Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 61
FRÉTTIR
Syddansk
Erhvervsakademi
Grundtvigs Allé 88
Dk-Sønderborg
Tlf. +45 7412 4141
www.sdes.dk
STYRKTARFÉLAGI krabbameinssjúkra barna voru
nýverið afhentar 152.000 krónur sem söfnuðust í upp-
boði kjötiðnaðarmanna á sýningunni Matur 2006. Kjöt-
iðnaðarmenn sýndu gestum sýningarinnar handbrögð
sín við vinnslu kjötafurða og úrbeinuðu ýmiss konar
kjöt. Afraksturinn og fleiri kjötafurðir voru síðan
boðnar upp í lok sýningarinnar og var ákveðið að ágóð-
inn rynni til SKB. Það var Félag íslenskra kjötiðnaðar-
manna, FÍK, og Meistarafélag kjötiðnaðarmanna,
MFK, sem stóðu að uppboðinu með aðstoð fjölda styrkt-
araðila. Rósa Guðbjartsdóttir veitti gjöfinni viðtöku
fyrir hönd Styrktarfélagsins.
Afhentu ágóða kjötuppboðs
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
KRABBAMEINSFÉLAG Reykja-
víkur, í samvinnu við Reykleysismið-
stöð Landspítala – háskólasjúkrahúss
og Lýðheilsustöð, hefur gefið út
bæklinginn ,,Hættu fyrir lífið.“ Þessi
bæklingur heitir á frummálinu Giving
up for life og er saminn af Jennifer
Percival hjúkrunarfræðingi og ráð-
gjafa í tóbaksvörnum fyrir National
Health Service í Bretlandi. Megin-
áhersla er lögð á að veita fólki auð-
veldar leiðbeiningar við að hætta að
reykja. Í bæklingnum eru upplýsing-
ar, ráðleggingar og gagnleg verkefni
sem hjálpa þeim sem reykja að átta
sig á því af hverju þeir reykja og
hvernig þeir geta hætt – fyrir fullt og
allt. Bæklingurinn tekur mið af ís-
lenskum aðstæðum og veitir upplýs-
ingar um meðferðarúrræði hérlendis.
Bæklingurinn mun liggja frammi á
heilsugæslustöðvum og í apótekum,
einnig er hægt að panta bæklinginn
hjá Lýðheilsustöð: pantanir@lyd-
heilsustod.is Hægt að skoða hann og
prenta út af vefsíðu Krabbameins-
félagsins: www.krabb.is/rit
Nýr bæklingur gegn reykingum