Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 43
MENNING
Fréttasíminn 904 1100
JÓN Þorkelsson Vídalín var biskup í
Skálholti á árunum 1698-1720. Hann
hefur löngum verið talinn í hópi hinna
merkari Skálholtsbiskupa í lúth-
erskum sið og þekktastur er hann
fyrir húslestrabók sína, Vídalínspost-
illu, sem prentuð var í tveimur bind-
um á Hólum í Hjaltadal á árunum
1718 og 1720. Vídalínpostilla er tví-
mælalaust vinsælasta húslestrabók
íslensk. Hún var endurprentuð marg-
sinnis og notuð til lestra á heimilum
löngu eftir daga Jóns, sums staðar
jafnvel fram á 20. öld. Er þá rétt að
benda á, að prentun seinna bindis
postillunnar var ekki lokið fyrr en ár-
ið sem meistari Vídalín lést og óvíst
að hann hafi litið það augum.
En Jón Vídalín var ekki aðeins
mikill predikari og postilluhöfundur.
Hann þótti skörulegur biskup og vel
lærður og röggsamur í kirkjustjórn
sinni. Hann átti það til að taka hart á
brotum, ekki síst er kirkjunnar menn
og höfðingjar áttu í hlut, en var mild-
ari og tíðum góðgerðasamur við þá er
minna mátti sín.
Prestastefnur voru öldum saman
helstu samkomur íslenskra kenni-
manna og mikilvægt tæki biskupa í
kirkjustjórninni. Þær voru tvenns
konar. Annars vegar voru presta-
stefnur sem prófastar boðuðu til í
umdæmum sínum og hins vegar
prestastefnur biskupa, sem haldnar
voru árlega frá því á 17. öld. Á meðan
biskupsstólar voru tveir í landinu hélt
Hólabiskup jafnan prestastefnu
Hólastiftis á Flugumýri í Skagafirði,
en Skálholtsbiskup kvaddi presta til
fundar á Þingvöllum við Öxará um al-
þingistímann. Á prestastefnu var
rætt um margvísleg mál, bæði al-
menn og þau er snertu kirkjuna sér-
staklega, og úrskurðir lagðir á. Þeir
voru nefndir prestastefnudómar og
höfðu ærið fordæmisgildi, ekki síst í
siðferðismálum, jafnt kennimanna
sem almúgans. Gefur því augaleið að
prestastefnudómar hafa mikið heim-
ildagildi og eru mikilsverðar heim-
ildir um hegðun, viðhorf og siðferði
fólks á fyrri tíð og segja mikið um af-
stöðu kirkjulegra yfirvalda til mála.
Jafnframt bregða dómarnir í mörg-
um tilvikum fróðlegu ljósi á daglegt
líf og kjör fólk og gefa fræðimönnum
og höfundum sem
um þessa tíma
fjalla tækifæri til
að skyggnast und-
ir yfirborðið og
skoða ýmsa fleti
mannlífsins, sem
aðrar heimildir
eru tíðum þöglar
um.
Í þessari bók
eru prentaðir úrskurðir sem kveðnir
voru upp á prestastefnum á Þingvöll-
um þau tuttugu og tvö ár sem Jón
Vídalín var biskup í Skálholti. Allir
eru þeir stórfróðlegir aflestrar og
bregða upp skemmtilegri mynd af ís-
lensku samfélagi á öndverðri átjándu
öld.
Vel er vandað til þessarar útgáfu.
Hún hefst á formála eftir Matthías
Guðm. Pétursson formann sókn-
arnefndar Garðasóknar, en Jón Ví-
dalín var fæddur að Görðum á Álfta-
nesi árið 1666 og eru því rétt 340 ár
liðin frá fæðingu hans. Sóknarnefndin
hefur og lagt rækt við minningu hans
og í Garðabæ stendur Vídalínskirkja.
Mér þykir það hins vegar nokkur of-
rausn af sóknarnefndarformanninum
að kalla meistara Vídalín „Garðbæ-
ing“, enda nokkurt miseldri með hon-
um og sveitarfélaginu sem nú heitir
Garðabær.
Umsjónarmenn útgáfunnar, Már
Jónsson prófessor og séra Skúli S.
Ólafsson, rita rækilegan inngang þar
sem þeir gera stutta grein fyrir ævi-
hlaupi Vídalíns og síðan fyrir presta-
stefnum á hans tíð, handritum sem
notuð voru við útgáfu presta-
stefnudómanna og vinnureglum við
frágang textans. Allt þar sem byrjar í
góðu fræðiriti og í bókarlok eru nauð-
synlegar skrár.
Þetta er þörf og tímabær heim-
ildaútgáfa og vafalaust kærkomin
öllu áhugafólki um íslenska sögu.
Prestastefnudómar
meistara Vídalíns
BÆKUR
Guðfræði
Már Jónsson og Skúli S. Ólafsson tóku
saman.
Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar
12. bindi.
Háskólaútgáfan, Reykjavík 2006.
335 bls.
Í nafni heilagrar guðdómsins þrenningar.
Prestastefnudómar Jóns biskups Vídalíns
árin 1698-1720
Jón Þ. Þór
Jón Vídalín
Aflið sem þig vantar
Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.is
Norsku Steady bátarnir hafa slegið í gegn
hjá okkur. Verð frá aðeins 114.000 kr.
Johnson-Evinrude utanborðsmótorar.
Nýja 3-D leiktækið sem er í raun þrjár sæþotur í einni,
RXP 215 hö ofurtækið og GTX Limited sem er lúxus-sæþota
fyrir þrjá, allt mögnuð tæki!
Sea-doo sæþotur.
Frá 2,5 - 250 hestöfl. Mótorar fyrir allar gerðir báta. Verð frá 74.900 kr.
Umboðsmaður á Akureyri:
Bílasalinn.is // Hjalteyrargötu 2
Bombardier fjórhjól.
Öflugustu fjórhjólin á markaðnum eru BRP Outlander 800 4x4.
Eins eða tveggja manna með spili og öllu sem prýtt getur yfirburða fjórhjól.
Stórhöfði 31 • 110 Reykjavík
Sími: 580 5200 • Fax 580 5230
www. lifidn.is
Ársfundur Lífeyrissjóðsins Lífiðnar 2006
verður haldinn mánudaginn 8 maí, kl. 16:30
á Grand Hotel Reykjavík, Sigtúni.
Aðildarfélögum sjóðsins hafa verið send fundarboð og eru þau
beðin að tilkynna skrifstofu sjóðsins fyrir 4. maí n.k. hverjir verða
fulltrúar þeirra á fundinum. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu
á fundinum með tillögu- og málfrelsi.
Reykjavík, 7. apríl 2006, stjórn Lífeyrissjóðsins Lífiðnar.
N
æ
st
2006Ársfundur Lífiðnar
Dagskrá
Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt
samþykktum sjóðsins
1
Atkvæðagreiðsla um samrunasamning2
Önnur mál löglega upp borin3