Morgunblaðið - 10.09.2006, Side 48
26.900.000 Laus fljótlega 108,8 fm
ásamt 38 fm bílskúr, útihús um 200 fm.
2 LANDSPILDUR sem eru í leigu til 25
ára, samtals 23 ha. Tilvalið til trjáræktar
eða beitar.
Þórgunnur s. 483 1047/Helgi Már s. 530 1808
Birkihlíð - 825 Sto
48 SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
w w w . a u s t u r l a n d . i s
Nýtt í einkasölu - Selnes - Breiðdalsvík
Til sölu eða leigu 177,7 fm iðnaðar-
og skrifstofuhúsnæði á Breiðdalsvík.
Mjög rúmgott hús sem hentar vel
fyrir margs konar starfsemi.
Heiðarsel er 800-900 ha. land, 12-
14 km frá Egilsstöðum. Ræktað land
er 31 ha., 126 fm einbýlishús, stór
fjárhús og hlaða ásamt fjölda ann-
arra smærri bygginga. Góð jörð
með skemmtilegu útsýni til Dyrfjalla.
Lagarás 4, 700 Egilsstaðir. S. 580 7905 ● Búðareyri 2, 730 Reyðarfjörður. S. 580 7907
Nýtt í einkasölu - Heiðarsel - Hróarstungu
Hilmar Gunnlaugsson, lögg.fasteignasali.
Nánari upplýsingar á Fasteigna- og skipasölu Austurlands.
Sími 533 4040
Fax 533 4041
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
jöreign ehf
Opið mán.–fim. frá kl. 9–18,
fös. frá kl. 9–17.Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali
SUNNUVEGUR 27 - REYKJAVÍK
Glæsileg efri sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt innbyggðum bílskúr. Stærð alls
221,4 fm. Rúmgóð stofa með arni. Sérlega fallegur garður með timburver-
önd. Góðar svalir með fallegu útsýni yfir Laugardalinn. Mjög gott ástand á
húsi og íbúð. Frábær staðsetning. Verð 56,5 millj.
Kristinn Wiium sölumaður tekur á móti áhugasömum milli kl. 16.30 og
18.00 í dag, sunnudag.
OPIÐ HÚS í dag, sunnudag, kl. 16.30-18.00
Kristinn Valur Wiium sölumaður, s. 896 6913 - Ólafur Guðmundsson sölustjóri, s. 896 4090
Ármúla 21 • Reykjavík • kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
LAUTASMÁRI 51- 201 KÓP.
Frábær staðsetning! Mjög skemmtileg og góð 83,9
fm 3ja herb. íbúð á 1. hæð með suðvestursvölum.
Nýlega viðgert/málað hús og sameign nýtekin í
gegn. Þvottahús í íbúð. Lítið fjölbýli, stutt í alla þjón-
ustu og verslanir. VERÐ 18,9 millj.
Sylvía og Simon bjóða þig og þína
velkomna, sími 555 0336.
OPIÐ HÚS Í DAG Á MILLI KL. 14.00 OG 16.00
FRÁ árinu 1996 hefur Íþrótta- og
tómstundasvið Reykjavíkurborgar
og Orkuveita Reykjavíkur staðið fyr-
ir verkefninu ,,Heilsuborgin Reykja-
vík“ eða ,,Spa City
Reykjavik“. Tilgangur
verkefnisins er að þróa
laugarnar í Reykjavík
frá sundlaug til laugar.
Hér er átt við að laug-
arnar séu ekki ein-
göngu sundlaugar
heldur einnig heilsu-
lindir þar sem borg-
arbúar og aðrir geta
stundað líkamsrækt,
notið hvíldar, slökunar
og samvista með fjöl-
skyldu og vinum. Ann-
ar þáttur verkefnisins
er að gera laugarnar í Reykjavík
áhugaverðar í augum erlendra ferða-
manna; ekki síst yfir vetrarmán-
uðina.
Lífsstílssjúkdómar
Meðal þýðingarmikilla verkefna
sveitarfélaga er að sjá íbúum fyrir
aðstöðu til að stunda heilbrigt líferni;
íþróttir, líkamsrækt af ýmsum toga
og slökun. Helsta heilbrigðisvanda-
mál iðnríkjanna eru svokallaðir lífs-
stílssjúkdómar. Þessir alvarlegu
sjúkdómar stafa af röngu líferni, eins
og nafnið ber með sér. Í þessu sam-
bandi mætti nefna hreyfingarleysi og
rangt mataræði. Íslendingar hafa
ekki farið varhluta af þessari vá. Ís-
lendingar á aldrinum 45–65 ára hafa
þyngst um 7 kg að meðaltali á 7 ár-
um. Ofþyngd getur, sem kunnugt er,
orsakað marga hættulega sjúkdóma.
Í því sambandi mætti nefna syk-
ursýki 2 og hjarta- og æðasjúkdóma.
Lífsstílssjúkdómarnir, eða velmeg-
unarsjúkdómarnir eru samfélaginu
dýrir. Í löndum Evrópusambandsins
er talið að kostnaður
vega sjúkdóma sem
stafa af offitu sé um 7%
af heildarútgjöldum
ríkjanna til heilbrigð-
ismála. Útgjöld til heil-
brigðismála hér á landi
eru um 130 milljarðar
króna. Það er vísbend-
ing um að útgjöld ís-
lenska heilbrigðiskerf-
isins vegna
offitutengdra sjúkdóma
séu um 7 milljarðar
króna. Talið er að 12%
ótímabærra sjúkdóma
séu vegna hreyfingarleysis. Með því
að stunda einhverja líkamsrækt, t.d.
að ganga 5–6 km á dag, hjóla, synda
og borða hollan mat, er hægt að
minnka hættuna allverulega á því að
fá lífshættulega sjúkdóma. Rann-
sóknir síðari ára sýna einnig að lík-
amsrækt dregur talsvert úr hætt-
unni á að fá ýmis krabbamein eins og
t.d. krabbamein í ristil. Vísbendingar
eru einnig um að líkamsrækt og holl
hreyfing dragi úr hættunni á að fá
þunglyndi og heilabilun síðar á æv-
inni.
Við viljum, með þessari umfjöllun
um lífsstílssjúkdóma, benda á mik-
ilvægi lauganna í Reykjavík á sviði
forvarna. Mikilvægt er þó að hafa í
huga aðra vá sem ekki er síður
hættuleg en hreyfingarleysi og rangt
mataræði; en það er streita. Nútíma-
lífshættir valda stöðugt meiri streitu.
Streita veikir ónæmiskerfið og er oft
undirrót alvarlegra sjúkdóma. Þess
vegna er vart hægt að hugsa sér
betri og hollari afþreyingu en kröft-
uga göngu, hjólreiðar og svo sund.
Tilvalið er svo að slaka á í eim- eða
gufubaði og heitum potti. Þreyta og
streita líður úr líkamanum og við
nærum líkama og sál.
Stóriðja Reykvíkinga
Talið er að innan ferðaþjónust-
unnar séu um 7.000 heilsárs störf. Á
síðastliðnu ári voru tekjur af erlend-
um ferðamönnum um 40 milljarðar
króna. Fjölmargir starfa þó í hluta-
störfum eða óbeint í greininni; líkleg-
ast snertir ferðaþjónustan störf
20.000 Íslendinga með einum eða
öðrum hætti. Tekjur af þessari grein
eru því í raun talsvert hærri en 40
milljarðar.
Flestir erlendir ferðamenn sem
koma til Íslands, líklegast um 90%,
koma vegna hinnar fögru náttúru
landsins. Eins og gefur að skilja,
koma því flestir ferðamenn yfir sum-
artímann. Brýnasta verkefni ís-
Hollt, gott og gaman í
Reykjavík
Sigmar B. Hauksson fjallar um
heilbirgiðsmál og heilbrigð-
istengda ferðaþjónustu
» Laugarnar eru þátt-ur af menningu okk-
ar, Reykvíkinga, og
jafnframt ómetanleg
efnahagsleg auðlind; en
einnig uppspretta góðr-
ar heilsu og vellíðunar.
Sigmar B. Hauksson
„SKÓLINN á að tendra hið and-
liga ljós, og hið andliga
afl, og veita alla þá
þekkingu sem gjöra má
menn hæfiliga til fram-
kvæmdar öllu góðu sem
auðið má verða, versl-
unin á að styrkja þjóð-
araflið líkamliga, færa
velmegun í landið, auka
og bæta atvinnuvegi og
handiðnir, og efla með
því afur hið andliga, svo
það verði stofn annara
enn æðri og betri fram-
fara og blómgunar ept-
ir því sem tímar líða
fram.“ (Jón „forseti“ Sigurðsson.)
Fyrir um viku síðan hóf ég nám við
Háskólann á Akureyri og hófst nám
mitt þar á kynningu á starfi hinna
ýmsu brauta í félagsvísinda- og laga-
deild. Eitt var þó sameiginlegt með
tölum forstöðumanna
þessara deilda og voru
það loforð um að það
fjársvelti sem skólinn á
við að etja myndi ekki
bitna á nemendum eða
námsframboði á þeim
brautum sem þeir
stunda nám við. Þetta
þótti mér gott að heyra,
en það er gefið mál að
einhvers staðar þurfti
að hagræða til að svo
færi ekki. Því gripu
stjórnendur skólans til
þess ráðs að sameina
deildir og fækka þar með stjórn-
endum, sem sagt segja upp hæfu há-
skólamenntuðu fólki, sem er einmitt
það sem skólinn vonast til að gera úr
nemendum sínum. Það er því gefið að
óneitanlega hljóti fækkun á hæfum
aðilum til leiðbeiningar nemenda að
einhverju leyti að bitna á þeim.
Sömu sögu er að segja úr her-
búðum Háskóla Íslands þar sem fjár-
skortur mun og hefur leitt þá á sömu
braut hagræðingar sem setur þá enn
fjarri marki sínu sem mennta- og
rannsóknarstofnun að verða meðal
þeirra bestu á heimsmælikvarða. Lít-
ið hefur þó heyrst af slíku frá þeim
menntastofnunum sem eru í nánu
samstarfi við þau fyrirtæki sem verið
hafa að mala gull í hinni að því er
virðist óstöðvandi útrás íslenskra
auðmanna. Því þeir vita að það er
þeirra hagur að gera vel við það fólk
sem ákveður að ganga mennta-
veginn, og líta því fremur á þetta sem
fjárfestingu heldur en útgjöld. En
það er einmitt það viðhorf sem við,
þar sem samkvæmt skilgreiningu er-
um við ríkið, verðum að temja okkur.
En svo ég víki aftur að titli þessa
bréfs þá er í raun fátt annað sem
hægt er að segja að sé allra hagur.
Því að menntun er grunnur alls þess
sem talist getur hagur allra. Mennt-
un bætir gæði heilbrigðisþjónustu og
vísinda, hag aldraðra, aðstæður fatl-
aðra og svo mætti lengi telja, en síð-
ast en ekki síst bætir menntunin hag
komandi kynslóða. Sem gerir það að
verkum að til lengri tíma litið mætti
segja að til verði nokkurs konar
margföldunarstuðull betra sam-
félags. Með því „sýndargóðæri“ sem
nú ríkir er reynt að sannfæra okkur
um að hagur allra sé tryggður með
áframhaldandi góðæri. En ef
Menntun er allra hagur
Hjörtur Ágústsson fjallar um
menntun, góðæri og fjárskort
menntastofnana
»Menntun bætir gæðiheilbrigðisþjónustu
og vísinda, hag aldraðra,
aðstæður fatlaðra og svo
mætti lengi telja …
Hjörtur Ágústsson
Fáðu úrslitin
send í símann þinn