Morgunblaðið - 07.05.2006, Qupperneq 36
36 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Pistlahöfundur kýs að haldaáfram þar sem frá var horf-ið síðast, en enginn skyldiskilja skrifin svo að hannmeti hlutina í þá veru að
gæði myndverka markist af hamars-
höggum á uppboðum, af og frá. Þau
eru samt óneitanlega góð heimild um
loftvogina á listamarkaðinum, ekki
síður en hinar mikilsverðari listakaup-
stefnur, hvað ofan á sé þá og þá stund-
ina einkum þegar um er að ræða
helstu uppboðsfyrirtæki heims. Það er
svo að sjálfsögðu frétt upp í grand
þegar myndverk eftir Norðurlanda-
búa er slegið á metverði á heimsvísu
sem er einsdæmi, jafnvel þótt hinn
nafnkenndasti þeirra, norski málarinn
Edvard Munch, eigi í hlut. Að því við-
bættu að hér var um að ræða graf-
íkverk í mörgum eintökum og nokkr-
um útgáfum. Með samanlögðum
viðbótarkostnaði voru þetta yfir
700.000 dollarar og miðað við stökkið
frá matinu, sem var 100 til 150.000
dollarar, ætti að vera stutt í milljónina.
Hér komin enn ein sönnun þess að
myndverk eru hörðustu pappírarnir á
hlutabréfamarkaðinum um þessar
mundir og hafa raunar lengi verið, en
eins og annars staðar ræður þefvísi og
útsjónarsemi gengi manna á vett-
vanginum.
Munch var sinnar eigin gæfu smið-
ur en án mikilsverðra velunnara og
baklands í röðum áhrifamanna, eink-
um í Þýskalandi, hefði hann trúlega
aldrei náð viðlíka hæðum í list sinni. Í
ljósi þessa má gera því skóna að pen-
ingurinn fyrir þetta eina eintak hefði
komið sér býsna vel fyrir gerandann
þá myndin leit dagsins ljós einhvern
tímann á árunum 1895–1902.
Berlín var einn af þyngdarpunktum
listarinnar á tímunum sem Munch lifði
þar og starfaði, hins vegar var Krist-
iania (nafninu breytt í Osló 1925), fæð-
ingarborg listamannsins, hálfgert
sveitaþorp. Hinn framsækni og gunn-
reifi listamaður öllu meira hataður af
íhaldssamari starfsbræðrum sínum en
hitt og var í nokkurs konar útlegð í
Þýskalandi, að einu leyti svipað og Jón
Stefánsson og Júlíana Sveinsdóttir í
Danmörku. Þó varla sambærilegt, því
listapólitíkin í Kristianiu var annars
eðlis og margfalt svæsnari, hér var
það helst fámennið og takmarkað
svigrúm sem gerði að verkum að
myndlistarmenn neyddust til að leita
á önnur mið, að ævintýraþránni
ógleymdri.
Sjónmenningin rótgróin í Þýska-
landi og dýpkaði enn þegar landflótta
franskir kalvínistar, svonefndir húg-
enottar, settust að í Prússlandi á 16.
og 17. öld. Þeir voru óviðjafnlegir snill-
ingar í höndunum, og raunar nutu
Danir þess einnig að hluta, og þar
jafnvel komin ein skýringin á frábæru
handverki í þeirra ranni.
Vel merkjanlegt, að þar sem þýskir
landnemar í vesturheimi settust að,
jafnt í norðri sem suðri, báru þeir með
sér evrópska hámenningu í formi
húsagerðar, handverks, leiklistar og
tónlistar auk virðingar fyrir hvers
konar sögulegum geymdum. Jafnt
sýnileg í stórborgum Norður-Amer-
íku sem Suður-Chile, auk þess sem
þeir voru frumkvöðlar að rannsóknum
á Patagóníu, sem allt fram á nítjándu
öld var ókannað landsvæði. Ekki virð-
ist þessi jarðtengda ástríða hafa
þynnst umtalsvert í áranna rás sé aug-
um rennt yfir hinn firnalanga dálk
„Söfn og listhús“ í vikuritinu Die Zeit.
Hermir af framboði á myndlistarvett-
vangi á landsvísu og er þó einungis
vísað til markverðari sýninga en
heimahúsum, skúmaskotum, glugga-
hornum og boxum gefið frí. Skilvirkn-
in þó mikilsverðust ásamt því gagnsæi
sem þessi mikla og athyglisverða upp-
talning fram ber.
Hámenningarborgir Evrópudrógu listamenn að séreins og segull, hvort heldurværi París, Lundúnir,
Róm, Vín eða Berlín, heimurinn stór
og handstýrð alþjóðavæðing listarinn-
ar óralangt undan. Og þá kemur að at-
hyglisverðum sannindum, nefnilega
að grónar menningarþjóðir hafa í sí-
vaxandi mæli verið að líta sér nær á
seinni tímum, einneginn styrkja
ímynd sína útávið.
Mikla athygli vakti er málverk eftir
hinn kínverska Zhang Xiaogang var
slegið á 979.200 dollara hjá Sotheby’s í
New York 31. mars, sem þýðir að með
föstum gjöldum nemur upphæðin
rúmri milljón. Zhang ekki með öllu
óþekkt nafn í New York en fram að
því hafði verð á stærstu myndverkum
listamannsins, samkvæmt árlegri sýn-
ingu í sýningarsal Max Protecht, legið
undir 100.000 dollurum, svo hér var
um tífalda hækkun að ræða! Heildar-
veltan á þessu fjölþætta uppboði á
myndlist frá Asíu, Kína, Japan og
Kóreu, allra miðla frá málverki til
myndbanda, reyndist svo 13,22 millj-
ónir dollara, en matið sex til átta millj-
ónir. Aðeins viku seinna endurtók sag-
an sig á uppboði sama firma á asískri
myndlist í Hong Kong. Sér í lagi mun
eftirspurnin eftir framsækinni kín-
verskri list vera að aukast og virðist
haldast í hendur við frjálsara hagkerfi
og annan uppgang í landinu.
Verð á kínverskri nútímalist þre-
Miðlun og gagnsæi
Reuters
Vincent van Gogh: Madame Ginoux, eigandi kaffihússins í Arles í Provence,
sem hann og Paul Gauguin vöndu komur sínar á.
SJÓNSPEGILL
Bragi Ásgeirsson
Reuters
Málverkið „Le Repos“ eða „Hvíldin“ (1932) eftir Picasso var slegið á tæpar 35
milljónir dollara en búist var við að á milli 15 og 20 milljónir fengjust fyrir það.
íþróttir á morgun
helgin öll…
Fréttir í
tölvupósti
Viltu fá frambjóðendur í heimsókn?
Á þessu kjörtímabili hafa sjálfstæðismenn í Reykjavík
farið í vel á þriðja hundrað heimsóknir til vinnustaða,
fyrirtækja, skóla, stofnana og félagasamtaka.
Þessar heimsóknir halda nú áfram daglega fram að
kosningum.
Hafið samband í síma 5151777 eða sendið póst
á disa@xd.is
TÍMI TIL AÐ HITTAST
betriborg.is