Morgunblaðið - 14.01.2007, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
GEÐHEILSA BARNA OG UNGLINGA
Unglingadeild er bráðadeild og þarf
því að uppfylla kröfur um hámarks-
öryggi. Þetta er eina deild sinnar
tegundar á landinu og sinnir þar af
leiðandi öllum málum sem upp koma
og þarfnast innlagnar. Ekki eru
færri en sex starfsmenn á dag- og
kvöldvakt og tveir á næturvakt.
„Staðan er ákaflega misjöfn á ung-
lingadeildinni frá degi til dags en það
liggur í hlutarins eðli að hér geta orð-
ið ýmsar uppákomur sem meðal ann-
ars tengjast stjórnleysi í hegðun.
Þess vegna er fyllsta öryggis gætt,“
segir Vilborg.
Starfsemi beggja deilda byggist á
öflugri þverfaglegri samvinnu og öll
meðferð er einstaklingsmiðuð þar
sem tekið er mið bæði af þörfum
sjúklinga og fjölskyldna.
Listræn tjáning og sköpun
Á unglingadeildinni er tekið mið af
þörfum unglinga og áhersla lögð á
uppbyggilega vinnu þar sem mikið
fer fyrir listrænni tjáningu og sköp-
un. Unglingarnir þurfa líka að gegna
sínum skyldum, þannig skiptast þeir
á að elda „unglingamat“ tvö kvöld í
viku, auk þess sem þeir bera ákveðna
ábyrgð á þrifum í herbergjum sínum
og þvo þvottinn sinn sjálfir. „Eftir á
tala margir um þetta og eru þakk-
látir fyrir að hafa lært þessa hluti.
Við höfum staðið við hliðina á mörg-
um unglingum sem eru að berja
þvottavél augum í fyrsta sinn,“ segir
Vilborg og brosir.
Á legudeild BUGL er eins og fram
hefur komið rík áhersla á stuðning
við fjölskyldur og veita báðar deildir
heimaþjónustu meðan á innlögn
stendur. Hún felst í því að starfs-
menn sækja fjölskylduna heim og
reyna að styðja hana sem best í sínu
eigin umhverfi. Eftir útskrift af legu-
deild er möguleiki á að heimaþjón-
ustan haldi áfram og þá frá göngu-
deildinni.
Göngudeild BUGL er þverfagleg.
Ýmsir faghópar koma að henni, þ.e.
læknar, sálfræðingar, félagsráð-
gjafar, iðjuþjálfar og hjúkrunarfræð-
ingar, auk listmeðferðarfræðings.
Þeir sem vísa í göngudeildina eru
læknar, einkum sérfræðilæknar á
stofu, s.s. barna- og barnageðlæknar,
en líka heilsugæslulæknar að ein-
hverju leyti. Skólasálfræðingar og fé-
lagsþjónusta sveitarfélaga vísa einn-
ig talsvert í BUGL.
„Við erum svokölluð þriðjulínu-
stofnun en sérstaða okkar sam-
anborið við áþekkar stofnanir erlend-
is er sú að við tökum við tilvísunum
utan heilbrigðiskerfisins líka. Aðilar í
mennta- eða félagsmálakerfinu þurfa
ekki nauðsynlega að vísa á fyrri þjón-
ustustig, heldur geta þeir vísað beint
á sérfræðistigið,“ segir Ólafur yf-
irlæknir.
Hann segir þetta fyrirkomulag
hafa verið við lýði frá upphafi en hafi
orðið snúnara í seinni tíð með aukn-
um fjölda tilvísana (sjá töflu). „Það er
ekki síst vegna þess að við verðum að
geta komið málum frá okkur eftir að
meðferð lýkur og í eftirfylgd. Vanda-
málið er það að félagsmála- og
menntakerfið taka ekki við málum
sem þau telja vera heilbrigðisvanda-
mál. Þá er bara um að ræða eft-
irfylgd innan heilbrigðiskerfisins.
Það getur aftur á móti verið vanda-
mál ef tilvísunin kemur annars stað-
ar frá. Af þessum sökum tel ég
heppilegast að BUGL taki eingöngu
við tilvísunum frá læknum og hef lagt
það til,“ segir Ólafur
Málum sjúklinga er skipt í þrennt.
Í fyrsta lagi bráðamál sem þola enga
bið. Í öðru lagi forgangsmál sem bíða
að jafnaði í nokkrar vikur. Í þriðja
lagi venjulegar tilvísanir sem geta
þurft að bíða í nokkurn tíma. „Því
miður er biðtíminn þar alltof langur,
jafnvel yfir eitt ár,“ segir Ólafur.
„Þann tíma væri æskilegt að stytta
niður í þrjá mánuði sem telst vera
eðlilegur vinnutími mála. En auðvit-
að fer þetta eftir eðli málanna og við
lítum vitaskuld til þess.“
Á undanförnum árum hafa um
áttatíu til hundrað mál verið á bið-
lista göngudeildar.
Margvísleg teymi á göngudeild
Margvísleg teymi starfa á göngu-
deild BUGL, má þar nefna inn-
tökuteymi, bráðateymi, almennt
teymi, taugateymi, átraskanateymi,
fjölskyldumeðferðarteymi og vett-
vangsteymi. Þau sérhæfa sig fyrst og
fremst út frá meðferð sjúklings.
Meðferðin hefst á því að gert er ít-
arlegt mat á stöðu barnsins eða ung-
lingsins, bæði á vettvangi fjölskyldu
og skóla. Að því búnu tekur ýmist við
einstaklingsmeðferð og þjálfun
barnsins, þjálfun foreldranna eða
meðferð allrar fjölskyldunnar.
BUGL býður líka upp á námskeið af
ýmsu tagi.
Inntökuteymi hefur það verk með
höndum að meta hverja tilvísun fyrir
sig og ákveða hvort hún eigi heima
hjá BUGL til meðhöndlunar eða ann-
ars staðar og eins hvort þörf sé á
frekari upplýsingum. Að því búnu
tekur almennt teymi við og hittir
fólkið sem þarf á þjónustunni að
halda.
Hlutverk vettvangsteymisins er að
fara inn á heimili barnanna eftir að
meðferð á BUGL lýkur. Í fyrstu nutu
!"#$ " #%&
"'()*++
+++++,++-++
""
.!"
' " #%
!""
'()*""
+++++,++-++
,
- +
,
,
'"%#! "
'()*
+,
-
-