Morgunblaðið - 10.09.2006, Page 27
– Hvaða vísu kvað afi þinn?
„Hann kvað gjarnan eitthvað eftir
Hallgrím Pétursson. Hallgrímur var
hans maður og er minn líka. Ég var
spurður að því í viðtali fyrir skömmu
hvort ég tryði heldur á Guð eða Óðin,
af því að ég hef verið að sniglast með
ásatrúarmönnum. Ég svaraði því til
að ég tryði á Hallgrím Pétursson
eins og allir sannir Íslendingar. Og
það er rétt að ég hef alltaf dáðst að
Hallgrími og hans trúarhita og kveð-
skap. Vísan sem afi flutti var svona:
Guð faðir mig gjörði sinn,
Guðs sonur mig leysti;
Guðs fyrir andann gafst mér inn
góður trúarneisti.
Þegar Steindór tók að sér for-
mennsku segir hann að enginn annar
hafi nennt því, enda mikið fyrir því
haft ef vel eigi að vera. „Margir
höfðu verið beðnir þar til einhverjum
datt sú fásinna í hug að fá mig til
þess. Ég tók því vel enda vildi ég
ekki að allt færi til fjandans. Ekki er
laust við að þar hafi einnig ráðið hé-
gómi,“ segir hann og brosir.
„Ég lét mig dreyma um að félagið
færi nú ekki að vekja athygli akk-
úrat á meðan ég væri formaður. En
ég var ekki fyrr búinn að taka við
sprotanum en það var eins og yrði
bylting og allir fjölmiðlar fóru að
hafa áhuga á Iðunni. Þó gerði ég
aldrei neitt til að vekja á athygli á fé-
laginu og hef aldrei gert. Þetta er al-
gjör ráðgáta fyrir mér, þó að ég telji
að yngra fólkið eigi sinn þátt í því,
eins og Andri Snær Magnason og
Eva María Jónsdóttir, sem leiddi
mig og Sigurrós saman á sínum
tíma.
Að ógleymdum Hilmari Erni
Hilmarssyni sem hefur verið al-
gjörlega óþreytandi við að finna ný
sjónarhorn og gera meira úr rímum
en að umla úti í horni. Hann átti hug-
myndina að því að leiða okkur Erp
[Eyvindarson] saman í lagi og mér
sýnist það hafa vakið einna mesta at-
hygli á rímunum. Þetta voru rímur
og rapp, þar sem hann rappaði texta
sem ég hef aldrei skilið og ég kvað
hestavísur inn á milli,“ segir Stein-
dór og skellihlær.
„Úr þessu varð heilmikið rokk. Ég
hitti einu sinni mann sem hafði verið
á rússneskum togara við Austur-
Grænland og þar náðu Rússarnir
ekki sambandi við neina útvarpsstöð
aðra en Gufuna. Hann sagði að Rúss-
arnir hefðu alveg ætlað að ærast
þegar lagið var spilað þar og mikið
fjör verið um borð.“
Iðunn fær inni í Gerðubergi
Á 77 ára afmælisdegi Iðunnar 15.
september næstkomandi verður
kynnt ný aðstaða sem félagið hefur
fengið í Gerðubergi. Í tilefni dagsins
verður opið hús fyrir almenning,
stutt skemmtidagskrá og léttar veit-
ingar.
„Það markar auðvitað tímamót að
eiga í slíku samstarfi og geta nýtt sér
þá frábæru aðstöðu, sem er til staðar
í Gerðubergi. Reglulegir fundir hefj-
ast svo í byrjun október og eins
munu félagar standa fyrir nám-
skeiðum í rímnakveðskap og brag-
fræði í húsakynnum Gerðubergs.
Það eiga allir að geta skemmt sér á
fundum Iðunnar, þar sem kveðnar
eru rímur, lesin ljóð, flutt fróðleg er-
indi, spilað og sungið. Hljóðfæraleik
er alls ekki úthýst og það stendur til
að víkka út starfsemina og samein-
ast félagi sem lítið hefur borið á,
Þjóðlagafélaginu, en það var stofnað
árið 2000.“
Í Kvæðamannafélaginu Iðunni eru
tvær fastanefndir, annars vegar
rímnalaganefnd, sem safnar rímna-
lögum, varðveitir þau og kennir, og
hins vegar vísnanefnd, sem safnar
lausavísum. „Ég sé fyrir mér að við
getum víkkað út starfsemina þannig
að þar verði rúm fyrir alla þjóðlega
tónlist, hverju nafni sem hún nefnist,
s.s. sálmalög, þjóðlög eða rímur. Það
mætti jafnvel tvískipta fundum í tón-
fundi, þar sem tónlist yrði í for-
grunni, og vísnafundi, sem væru lítil
hagyrðingamót. Jafnframt mætti
fjölga fundum, þannig að þeir yrðu
hálfsmánaðarlega. Félagið verður að
þróast ekkert síður en önnur félög
og ég geri mér vonir um að það hafi
jákvæð áhrif að tónlistin sé á
breiðara sviði, þannig að hvað geti
haldið velli með öðru. Ef félagið
byggist eingöngu á rímnakveðskap
er það dæmt til að falla.“
Samstarfið við Sigurrós
Steindór hefur ferðast vítt um
heiminn með Sigurrós og kom síðast
í sumar fram á tveim tónleikum á
ferð Sigurrósar um landið, þar á
meðal þorrablóti sem hljómsveitin
stóð fyrir á Kirkjubæjarklaustri.
Þangað bauð Sigurrós Iðunnar-
félögum og var dagskráin tekin upp
fyrir heimildarmynd um hljómsveit-
ina.
„Þeir áttuðu sig strax á því þegar
þeir heyrðu rímnagaulið í mér hví-
líkur kraftur er fólginn í rímna-
tónlistinni,“ segir Steindór. „Ætli
það sýni ekki best hve traustum fót-
um þeir standa í íslenskum menning-
ararfi.“
Hann segir ómögulegt að segja til
um hvort framhald verði á samstarf-
inu; það hafi aldrei verið rætt. „Þetta
hefur þróast frá degi til dags og ég
geri ekki ráð fyrir neinu í þeim efn-
um.“
– Náði samstarfið ef til vill há-
punkti í Hrafnagaldri?
„Já, það má segja það. Þá sömdum
við saman tónverk sem byggist að
hluta á gömlu rímnahefðinni og ég
verð að segja að ég er montinn af af-
rakstrinum. Þetta var byggt á hug-
mynd Hilmars Arnar Hilmarssonar,
sem hafði gengið með það í vömbinni
að gera tónverk upp úr þessu kvæði.
En það hefur verið gaman að fara
með tónverkið milli landa, því þar
tvinnast saman svo margir þættir úr
þjóðararfinum, þ.e. forníslenskt
kvæði og óskiljanlegt og rímnakveð-
skapurinn,“ segir hann og hlær.
„Svo höfðum við grjót ofan úr
Borgarfirði sem strákarnir spiluðu
á, – steinhörpu Páls á Húsafelli,
listamanns og snillings. Það er ekki
amalegt að hafa fósturjörðina með
sér og spila á hana. Ég fullyrði að
annars hefði tónverkið hvorki verið
fugl né fiskur.“
Morgunblaðið/ÞÖK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2006 27
A&P Arnason og Faktor einkaleyfaskrifstofa hafa sameinast
undir nafninu Arnason Faktor. Fyrirtækið hefur nú flutt
í glæsilegt nýtt húsnæði:
Við erum flutt!
Guðríðarstíg 2-4 113 Reykjavík Sími: 5 400 200 Fax: 5 400 201
mail@arnasonfaktor.is www.arnasonfaktor.isNæ
st
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Prag
í allt haust
frá kr. 19.990*
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Fegursta borg Evrópu
Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Ís-
lendinga sem fara þangað í þúsunda-
tali á hverju ári með Heimsferðum.
Haustið er frábær tími til að heim-
sækja borgina. Fararstjórar Heims-
ferða gjörþekkja borgina og kynna
þér sögu hennar og heillandi menn-
ingu. Góð hótel í hjarta Prag auk frá-
bærra veitinga- og skemmtistaða.
27. sept. - 5 nátta helgarferð á frábærum tíma
*Verð kr.19.990
Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð
2.-5. okt. eða 6.-9. nóv. Netverð á mann.
Verð kr.39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi 27. sept. í
5 nætur á Hotel ILF með morgunmat.
27. sept. - örfá sæti laus
2. okt.
05. okt. - örfá sæti laus
9. okt.
12. okt.
16. okt.
6. nóv.
09. nóv. - örfá sæti laus
13. nóv.
16. nóv. - örfá sæti laus
20. nóv.
23. nóv.
Beint flug
*
Bókaðu
núna!
Fáðu úrslitin
send í símann þinn