Morgunblaðið - 25.08.2006, Page 32
matur
32 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Pétur Alan Guðmundssonbyrjaði að stunda laxveiðimeð föður sínum, Guð-mundi Júlíussyni, þegar
hann var um 10 ára gamall og
veiddi í fjöldamörg ár með honum.
„Við áttum margar góðar stundir
við árbakkana og ég lærði flest það
sem ég kann af pabba. Við veiddum
aðallega í Norðurá, Stóru-Laxá,
Grímsá og Hítará.“ Pétur heldur
enn í þann sið föður síns að fara
með megnið af því sem hann veiðir í
búðina, viðskiptavinunum til mik-
illar ánægju. „Friðþjófur Adolf
Ólason tók við af pabba fyrir meira
en 20 árum sem besti veiðifélagi
minn og við förum í nokkrar veiði-
ferðir saman á hverju ári. Upp-
skriftina að laxi með gráðosti fékk
ég einmitt hjá honum og konu hans
Maríu Thejll sem kemur stundum
með okkur í veiði.“
Eldar það sem hann veiðir
Pétur segist veiða á „allt sem
gefur“, flugu, maðk eða spún, eftir
því sem hentar hverju sinni. Hann
segist ekki vera iðinn við flugu-
hnýtingar, þótt hann hnýti öðru
hvoru. „Mér finnst mjög gaman að
hnýta flugur en hef ekki gefið mér
tíma til þess upp á síðkastið. Ég
hnýtti meira áður fyrr og á örugg-
lega eftir að taka upp þráðinn aft-
ur, enda ólýsanlega gaman að veiða
á flugu sem maður hefur sjálfur
hnýtt.“ Villibráðarveislur Péturs
þykja með þeim betri í bænum, en
hann hefur fyrir sið að bjóða fé-
lögum sínum til veislu á hverju
hausti, þar sem fram er borinn
fjöldinn allur af gómsætum réttum
úr villtum fiski, fugli og hreindýri
sem hann hefur veitt. „Mér finnst
gaman að halda veislur og mér
finnst sérstaklega skemmtilegt að
elda það sem ég hef sjálfur veitt.
Uppskriftir hafa safnast saman í
gegnum árin og ég hef líka gaman
af því að prófa mig áfram og reyna
eitthvað nýtt.“
Senn fer laxveiðinni að ljúka og
gæsatímabilið að hefjast fyrir al-
vöru, en Pétur er að lokum spurður
hvort hann eigi sér eftirlætis lax-
veiðiá. „Selá í Vopnafirði, ekki
spurning,“ svarar hann að bragði.
„Þar er kyrrðin, ekkert gsm-
samband, bara fjallasalir, eyðibýli,
stórir laxar og góðir félagar. Það er
ekki hægt að lýsa þessu svæði
öðruvísi en með tveimur orðum:
tær snilld.“
Gin og lime gefa ljúfan tón
Pétur segist oft gera laxa-
carpaccio, sem hann segir einfaldan
og góðan forrétt. „Það er hægt að
gera hann 2–4 klukkutímum áður
en gestirnir mæta og hafa tilbúinn
á forréttardiskunum.“ Safi úr lime-
ávexti og skvetta af gini gera gæfu-
muninn, segir hann. „Ég geri þenn-
an rétt oft í veiðihúsum og tíni þær
jurtir sem eru í umhverfinu, jafnvel
birkiblöð. Ef menn eiga ekki villtan
lax má nota silungsflök eða sjóeld-
islax, en þá þarf að gæta þess að
hann sé ekki of feitur.“
Laxa-carpaccio með
laxahrognum
Forréttur f. 6
½–1 beinhreinsað laxaflak (um
500 g)
safi úr 2 limeávöxtum
2–3 tappar gin
hundasúrur, graslaukur, hvanna-
blöð eða aðrar kryddjurtir sem
hendi eru næst
nýmalaður pipar
börkur af 1 lime-ávexti
laxahrogn, jafnvel silungshrogn
salt ef vill, t.d. Maldon-salt
Laxaflökin eru skáskorin mjög
þunnt og sneiðarnar lagðar á 6
diska. Hægt er að jafna sneiðarnar
fallega út með því að setja plast-
filmu yfir og þrýsta létt á með
fingri. Lime-safi er kreistur og
honum ýrt yfir fiskinn. Þá er um
2–3 töppum af gini skvett yfir
þannig að nokkrir dropar fari á
hvert flak. Pipar er malaður yfir
flökin og grófrifnum lime-berki
stráð yfir. Hægt er að strá örlitlu
salti yfir, en gæta þarf að því að
hrognin eru býsna sölt.
Að lokum er fallegt að skreyta
réttinn með kryddjurtum úr nátt-
úrunni, t.d. birkiblöðum, hundasúr-
um eða graslauk.
Laxahrogn að
hætti vesturbæings
Pétur segist stundum nýta hrogn
úr laxi sem hann veiðir og setja í
saltpækil.
Hrognin segir hann afar bragðgóð,
en nokkurn tíma taki að útbúa eigin
„kavíar“. Þeir sem kjósa geta notað
silungshrogn í staðinn, en þau er
hægt að kaupa í öllum mat-
vöruverslunum á tiltölulega góðu
verði.
Lax veiðimannsins
Fátt þykir veiðimönnum
betra en að elda það sem
þeir hafa aflað. Brynja
Tomer fékk það staðfest í
samtali við Pétur Alan
Guðmundsson, kaup-
mann í Melabúðinni, sem
selur viðskiptavinum sín-
um megnið af aflanum en
geymir hluta af honum
fyrir veislu með vinum og
vandamönnum.
Morgunblaðið/ÞÖK
Girnilegt Hér er fersku blóðbergi dreift yfir laxaflakið sem síðan er vafið með birkigreinum.
Birki Pétur notar gjarnan jurtir úr
náttúrunni til að krydda laxinn.
Freistandi Laxacarpaccio með laxahrognum, gini og lime.
Blóðberg er tínt
meðan það er í blóma á
sumrin. Það er vinsæl
kryddjurt og notað á
lax, lambakjöt og oft á
grillaðar kartöflur.
Birkið er nýtt á ýmsan
hátt til matargerðar og
ekki síst sem krydd á
grillmatinn. Laufblöð,
börk af yngstu
greinum og safann má
nota og safna að vori.
Ilmandi Gaman er að prófa sig
áfram með ýmsar kryddjurtir. Hér
er ferskum rósmaríngreinum kom-
ið fyrir í flakinu. Saltað og piprað
eftir smekk og bakað í ofni eða
grillað í 12–15 mínútur.
Ljúffengt Bráðinn gráðostur fer
einkar vel með laxi. Flakið má baka
í ofni eða grilla á útigrilli.