Morgunblaðið - 07.05.2006, Síða 54
54 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Vegna mikils aðstreymis aðsendra greina í aðdraganda bæjar- og sveitarstjórnarkosninganna verður
formi þeirra greina, sem lúta að kosningunum, breytt. Er þetta gert svo efnið verði aðgengilegra fyrir les-
endur og auka möguleika Morgunblaðsins á að koma greinunum á framfæri fyrir kosningar.
Bæjar- og sveitarstjórnarkosningar
SAMKVÆMT svæðaskipulagi
höfuðborgarsvæðisins og að-
alskipulagi Mosfellsbæjar mun þar
eiga sér stað mikil
fjölgun íbúa á
næstu árum. Mos-
fellsbær er það
sveitarfélag á land-
inu sem ætlað er að
taka við hvað hlut-
fallslega mestri
fólksfjölgun. Á
kjörtímabilinu hefur meirihluti
sjálfstæðismanna unnið mikið starf
við undirbúning þessa stóra verk-
efnis. Þannig er málum háttað í
Mosfellsbæ að byggingarlönd eru
nær eingöngu í eigu einkaaðila.
Gömlu landbúnaðarjarðirnar og til-
vonandi byggingarlönd, Blikastað-
ir, Lágafell, Teigur, Sólvellir, Akr-
ar, Reykir, Helgafell og
Leirvogstunga falla öll í þennan
flokk.
Ný hugmyndafræði
í Mosfellsbæ – 1.000 lóðir
fyrir sérbýli
Þegar skoðaðir eru þeir mögu-
leikar sem sveitarfélagið hefur til
að takast á við þessa miklu upp-
byggingu koma einkum tvær leiðir
til greina. Annars vegar að kaupa
upp byggingarlöndin og úthluta
lóðum og hins vegar að gera samn-
inga við landeigendur varðandi
uppbyggingu á svæðunum. Við
fyrstu sýn virðist fyrri leiðin að-
gengilegri og betri en við nánari
skoðun kemur í ljós að henni fylgja
verulegir annmarkar. Eins og öll-
um er kunnugt hefur verð á bygg-
ingarlandi á höfuðborgarsvæðinu
margfaldast á undanförnum árum.
Sveitarfélagið þarf því að leggja í
gífurlegar fjárfestingar vegna
kaupa á byggingarlandi með til-
heyrandi áhættu. Auk þess sem
leggja þarf uppkaupsverð ofan á
gatnagerðargjöld til að ná þeim
fjármunum til baka sem lagðir
væru í kaupin, nema að lóðir séu
niðurgreiddar af skattfé sem án efa
mundi ekki nást sátt um meðal bæj-
arbúa. Því var skoðuð sú leið að
gera samninga við landeigendur
um uppbyggingu á svæðunum og
aðkomu þeirra að byggingu þjón-
ustumannvirkja. Nú hafa verið
gerðir tveir slíkir samningar, þ.e.
um uppbyggingu 400 sérbýlisíbúða
í Leirvogstungu og byggingu 1000
íbúða í landi Helgafells. Þessir
samningar fela m.a. í sér:
Landeigendur kosta allar
framkvæmdir sem uppbygg-
ing á hverfunum krefst,
hverju nafni sem þær nefnast,
s.s. vegna gatnagerðar, und-
irganga, holræsalagna, stíga-
gerðar, lýsingar, frágangs
leikvalla og allra sameig-
inlegra svæða.
Landeigendur greiða allan
skipulagskostnað svæðanna.
Landeigendur afhenda Mos-
fellsbæ landið til eignar sam-
hliða uppbyggingu.
Landeigendur greiða Mos-
fellsbæ a.m.k. um 1.050 mkr.
vegna beggja hverfanna, sem
notaðar verða til uppbygg-
ingar á skólamannvirkjum í
hverfunum.
Með þessu móti er tryggt að fjár-
magn fylgir frá landeigendum til að
standa undir uppbyggingu á nauð-
synlegri þjónustu í hverfunum og
sá kostnaður lendir ekki á íbúum
sveitarfélagsins. Auk þess fríar
bæjarfélagið sig þeirri miklu
áhættu sem fylgir uppkaupum.
Jafnframt er tryggt mikið framboð
af fjölbreyttum lóðum í bæjarfélag-
inu sem stuðlar að því að jafnvægi
myndast milli framboðs og eft-
irspurnar sem leiðir jafnframt til
lægra lóðaverðs. Sú leið sem hér
hefur verið kynnt um uppbyggingu
íbúðahverfa í Mosfellsbæ hefur
vakið mikla athygli. Ljóst er að hér
er um nýja hugmyndafræði að ræða
sem önnur sveitarfélög munu vafa-
laust nýta sér.
Uppbygging íbúðarhverfa ný
hugmyndafræði í Mosfellsbæ
Eftir Harald Sverrisson
Höfundur er formaður bæjarráðs
og skipulags- og bygging-
arnefndar í Mosfellsbæ.
SAMFYLKINGIN í Reykjavík lít-
ur svo á að allir íbúar borgarinnar
hafi jafnan rétt til þjónustu, burtséð
frá þjóðerni þeirra.
Við flokkum fólk ekki
í ákveðna hópa, held-
ur viljum að allir geti
verið með. Innflytj-
endur þurfa aukinn
stuðning og munum
við veita hann með
sérstakri áherslu á
íslenskukennslu sem er lykill að að-
lögun í okkar samfélagi.
Í grein í Morgunblaðinu í gær
sagði Toshiki Toma, prestur innflytj-
enda, að í stefnuskrá Samfylking-
arinnar væri hvergi minnst á fjöl-
menningu eða innflytjendur í ellefu
megináherslum. Að mínu mati nýtist
gjaldfrjáls leikskóli, fjölbreytt hús-
næðisframboð og framúrskarandi
nám öllum Reykvíkingum, þ.m.t. inn-
flytjendum. Svo fátt eitt sé nefnt.
Í stefnuskrá okkar er fjallað um 11
megináherslur sem snerta alla íbúa
borgarinnar á einn eða annan hátt.
Jafnframt er hægt að skoða stefnu-
skrána ítarlegar eftir málefnaflokk-
um. Þar má m.a. finna eftirfarandi
texta: „Í Reykjavík á að tryggja
grunnþarfir íbúa. Samfylkingin vill
stuðla að jöfnum tækifærum, óháð
efnahag eða annarri stöðu. Samfylk-
ingin vill jafna lífskjör og vinna mark-
visst gegn félagslegri einangrun. […]
Samfylkingin vill virkja þann mann-
auð sem í innflytjendum býr, auka
þarf stuðning við aðlögun og tungu-
málanám og sérstakt átak þarf til að
styrkja stöðu barna af erlendum upp-
runa. Fjölmenningarstefnu Reykja-
víkurborgar á að endurskoða reglu-
lega.“
Innflytjendur í Reykjavík eru
Reykvíkingar. Því telur Samfylkingin
sig eiga samleið með þeim og hlakkar
til að hjálpa þeim að setja mark sitt á
borgarlífið. Toshiki Toma hefur unnið
dyggilega að sama markmiði og ber
að þakka honum fyrir það.
Að lokum vil ég benda á grein eftir
Dofra Hermannsson og Oddnýju
Sturludóttur sem birtist í Frétta-
blaðinu á verkalýðsdaginn þar sem
fjallað er um málefni innflytjenda.
Greinin birtist einnig á ensku á vef
okkar, www.xsreykjavik.is.
Reykjavík
er allra
Eftir Björk Vilhelmsdóttur
Höfundur er borgarfulltrúi og
skipar 4. sæti Samfylkingarinnar
í Reykjavík.
Opið hús í dag
frá 14.00 til 16.00
Hraunhamar kynnir sérlega glæsilega íbúð
á þessum góða stað miðsvæðis í Breið-
holtinu. Íbúðin er 73,2 fm og er á 4. hæð í
fallegu fjölbýli. Gott aðgengi og lyfta.
Skipting eignarinnar: 2 svefnherbergi, hol,
eldhús með borðkrók, stofa, svalir, baðher-
bergi og geymsla, auk þess er sameiginlegt
þvottahús, hjóla- og vagnageymsla í sam-
eign. Verð 14,9 millj.
Björn býður ykkur velkomin.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Vesturberg 78 - Rvík. - Opið hús
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Vel staðsett 270 fm raðhús með
innbyggðum 52 fm tvöföldum bíl-
skúr. Í húsinu eru meðal annars 5
svefnherbergi þar af eitt mjög
stórt með eldhúsi, stórar stofur
með uppteknu lofti, tvö baðher-
bergi og gott eldhús. Skjólsæll
suður garður með verönd. Mjög
vel umgengið hús. Gott útsýni.
Verð 44,0 millj.
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI 14 TIL 17
GRÆNIHJALLI 5 - KÓPAVOGI
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13 SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali.
TÓMASARHAGI 16
Opið hús í dag frá kl. 14.00-16.00
JÖRFABAKKI 18 3.hæð
Opið hús í dag frá kl. 14.00-15.00
VALSHÓLAR 2 - ÚTSÝNI
Opið hús í dag frá kl. 14.00-15.00
Fallega og björt 3ja herb.endaíbúð á 1. hæð í góðu fjölbýli. Anddyri, rúmgóð stofa,
eldhús með þvottaherb. innaf, nýl. uppgert baðherb. flísar í hólf og gólf, tvö góð
herbergi annað með skáp. Gólfefni er parket og flísar. Sameign er til fyrimyndar og
falleg lóð. Fallegt nýl.málað og viðgert lítið fjölbýli. Mjög góð staðsetning.
Verð16.6 millj.Verið velkominn í dag milli 14-16
Þór tekur á móti gestum
Falleg, björt og vel skipulögð 4ra herb. íbúð á 3.hæð (efstu) í góðu fjölbýli. Björt
og rúmgóð stofa/borðstofa m/útg.á svalir m/miklu útsýni. Þrjú góð herbergi öll m/
skápum, fallegt baðherbergi flísar í hólf og gólf. Eldhús m/ nýl. fallegri innréttingu,
flísar milli skápa. Gólfefni er parket og flísar. Einstaklega barnvænt umhverfi, stutt
í alla þjónustu. Verð 18,7 millj.
Elín Ída sýnir.
Vorum að fá í einkasölu, efri sérhæð í þríbýlishúsi. Sérinngangur. Stigapallur með
útgang á vestursvalir. 3 svefnherbergi með skápum í einu. Eldhús með nýrri
innréttingu. Stofa. Geymsluris yfir allri íbúð, með miklum möguleikum. Verið er að
setja nýtt dren og nýjar skólplagnir við húsið. Hús í góðu standi.
Verð 27,2 m.
Opið hús verður í dag frá kl. 14-16, sölumaður sýnir.
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Allar nánari upplýsingar á Stórborg Fasteignasala.
Kirkjustétt 4. Sími: 534-8300.
Sími: 534-8300 Fax: 534-8301
Kirkjustétt 4 - 113 Reykjavík
www.storborg.is
Til Sölu einn vinsælasti
veitingastaðurinn í Reykjavík
www.storborg.is - 534 8300 - storborg@storborg.is
STÓRBORG Júlíus Vífill Ingvarsson
hdl. og löggiltur fasteignasali
Gaukur á stöng
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS - Kórsalir 5 penthouse
Höfum fengið í einkasölu einstaka 264 fm penthouse
íbúð á tveimur hæðum með óviðjafnanlegu útsýni,
ásamt bílskýli. Íbúðin er glæsil. innréttuð og frágangur
hinn vandaðasti. Lofthæð í stofu er allt að 7 metrum
og mjög stór gluggi í stofu gerir íb. mjög bjarta og sér-
staka. Íb. skiptist þannig: neðri hæð er stofa, borðst.,
eldhús, þrjú svefnh. og tvö baðh., annað innaf hjónah.
Yfir hluta íb. er milliloft og stór stofa og þaðan er hægt
að horfa niður í stofu og eldhús sem hafa allt að 7
metra lofthæð. Óskað er eftir tilboðum. 4853
EIGNIN VERÐUR TIL SýNIS Í DAG
(SUNNUDAG) FRÁ KL. 13-14.