgerðarann-
sóknadeild Kaliforníuháskóla í
Berkeley. Rit-
gerðin nefnist
„Inspection and
Metrology Cap-
acity Allocation
in the Full Pro-
duction and
Ramp Phases of
Semiconductor
Manufacturing“.
Leiðbeinendur
voru J. George
Shanthikumar og Robert C.
Leachman, prófessorar við iðn-
aðarverkfræði- og aðgerðarann-
sóknadeild Kaliforníuháskóla í
Berkeley. Andmælendur voru Ken
Goldberg og David A. Hodges, pró-
fessorar við rafmagnsverk-
fræðideild sama skóla. Verkefnið
fjallar um hámörkun á framleiðni í
örgjörvaframleiðslu þar sem not-
aðar eru öflugar rafeindasmásjár til
að safna upplýsingum fyrir töl-
fræðilega gæðastjórnun.
Framleiðsla á örgjörvum er afar
flókin og hvikul. Framleiðsluferlið
tekur allajafna fjórar vikur og eru
um það bil 350 aðgerðir fram-
kvæmdar á hverjum örgjörva. Töl-
fræðileg gæðastjórnun er notuð til
að tryggja gæði framleiðslunnar.
Þar sem breidd leiðara í örgjörvum
er nú í kringum 100–300 nanómetr-
ar (mannshár er u.þ.b. 100.000
nanómetrar á breidd) þarf öflugar
rafeindasmásjár til að safna upplýs-
ingum fyrir gæðastjórnunarferlið.
Kostnaður við gæðastjórnunina er
því á hraðri uppleið. Doktorsverk-
efnið fjallar um reiknilíkön sem
gera örgjörvaframleiðendum kleift
að reikna út hagkvæmni fjárfest-
inga í rafeindasmásjám.
Fyrst var búið til stakrænt
hermilíkan af örgjörvaverksmiðju. Í
líkaninu var lögð áhersla á að líkja
eftir slembihegðun framleiðslufrá-
vika. Niðurstöður úr hermilíkaninu
voru notaðar til að þróa reiknilíkan
sem skilar álíka niðurstöðum en þó
mun hraðar. Hraðvirkni og lág
skekkjumörk reiknilíkansins gera
það kleift að framkvæma á 30 mín-
útum hámörkun sem hermilíkanið
þyrfti marga daga eða vikur til að
framkvæma. Til að gera þetta
mögulegt voru þróaðar nálganir
fyrir flókin líkindaföll með margar
breytistærðir og notast við sér-
sniðin biðraðafræðilíkön. Til að
besta hið ólínulega reiknilíkan var
notast við erfðafræðilegan algó-
rytma sem telst til „mjúkra“ reikni-
aðferða. Við útreikninga var notast
við gögn úr örgjörvaverksmiðjum
og sýndu þeir meðal annars ávöxt-
un fjárfestinga í rafeindasmásjám,
bestu tíðni á sýnatöku og áhrif
sýnatöku á ýmsar mælistærðir í
framleiðslunni. Seinni hluti verkefn-
isins er um svipaðar rannsóknir
fyrir byrjunarferli örgjörvafram-
leiðslu.
Daði Guðmundsson fæddist á Ak-
ureyri 19. desember 1970. For-
eldrar hans eru Guðmundur Hall-
grímsson lyfjafræðingur og Anna
Guðrún Hugadóttir námsráðgjafi.
Systkini Daða eru Vera líffræð-
ingur, Hugi tónskáld og Alma tón-
listarmaður. Daði Guðmundsson
lauk stúdentsprófi frá Fjölbrauta-
skólanum í Garðabæ 1991, BS-
gráðu í iðnaðarverkfræði frá
Arkansasháskóla í Fayetteville 1995
og MS-gráðu í iðnaðarverkfræði- og
aðgerðarannsóknum við Kaliforn-
íuháskóla í Berkeley 1997. Frá 1998
til 2000 og samhliða doktorsnáminu
frá 2000 til 2004 vann Daði hjá
KLA-Tencor í Silicon Valley sem
sérfræðingur í bestun framleiðni og
tölfræðilegrar gæðastjórnunar í ör-
gjörvaframleiðslu. Við þau störf og
í tengslum við doktorsnámið fékkst
hann við verkefni hjá helstu ör-
gjörvaframleiðendum í Ameríku og
Asíu. Daði rekur nú ráðgjafar- og
hugbúnaðarfyrirtækið Sensor
Analytics í San Francisco
(www.sensoranalytics.com).
Doktor í
verkfræði
Daði Guðmundsson
Grímsey | Slökkviliðið á Akureyri
hefur það sérverkefni á höndum
fyrir Flugmálastjórn að halda
námskeið fyrir flugvallarstarfs-
menn vítt og breitt um landið. Þeir
tóku starfsmenn Grímseyj-
arflugvallar á námskeið á dög-
unum.
Það eru þeir Jóhann Þór Jóns-
son og Þorlákur Helgason, slökkvi-
liðsmenn á Akureyri, sem fara á
milli allra flugvalla sem hafa reglu-
legt áætlunarflug, ekki þó Reykja-
víkurflugvallar og Keflavíkur-
flugvallar. Jóhann Þór og Þorlákur
eru með fræðslu um slökkvistarf
og slysavarnir. Þeir fara yfir allar
aðstæður á flugvöllum, eins og
vatn og tækjabúnað. Þeir heim-
sækja stærri flugvelli tvisvar sinn-
um á ári en þá minni einu sinni. Á
5–6 ára fresti undirbúa þeir ásamt
fleirum flugslysaæfingar.
Á myndinni eru Jóhann Þór og
Þorlákur ásamt starfsmönnum
Grímseyjarflugvallar, þeim Brynj-
ólfi Árnasyni Ragnhildi Hjaltadótt-
ur og Dónald Jóhannessyni.
Starfsmenn Grímseyjar-
flugvallar á námskeiði
Morgunblaðið/Helga Mattína