Morgunblaðið - 10.09.2006, Page 42
42 SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
AÐ skrifa í dagblað eða tímarit á
Íslandi er ekki tekið út með sæld-
inni.
Hverjum sem les prentmiðla að
staðaldri verður fljótlega ljóst að
blöð og tímarit halda enn ákaflega
fram sínu forna kóngsvaldi til stýr-
ingar á umræðu/flæði
hugmynda og til stýr-
ingar á virðingarröð-
inni í hópi þeirra sem
hefja upp skriffærin.
Umræðuefni og
virðingarröð
Þær aðferðir sem
einkum er beitt í
þessu skyni eru flest-
um kunnar: 1. neitun
um birtingu yfirleitt
án skýringar; 2. þver-
neitun á yfirlestri höf-
undar á texta sínum
fyrir birtingu; 3. birt-
ingartíminn: vegna þess að eftir því
sem frá líður dregur úr gildi um-
fjöllunar miðað við slagkraft á rit-
unartíma; 4. birtingarstaðurinn:
vegna þess að með réttu eða röngu
er enn almennt ríkjandi sú sjálf-
hverfa skoðun ritstjórna að umfjöll-
un nær ritstjórnargrein, sem eins
konar konungsstóli blaðsins, beri
sjálfkrafa með sér aukna þungavigt
og auki sjálfkrafa tign ritarans; 5.
rammar/viðhafnarrammar: sem
fanga augað eins og skartklæði og
lauma því inn hjá lesanda að hér sé
merkilegra á ferð.
Málfar og stíll
Aðferðir sem stýra málfari/stíl
enn fjölbreyttari: Úrfellingar afar
fjölbreytt flóra, viðbætur einnig
allra handa, breytingar
alls kyns. Og allt í
þessum flokki meira
og minna í höndum
fárra; og um véla dag
hvern um texta dags-
ins eftir eigin smekk/
tilfinningu þegar vís-
um leiðbeiningum mál-
fræði og orðabóka
sleppir og ósjaldan er
vísað til sem guðlegs
lagabókstafs/heilagrar
ritningar um ritun ís-
lensks máls. Þörf að
árétta að þau lög/sú
guðsorðabók er ekki
til. Og mega/má ekki vera til í lif-
andi máli.
Úrelt vinnubrögð?
Það skrítna við þessa útbreiddu
og alkunnu stjórnunarháttu/áráttu
er það að hún hittir einkum stjórn-
endurna sjálfa/fjölmiðlana sjálfa
fyrir: Upplýstir/óupplýstir lesendur
fá til sín aukna hugmyndafátækt,
sem þeir vilja ekki; aukna rétt-
hugsun, sem þeir vilja ekki; aukið
titlatog, sem þeir vilja ekki; aukna
flatneskju og fábreytni í málfari og
stíl, sem þeir vilja ekki.
Afleiðingin augljós: lesandinn/
viðskiptavinurinn leitar óánægður
annað. Og með honum auglýsand-
inn. Sá er munurinn nú og fyrr.
Stutt dæmi
Eitt prívatdæmi stutt: sunnudag-
inn 3ja september sl. (2006) birtist
eftir mig örstutt grein í Morg-
unblaðinu undir heitinu: Nýjar nátt-
úruperlur! Þennan sama morgun
skrifa ég fallega grein enn styttri
með vísukorni undir heitinu: Hvað
er að gerast hjá Mogganum? og
sendi Morgunblaðinu. Auðvitað. Til-
efnið: alls kyns pensilför í „mál-
verkinu“ um náttúruperlurnar sem
ég kannast ekkert við.
Á mánudegi er ljóst að þessi nýja
gagnrýnisgrein fæst ekki birt. Upp-
gefin ástæðan þessi orðrétt og staf-
rétt: „… get ég ekki séð að greinin
sem þú sendir … eigi erindi við les-
endur Morgunblaðsins.“
Ég skrifa þá strax bréf til við-
komandi/blaðsins uppfullur kurteisi
og inngróinnar virðingar við blaðið
og útskýri nánar að ekki sé neitt
hættulegt í þessari nýju grein; að-
eins örstutt gagnrýni á málfars/
stílfarsoffors hjá Mogga, sem ekki á
við nein rök að styðjast í heilagri
ritningu málfræði né orðabóka.
Jafnframt vísað í afar vinsamlegt
orðaskak við Mogga um sama
nokkru áður og lauk í sátt með
góðri von um mildari handtök mál-
jötna Mogga á máli og stíl undir
fullu nafni og ábyrgð. En það er
ekki við það komandi; greinin skal
aldrei inn óbreytt! Og mér gefinn
kostur á því að senda inn at-
hugasemd um vinnubrögð Morg-
unblaðsmanna. Örstutta; á því má
ég alls ekki villast.
Hvað hefur gerst? Dyggur og
trúr lesandi/viðskiptavinur Morg-
unblaðsins í áratugi má ekki gagn-
rýna fallegum orðum hið augljósa:
að einhver hafi farið offari með mál-
farspensilinn í mína litlu grein um
náttúruperlur, sbr. eftirfarandi
gegnumlýsingu: bætt við smáorð-
unum „Hinn“, „eru“, „við“, „að“,
hnikað til orðaröð, vélað um dag-
setningu og brotið upphaf grein-
arinnar, sem hófst á orðunum „Í
dag“.
Vísukorn
Ég set í litla vísu og birti í minni
smáu og skuggalegu gagnrýn-
isgrein, sem eftir Mogga sjálfum á
ekkert erindi við lesendur; kannski
vísan sé sökudólgur dagsins. Þess
vegna má ég til með að setja hana
aftur við hér, upp á viðbrögð kóngs
og hirðar:
Mogginn enn af móði hart
Meiðir stuggar bláu
Líflega skyggir skart
Skemmir orði smáu
Braut „í dag“ breytti í „hinn“
Bætt inn orði „eru“
Grunur fellur góði minn
Grárri skuggaveru
Mitt málverk eitt úr þessu
Allt í stórri klessu
Stjórnunarfræðin skáni
Að svo mæltu dreg ég mig frá
með von um að stjórnunarfræðin
skáni úr öndveginu; og með sömu
ósk og áður um að mýkist svolítið
harðhendi húskarla á okkar víð-
feðma tungumáli.
Prentmiðlar og tungumálið: Hvað
er að gerast hjá Mogganum?
Jónas Gunnar Einarsson gagn-
rýnir vinnubrögð Morgunblaðs-
ins við frágang aðsendra greina
»… og ósjaldan er vís-að til sem guðlegs
lagabókstafs/heilagrar
ritningar um ritun ís-
lensks máls.
Jónas Gunnar
Einarsson
Höfundur er rithöfundur.
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
Vesturberg
Mjög fallegt 197,4 fm raðhús á 2 hæðum, þar
af 32 fm bílskúr. 4-5 svefnherbergi. Nýlegt
eldhús. 32 fm stór svalaverönd (mögul. á að
byggja yfir). 2 baðherbergi. Frábært útsýni yfir
borgina. VERÐ 39,5 millj.
María og Jón Ægir bjóða þig og þína
velkomna, sími 557 2430.
Opið hús í dag milli kl. 15:00 og 17:00
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
GRÆNLANDSLEIÐ 23 - 113 RVÍK
Glæsileg 117 fm neðri sérhæð á þessum vinsæla
stað. Mjög vandaðar innréttingar, merbau parket og
flísar á gólfum. Sérinngangur. Stór afgirt timburver-
önd út frá stofu. 2 sérbílastæði fylgja. Innst í botn-
langa. VERÐ 29,8 millj.
Indíana og Eyjólfur bjóða þig og þína
velkomna, sími 698 9915.
OPIÐ HÚS Í DAG Á MILLI KL. 14.00 OG 16.00
LAUS VIÐ KAUPSAMNING!
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
SÓLEYJARIMI - 112 RVÍK
50 ÁRA OG ELDRI!
3ja herb. á 3. hæð með stórum suðursvölum. Fullbúin
án gólfefna í góðu lyftuhúsi, gott stæði í bílageymslu.
Mjög falleg íbúð með frábæru útsýni yfir höfuðborg-
ina. VERÐ 23,9 millj.
Pantaðu skoðun:
Ingvar Ragnarsson sölufulltrúi, 822 7300
LAUS VIÐ KAUPSAMNING – SÍÐASTA ÍBÚÐIN!
Fr
u
m
Snyrtilegt og vel við haldið raðhús samtals 242.5 fm.
Stæði í bílageymslu, lítil íbúð í kjallara m/sérinngangi.
Garður í góðri rækt. Barnvænt umhverfi og stutt í alla
þjónustu. Sjá nánar á www.nytt.is
opið
hús
Opið hús í dag. sunnud. 10. sept. kl. 15:00 16:00
Dalsel 26 – 109 Reykjavík
fasteignasala
hamraborg 10 l 200 kópavogur
reynir erlingsson l löggiltur fasteignasali
www.nytt.is l nytt@nytt.is l sími 414 6600 l fax 414 6601
ytt heimilin ®
w w w . n y t t . i s
FASTEIGNASALAN
GIMLI
GRENSÁSVEGI 13
SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali.
OPIÐ HÚS - REYKJAMÖRK 3, HVERAGERÐI - EINBÝLI
Til sölu steinsteypt einb. ásamt tvöföldum bílskúr, alls 172,4 fm. Hér er um
mjög athyglisverða eign að ræða. Lýsing: 3 svefnherbergi. Rúmgóð vinkil-
stofa. Baðherbergi nýlega endurnýjað. Gólfefni: Parket er á gangi, eldhúsi,
stofu og herbergjum, flísar á þvottahúsi, baði og forstofu. Íbúð innréttuð í
bílskúrnum. Hellulögð stétt með snjóbræðslu. Fallegur garður.
Verð 27,8 millj.
Jóhanna og Árni sýna húsið í dag, sunnudag, frá kl. 16:00-17:00.
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli