Morgunblaðið - 14.01.2007, Page 45
tengdasonum sínum og hvað á daga
þeirra dreif og þótti okkur gott að
finna stuðning hans og væntum-
þykju sem hann sýndi með miklum
áhuga á okkar afrekum og arfleifð.
Þínir
tengdasynir.
Á jóladag lést mágur minn Hólm-
geir Björnsson. Um miðjan október
síðastliðinn fór hann í aðgerð á LSH
þar sem fjarlægja átti meinsemd úr
vélinda. Allt frá bernskuárum hafði
Gissi mágur minn, eins og hann var
oft kallaður, haft sterkan mótbyr í
fangið og hafði hann alltaf staðið
hann af sér og ætlaði að gera það að
þessu sinni líka. En enginn ræður
sínum næturstað. Gissi var frá Eski-
firði en settist að í Sandgerði um tví-
tugt þar sem hann vann við beitn-
ingu og sótti sjóinn. Á þessum árum
kynntist hann Hönnu, systur minni,
og varð einn af fjölskyldunni. Gissi
var með fallegt bros og brún augu,
léttur í spori og spaugsamur. Hann
unni góðri tónlist og var góður dans-
herra. Af dugnaði komu Gissi og
Hanna sér upp stóru einbýlishúsi í
Breiðholti við Vesturberg, enda var
hann laghentur og útsjónarsamur. Í
Vesturberginu ólu Gissi og Hanna
upp fjórar dætur sínar, þær Sigur-
borgu Írisi hárgreiðslumeistara,
Kristínu Elísabetu sjúkraþjálfara,
Áslaugu Eiri stjórnmálafræðing og
Vigdísi Birnu hjúkrunarfræðinema.
Allar eru þær góðar og vel gerðar
stúlkur sem bera foreldrum sínum
gott vitni. Heimili Gissa og Hönnu
var opið öllum vinum dætra þeirra
þar sem rædd voru mál líðandi
stundar, hvort sem það varðaði
menntun, ferðalög, sorg eða gleði.
Gissi var maður jólanna og naut þess
að undirbúa þau og áramótin og oft
var glatt á hjalla í Vesturberginu um
áramót. Á seinni árum átti Gissi við
heilsubrest að stríða en lét það ekki
aftra sér í að sinna afabörnum sín-
um, vildi allt fyrir þau gera enda oft
liðtækur við að gæta þeirra. Sjá þau
nú á eftir afa sínum með sorg í hjarta
en minningin um góðan afa er þeim
dýrmæt. Foreldrum okkar systra
reyndist Gissi alla tíð vel og um-
hyggja hans fyrir aldraðri móður
okkar er hér með þökkuð.
Á sólríkum degi í haust áttum við
hjónin góðan dag með Hönnu og
Gissa þegar við fórum austur í
Grímsnes í bústaðinn okkar, borð-
uðum góðan mat og fórum í göngu-
ferð í góða veðrinu. Á heimleið ókum
við um Þingvelli sem skörtuðu sínum
fegurstu haustlitum sem eru
ógleymanlegir. En haustið var líka
komið hjá Gissa mági mínum og nú
er hann farinn og ég veit að horfnir
ástvinir taka vel á móti honum hin-
um megin.
Ég er þakklát Gissa mági mínum
fyrir samfylgdina á lífsins vegi og bið
honum Guðs blessunar á nýjum leið-
um. Innilegar samúðarkveðjur til
ástvina Gissa frá fjölskyldunni
Baugholti 2.
Ó, góða sál, til friðar feginsheima
far þú nú vel á Guðs þíns náðarfund,
en minning þína veit og vinir geyma,
þótt vegir skiljist hér um litla stund.
( Guðl. Guðl.)
Þín mágkona
Hjördís.
Elsku afi. Takk fyrir allar góðu
stundirnar sem þú gafst okkur. Þú
sást daglega á göngu í Vesturberg-
inu, með vagn, mismunandi að lit
reyndar. Oft sóttir þú okkur í stað
mömmu og pabba, til dagmömmu, í
leikskólann, skólann, sundið, fótbolt-
ann, hestanámskeiðin og fleiri staði.
Við lærðum snemma að þekkja göt-
una þína vel enda varstu duglegur að
fara með okkur í gönguferðir, með
viðkomu í sjoppunni, róló og bakarí-
inu.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson)
Þú lifir í huga okkar og hjörtum.
Hanna Kristín, Hólmgeir
Gauti, Helgi Björn, Guðlaugur
Geir, Lína Rut, Agnes Lea og
Ríkharður.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2007 45
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför
ÓSKAR STEINDÓRS.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalarheimilinu
Holtsbúð, Garðabæ, fyrir frábæra umönnun.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Freyja Helgadóttir.
✝
Innilegar þakkir til ættingja, vina og allra þeirra sem
sýndu okkur ómetanlega hlýju og samúð við andlát
og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HREFNU PÉTURSDÓTTUR,
Kópavogsbraut 1B,
áður til heimilis í Lyngbrekku 4,
Kópavogi.
Guð blessi ykkur öll.
Þráinn Þorleifsson,
Pétur Berg Þráinsson, Ingibjörg Skúladóttir,
Guðlaug Þráinsdóttir,
Rúnar Þráinsson,
Þórir Þráinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
✝
Okkar innilegustu þakkir til starfsfólks hjúkrunar-
heimilisins Eirar og allra þeirra er auðsýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eig-
inkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
ÞÓRUNNAR SÓLBJARTAR
FRIÐJÓNSDÓTTUR,
Fannafold 158A,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Björn Ingi Þorvaldsson,
Þorvaldur Björnsson, Guðrún P. Björnsdóttir,
Ingi Þór Björnsson, Helga Þóra Þórsdóttir,
Bjarni Björnsson, Brynja Þorkelsdóttir,
Kristinn Björnsson, Ampon,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur vináttu,
samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, systur og ömmu,
KRISTÍNAR SVEINBJÖRNSDÓTTUR,
Skúlagötu 68,
Reykjavík.
Björk Bjarkadóttir, Kristján Friðriksson,
Stefán E. Bjarkason, Þorbjörg Garðarsdóttir,
Sveinbjörn Bjarkason,
Þórdís Björnsdóttir, Ruggero Cortellino,
Árni H. Björnsson, Þórey Bjarnadóttir,
Anna Sveinbjörnsdóttir, Tómas Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
RANDVERS VIGGÓ ALFONSSONAR
vélstjóra,
Sandholti 26,
Ólafsvík.
Sérstakar þakkir fær Sr. Magnús Magnússon,
sóknarprestur Ólafsvíkurkirkju.
Ingibjörg Hauksdóttir,
Haukur Randversson, Hrafnhildur Jónsdóttir,
Petrína Sæunn Randversdóttir,
Vignir Gunnar Hauksson, Arnar Ingi Hauksson,
Andri Þór Þórarinsson, Randver Þór Þórarinsson,
Vilhjálmur Magnús Þór Þórarinsson.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
SVEINS GUÐLAUGSSONAR,
Skálagerði 9,
Reykjavík.
Katrín Eiríksdóttir,
Kristín Sveinsdóttir, Pétur Á. Carlsson,
Elín Á. Sveinsdóttir,
Sólveig K. Sveinsdóttir, Már G. Pálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát ástkærrar móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HILDAR EMILÍU PÁLSSON,
hjúkrunarheimilinu Eir,
áður Stigahlíð 4,
Reykjavík.
Stefanía Stefánsdóttir, Björn Valgeirsson,
Anna Guðnadóttir,
Stefán H. Stefánsson, Jórunn Magnúsdóttir,
Kittý Stefánsdóttir, Ólafur Ólafsson,
Hrafnhildur Stefánsdóttir, Valur S. Ásgeirsson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem auð-
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar
BJARNA ÓLAFSSONAR,
Herjólfsgötu 40,
Hafnarfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Fríða Ása Guðmundsdóttir
og fjölskylda.