Morgunblaðið - 14.01.2007, Qupperneq 24
Þ
egar Coco Chanel gerði
litla svarta kjólinn
fyrst vinsælan fyrir um
áttatíu árum olli hann
nokkrum usla í tísku-
heiminum. Núna er þessi fjöl-
breytta flík í fataskápum flestra
kvenna og hefur fengið fastan sess
í New Oxford Dictionary og líka í
enskri útgáfu Wikipediu á Net-
inu. Á enskri tungu er hann
jafnan kallaður „the little
black dress“ eða LBD. LSK
er kannski ekki komið í ís-
lenskar orðabækur en hér-
lendar konur þekkja hugmynd-
ina samt vel.
Þrátt fyrir að hafa náð áttræð-
isaldri er litli svarti kjóllinn jafn
nútímalegur nú og þegar hann
kom fyrst fram á sjónarsviðið.
Hann er tákn hins einfalda, stæl-
lega og nothæfa.
„Það sem hún fann upp á var í
raun meginregla; sú hugmynd að
kjól sé hægt að nota við mismun-
andi aðstæður og hann breytist
með notkun ýmissa fylgihluta,“ sagði
tískusagnfræðingurinn, kennarinn og
rithöfundurinn Florence Muller í
París í samtali við fréttastofu
AFP.
Þangað til á þriðja áratug síð-
ustu aldar þurftu fágaðar konur að
skipta um föt fyrir hvert tækifæri,
stundum oft á dag. Sérstakur
kvöldklæðnaður var nauðsynlegur
og fötin voru oft þung, skrautleg og
óþægileg, svo ekki sé minnst á að
það var meira en eins manns verk að
klæða sig.
Algjört kameljón
Bylting Chanel fólst í því að hægt
var að klæðast sama kjólnum allan
daginn. Klæðnaðurinn var nútíma-
legur og glæsilegur og mögulegt var
að skreyta kjólinn með skartgripum
ef á þurfti að halda.
Upphaflegi LSK var fremur hár í
hálsinn, með löngum þröngum erm-
um og pilsfaldurinn var rétt fyrir of-
an hné. Hann var ekki með neinum
hnöppum, útsaumi eða öðru skrauti.
Á þeim tíma sem hann kemur fram
var ekki vani að klæðast svörtu
nema í sorg, eða ef maður tilheyrði
stétt þjónustufólks eða presta.
Franska útgáfa tímaritsins Vogue
kallaði kjólinn í nóvember árið 1926
„einkennisbúning nútímakonu“.
Bandaríska Vogue sagði hann sígild-
an og líkti honum við Model T frá
Ford, fyrsta bílinn sem almenningur
í Bandaríkjunum hafði efni á.
Alla tíð síðan hefur litli svarti
kjóllinn veitt hönnuðum hátískuhúsa
og keðjuverslana innblástur. Hann
er algjört kameljón; breytir um svip
Yohi Yamamoto Ekki fyrir alla.
eftir efni, lögun og smáatriðum en
er sígildur.
Audrey Hepburn var mynduð í
ýmsum svörtu kjólum. Sá sem
hún klæddist í myndinni Break-
fast at Tiffany’s frá 1961 er
áreiðanlega sá þekktasti en
hönnuður hans var Hubert de Gi-
venchy. Kjólinn var nýlega seldur
á uppboði í London fyrir um 56
milljónir króna, sem var meira en
sex sinnum sú upphæð sem búist
var við.
Haft er eftir Karl Lagerfeld,
aðalhönnuði og listrænum
stjórnanda Chanel allt frá
árinu 1983, að vinsældir LSK
séu tilkomnar vegna þess að
„það er hvorki hægt að klæða
sig of mikið upp né vera ekki
nógu fínt klæddur í litlum
svörtum kjól“. Þessi sérvitri
þýski hönnuður gengur
jafnframt svo langt að
segja að kona líti aldrei illa
út í litlum svörtum kjól og
hún geti alltaf treyst hon-
um. Slíkur kjóll fer heldur
ekki svo glatt úr tísku.
Loks má ekki gleyma
því að svart er afar
grennandi, nokkuð
sem flestar konur
kunna vel að meta.
Meðfylgjandi myndir sýna að
litli svarti kjóllinn lifir góðu lífi en
þær eru allar af kjólum úr vænt-
anlegri vor- og sumarlínu hönn-
uða.
ingarun@mbl.is
Flestar konur eiga áreiðanlega lítinn
svartan kjól í fataskápnum. Kjóllinn
er búinn að festa sig rækilega í sessi í
tískutungumálinu en rúmlega
80 ár eru liðin frá því að Coco
Chanel gerði flíkina vinsæla.
Inga Rún Sigurðardóttir
kannaði þennan einkenn-
isbúning nútímakvenna.
Afslappað Christian Lacroix með fyrirsætu
í litlum, svörtum kjól í lok sýningar hans á
komandi vor- og sumartísku í París.
Áttræður en
ungur í anda
Calvin Klein
Einfaldur og
áhrifaríkur.
Stella
McCartney
Léttur og
lipur.
daglegtlíf
Kvikmyndin foreldrar var gerð
um leið og myndin börn. For-
eldrar verða frumsýndir í þess-
ari viku. >> 30
kvikmyndir
Benín er fátækt land á uppleið.
Þar má í listsköpuninni finna
kraft sem á djúpar rætur í
menningu landsins. >> 32
benín
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
boðar nýja jafnaðarstefnu Sam-
fylkingarinnar og ræðir hlut-
skipti kvenna í pólitík. >> 28
stjórnmál
|sunnudagur|14. 1. 2007| mbl.is
Verið velkomin á fyrirlestraröð
Umhverfisstofnunar
Fyrirlestur um: „Náttúrutúlkun“
Fyrirlesari er: Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir,
þjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum.
Náttúrutúlkun er óformleg fræðsla sem er notuð á útivistar-
svæðum víða um heim. Á Íslandi hefur náttúrutúlkun m.a. verið
notuð af landvörðum á friðlýstum svæðum og er hún kennd á
landvarðanámskeiðum hjá Umhverfisstofnun. Með náttúrutúlkun
er lögð áhersla á að auka skilning og jákvæða upplifun gesta á
náttúrunni með framtíðarverndun hennar í huga.
Allir velkomnir,
heitt á könnunni.
þriðjudaginn 16. janúar kl. 17–18 á 5. hæð
Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24.
Náttúrutúlkun
Givenchy Til þjónustu reiðubúin.
Karl
Lagerfeld
Nútímalegur.
Í HNOTSKURN
»Þangað til áþriðja áratug síð-
ustu aldar þurftu
fágaðar konur að
skipta um föt fyrir
hvert tækifæri,
stundum oft á dag.
»Bylting Chanelfólst í því að
hægt var að klæðast
sama kjólnum allan
daginn.
Reuters