Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 28
28 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Samrunaferli Háskólans íReykjavík og Tæknihá-skólans er langt komið, aðsögn Guðfinnu Bjarnadótt-ur, rektors HR. Liður í því
er að gengið hefur verið frá leigu á
Morgunblaðshúsinu í Kringlunni 1,
sem er 4.700 fermetrar að stærð. Þar
verður hluti af starfsemi HR þar til
háskólinn flytur í nýtt húsnæði í
Vatnsmýrinni haustið 2009. Húsnæð-
ið verður afhent í júlí, þegar Morg-
unblaðið flytur ritstjórnarskrifstofur
sínar og starfsemi blaðsins að Há-
degismóum 2.
Samrunaferlið tvískipt
Fyrir tilstuðlan Þorgerðar Katrín-
ar Gunnarsdóttur menntamálaráð-
herra sameinaðist Háskólinn í
Reykjavík Tækniháskóla Íslands í
júlí 2005, en Þorgerður Katrín lagði
fram fyrstu tillögur þess efnis sum-
arið 2004. „Við tvískiptum samruna-
ferlinu,“ segir Guðfinna.
„Annars vegar gengum við hratt
og örugglega í að sameina kerfislega
og tæknilega verkferla. Hins vegar
vorum við meðvituð um að mannlegi
þátturinn þyrfti lengri tíma og á því
ríkir fullur skilningur. En það hefur
komið skemmtilega á óvart hversu
jákvæðir allir eru sem komið hafa að
samrunanferlinu, jafnt stúdenta-
félögin, kennarar, starfsmenn og þeir
sem leiða starfsemina. Enda ekki til-
gangur samrunans að fækka starfs-
mönnum heldur að virkja samtaka-
máttinn og búa til öflugri háskóla.
Við gerðum okkur raunhæfar vænt-
ingar um hvernig til myndi takast,
erum á áætlun og í raun framar
væntingum. Stúdentafélögin samein-
uðust til dæmis snemma í samruna-
ferlinu og stuðningur nemenda hefur
verið öflugur.“
Guðfinna segir að nú sé að tala um
einn háskóla, margfalt öflugri en
samanlögð starfsemi þeirra tveggja
háskóla sem fyrir voru. Mikilvægt
skref í þá átt hafi verið að bæta að-
stöðu nemenda í stækkandi háskóla
með nýju húsnæði. „Í byrjun hvers
árs hitti ég alla stúdentahópa og
grennslast fyrir um hvort nemendur
hlakki til að mæta í skólann og hvort
nokkuð sé því til fyrirstöðu að þeir
leggi sig fram. Í vetur var áberandi
að nemendum fannst aukin þrengsli.
Það voru því stúdentar sem höfðu
frumkvæði að því að við fórum að líta
í kringum okkur eftir húsnæði.“
Það varð úr að HR tók Morgun-
blaðshúsið á leigu. „Með því stækkar
húsnæðið úr 19 þúsund fermetrum í
22 þúsund fermetra. Við höfum leigt
gamla prentsmiðjuhús Morgunblaðs-
ins frá því í haust og þetta var því
eðlilegt skref, auk þess sem það er
með ólíkindum að skólinn skuli hafa
fengið húsnæði nánast við hliðina
ástarfsstöðinni í Ofanleiti.“
– Hvernig verður húsnæðið nýtt?
„Í prentsmiðjuhúsinu er aðallega
lestraraðstaða og hópvinnuherbergi
fyrir stúdenta, auk þess sem stúd-
entafélagið er þar með aðstöðu.
Verkfræðin mun flytja úr Húsi versl-
unarinnar í Morgunblaðshúsið og
sömuleiðis tölvunarfræðin, sem hef-
ur verið í Ofanleitinu. Á fyrstu hæð
verða skólastofur og aðstaða fyrir
nemendur þessara námsbrauta. Á
annarri hæð verður vinnuaðstaða
fyrir starfsmenn, nemendur og
meistaranema, auk rannsóknarstofn-
ana. Þær rannsóknarstofnanir sem
þar verða eru gervigreindarsetur í
tölvunarfræði, gagnasetur, netsetur,
fræðilegt tölvunarfræðisetur, tungu-
tæknisetur og orkurannsóknarsetur.
Ég tek fram að allt húsnæðið hentar
mjög vel fyrir þessa starfsemi og
ekki þarf að kosta miklu í breyting-
ar.“
– Hvað um aðrar hæðir?
„Nýsköpunarmiðstöð HR verður á
þriðju og fjórðu hæð, en hún tekur til
starfa um áramótin. Þar verður
starfseminni skipt upp í nokkra
þætti, m.a. frumkvöðlamiðstöð,
frumgerðarsmíðaverkstæði, vísinda-
verkstæði og aðstöðu fyrir sprotafyr-
irtæki og rannsóknar- og þróunar-
starf hjá nýjum og starfandi
fyrirtækjum. Þar er horft til einstak-
linga og fyrirtækja sem vilja sam-
nýta aðstöðuna, hafa gagn af tækja-
búnaðinum og virkja hugvit kennara
og nemenda. Með því viljum við
hjálpa til við að koma hugmyndum og
rannsóknum á framkvæmdastig og
stuðla að uppbyggingu íslensks at-
vinnulífs. Nýsköpunarmiðstöðin hef-
ur starfsemi sína á þessum stað en
verður svo í sjálfstæðri byggingu eða
álmu í Vatnsmýrinni. Á efstu hæð,
þar sem nú er mötuneyti Morgun-
blaðsins, hef ég síðan séð fyrir mér
setustofu fyrir stúdenta og starfs-
menn, veitingarekstur og fundarað-
stöðu í þægilegu umhverfi.“
– Liggur fjármögnun á Nýsköpun-
armiðstöðinni fyrir?
„Núna er hún á hugmyndastigi.
Ég vil að við náum góðu samstarfi við
fyrirtæki sem hafa af því hag að nýta
aðstöðuna en einnig fyrirtæki sem
vilja styðja við nýsköpun í atvinnulíf-
inu. Allt er þetta í fullum undirbún-
ingi, en Nýsköpunarmiðstöðin tekur
ekki til starfa fyrr en um áramót.“
Verðlaunatillaga kynnt í júní
– Verða fleiri breytingar á hús-
næði HR?
„Um leið og við flytjum verkfræð-
ina í hús Morgunblaðsins segjum við
skilið við aðstöðuna sem deildin hafði
í Húsi verslunarinnar. Í Ofanleiti
verður meira rúm fyrir viðskipta- og
lagadeildina, auk kennslufræðinnar
og lýðheilsudeildarinnar. Við verðum
aðeins á þremur starfsstöðvum í
Reykjavík, á Höfðabakka, í Ofanleiti
og í Kringlunni, en auk þess hjá
Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ.
Þannig verður þetta þar til við flytj-
um í Vatnsmýrina.“
– Er undirbúningur að byggingu
nýs húsnæðis í Vatnsmýri langt kom-
inn?
„Við fáum tillögur í hugmynda-
samkeppni frá fimm útvöldum hóp-
um arkitekta 9. maí næstkomandi, en
þessir hópar eiga það allir sammerkt
að vera fjölskipaðir með innlendum
og erlendum arkitektum, skipulags-
fræðingum og háskólasérfræðingum.
Þá tekur við starf dómnefndar, sem
fær tæplega mánuð til að skila af sér
niðurstöðu. Við munum kynna verð-
launatillöguna og efna til sýningar í
framhaldi af því á öllum tillögunum.
Húsnæðið sem á að rísa verður um 32
þúsund fermetrar og lögðum við
mjög sterkar hugmyndafræðilegar
línur fyrir hópana. Í fyrsta lagi að
byggingin verði stúdentamiðuð, öll
flæði- og verkferli miði að því að þeir
geti fengið þjónustu og nýtt aðstöðu
á sem eðlilegastan máta. Í öðru lagi
að ekki séu neinir þröskuldar sem
hindri samstarf deilda og samþætt-
ingu náms og rannsókna. Og í þriðja
lagi að búið verði til skapandi og
sveigjanlegt þekkingarumhverfi,
sem kallar á að fólk vinni saman.“
Enginn mælikvarði einhlítur
– Framtíðarhorfur íslenskra há-
skóla hafa verið nokkuð til umræðu
upp á síðkastið – hvaða skoðun hefur
þú á því.
„Þegar talað er um að komast í hóp
hundrað bestu háskóla í heiminum er
nauðsynlegt að gera sér grein fyrir
við hvað er miðað og að hverju er
stefnt. Mörgum mælikvörðum er
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Háskólinn í Reykjavík hefur tekið Morgunblaðshúsið á leigu og verður verkfræðin og tölvunarfræðin þar til húsa, rannsóknarstofnanir og fleira, auk þess sem stofnuð verður Nýsköpunarmiðstöð.
Allir útskrifaðir nemendur
geti stofnað fyrirtæki
Háskólinn í Reykjavík hefur nífaldast að stærð á síðustu
átta árum, meðal annars með samruna við Tækniháskóla
Íslands. Pétur Blöndal ræðir við Guðfinnu Bjarnadóttur,
rektor HR, um leigu háskólans á Morgunblaðshúsinu,
framtíðarmarkmið og Nýsköpunarmiðstöð sem tekur til
starfa um áramót.
Guðfinna Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík.
Morgunblaðið/ÞÖK