Morgunblaðið - 08.10.2006, Blaðsíða 38
leiðtogar
38 SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Á
rið er 1986. Madonna tröllríður
heimsbyggðinni með smelli sínum
La Isla Bonita, Hólmfríður Karls-
dóttir er ungfrú heimur, Geir H.
Haarde býður sig fram í 5. sæti í
prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík og ný
sjónvarpsstöð, Stöð 2 undirbýr sínar fyrstu út-
sendingar. Engan órar fyrir þeim tíðindum
sem eru í vændum þegar síminn á stjórn-
arheimilinu hringir hinn 29. september: Leið-
togar stórveldanna Sovétríkjanna og Banda-
ríkjanna, sem köldu hefur andað á milli allt frá
lokum seinni heimsstyrjaldarinnar, óska eftir
að funda í henni Reykjavík tæpum tveimur vik-
um síðar.
Daginn eftir greindu Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra og Matthías Á.
Mathiesen utanríkisráðherra frá þessari beiðni
og að íslensk stjórnvöld hefðu gefið grænt ljós
á fundarhöldin. Ronald Reagan Bandaríkja-
forseti og Mikhail Gorbachev, leiðtogi Sov-
étríkjanna, voru á leiðinni til Íslands. Til-
gangur fundarins var sagður vera að undirbúa
fund þeirra í Washington þar sem stefnt var
að því að ná samkomulagi „um takmörkun
vígbúnaðar, ræða svæðisbundin deilumál
og mannréttindamál“, eins og það er orðað
í Morgunblaðinu 1. október.
Hótel tekin leigunámi
Nú var um að gera fyrir eyjarskeggja í
norðri að spýta í lófana því tíu dagar til und-
irbúnings slíks fundar voru vægast sagt í
knappasta lagi. Þannig hafði undirbúningur
fyrir fyrsta fund leiðtoganna tveggja tæpu
ári áður í Genf staðið yfir í þrjá mánuði. Í
upphafi þótti Hótel Saga koma sterklega til
greina sem fundarstaður en einnig voru Kjar-
valsstaðir nefndir sem og Laugardalshöllin og
Árbæjarsafn, eins ólíkir og þessir staðir hljóta
að teljast. Sunnudaginn 6. október var Höfði
fyrst nefndur í Morgunblaðinu sem hugs-
anlegur fundarstaður leiðtoganna sem gekk
svo eftir.
Sjaldan hafa Íslendingar orðið vitni að öðr-
um eins viðbúnaði vegna öryggismála í Reykja-
vík og þessa fyrstu daga í október haustið
1986. Skipulag var að miklum hluta til í hönd-
um öryggisvarða leiðtoganna tveggja en ís-
lenska lögreglan spilaði einnig stórt hlutverk.
Skotheldar bifreiðir voru fluttar til landsins,
víkingasveit lögreglunnar var með aukaæf-
ingar, hús í nágrenni Höfða voru rýmd og
eftirlit með komufarþegum til landsins var
hert til muna, svo eitthvað sé nefnt.
Ekki var tilstandið minna í kringum
fréttamenn sem flykktust að úr öllum
heimshornum. Talið var að um 3.500
manns hefðu komið til landsins vegna
fundarins og var gengið í að huga að gist-
ingu fyrir þennan mannskap um leið og
tilkynnt var um fundinn. Þegar 2. októ-
ber greip ríkisstjórnin til þess ráðs að
taka fjögur hótel í Reykjavík leigunámi
með bráðabirgðalögum, Hótel Loftleiðir,
Hótel Holt, Hótel Sögu og Hótel Esju.
Varð að vísa gestum, sem áttu bókaða gist-
ingu á meðan á fundinum stóð, af hót-
elunum vegna þessa. Einstaklingar keppt-
ust við að bjóða híbýli sín til leigu meðan á
fundinum stæði og norska skemmti-
ferðaskipið Bolette var leigt til landsins og
látið liggja við festar í Reykjavíkurhöfn þar
sem kaupa mátti gistingu fyrir 10 þúsund
krónur nóttina og þótti ekki alveg gefins í þá
daga.
Póstur og sími, sem þá var og hét, stóð
frammi fyrir sínu stærsta verkefni til þessa
vegna þess gífurlega fréttaflutnings sem
vænta mátti af fundinum. „Núna höfum við um
Heimsviðburður í Höfða
Tuttugu ár eru liðin frá því að
sjónir heimspressunnar
beindust að lítilli eyju í norðri
eftir að tilkynnt var um að
leiðtogar stórveldanna, Sov-
étríkjanna og Bandaríkjanna,
myndu funda í höfuðstað
hennar, Reykjavík. Bergþóra
Njála Guðmundsdóttir rifjar
upp aðdragandann, fund-
ardagana og dóm sögunnar.
Vonbrigði Reagan og Gorbachev voru þungir á brún þegar þeir kvöddust eftir síðasta fundinn í Höfða.
Spurningaflóð Rozanne Ridgeway, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna svarar blaðamönnum í
Hagaskóla.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Að hermannasið Bandaríkjaforseti hélt tölu fyrir samlanda sína í herstöðinni í Keflavík áður en hann hélt
af landi brott. Þar var ræðu Reagans ákaft fagnað og ríkti nánast árshátíðarstemmning í salnum.