Morgunblaðið - 14.01.2007, Blaðsíða 42
Rannsóknarnámssjóður
Umsóknarfrestur til 1. mars 2007
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
www.rannis.is
Stjórn Rannsóknarnámssjóðs auglýsir almenna styrki úr sjóðnum 2007
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2007
Hlutverk Rannsóknarnámssjóðs er að styrkja rannsóknatengt framhaldsnám að loknu grunn-
námi við háskóla.
Veittir eru styrkir til framfærslu nemenda í rannsóknatengdu framhaldsnámi, sem stundað er
við háskóla eða á ábyrgð hans í samvinnu við rannsóknastofnanir eða fyrirtæki. Styrkurinn til
framfærslu miðast einungis við þann tíma sem nemendur vinna að meistara- eða doktorsverk-
efni sínu. Rannsóknaverkefni skal nema að minnsta kosti 30 einingum af náminu (60 ECTS ein-
ingum) og tengjast rannsóknasviði leiðbeinanda. Sé námið stundað við háskóla erlendis skal
rannsóknaverkefnið lúta að íslensku viðfangsefni og vísindamaður með starfsaðstöðu á Íslandi
taka virkan þátt í leiðbeiningu nemandans. Framlag leiðbeinanda hér á landi þarf að vera veru-
legt og vel skilgreint.
Tilhögun námsins fer eftir reglum einstakra deilda og eftir almennum reglum háskóla. Umsókn-
ir þurfa að áritast af aðalleiðbeinanda og forstöðumanni deildar/stofnunar. Stjórn Rannsóknar-
námssjóðs leitar faglegrar umsagnar um vísindalegt gildi verkefna, framkvæmda- og fjárhags-
áætlun og vísindalega hæfni leiðbeinenda hjá óháðum aðilum með aðstoð vísindanefnda við-
komandi háskóla eða samsvarandi aðila, áður er stjórnin úthlutar styrkjum. Umsækjendur, leið-
beinendur jafnt sem nemendur, eru hvattir til að kynna sér vandlega reglur sjóðsins og þær
kröfur sem gerðar eru til umsækjenda.
Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar fyrir umsækjendur fást á heimasíðu Rannís: www.rann-
is.is eða á skrifstofu Rannís, Laugavegi 13, 101 Reykjavík. Allar nánari upplýsingar veitir Ingi-
björg Björnsdóttir, sími 515 5819, netfang ingibjorg@rannis.is. Umsóknir skal senda í þríriti til
Rannís merktar „Rannsóknarnámssjóður“.
Auk almennra styrkja veitir Rannsóknarnámssjóður FS-styrki í samvinnu við fyrirtæki og stofn-
anir. Sjá nánari upplýsingar um FS-styrki á heimasíðu Rannís.
42 SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
GEORGE W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, flutti ávarp til
þjóðar sinnar síðastliðinn
miðvikudag og tilkynnti, að
hann hygðist fjölga í
bandaríska herliðinu í Írak um
rúmlega 20.000 manns.
Hefur þessi áætlun hans
fengið heldur litlar undirtektir,
jafnt heima fyrir sem erlendis.
Með því að efla herliðið
vonast Bush til, að unnt verði
að koma böndum á ástandið
og ofbeldið í Írak en það er
langmest í höfuðborginni,
Bagdad, og í nágrenni
hennar. Á það eru þó margir
svartsýnir og segja, að
fjölgunin sé of lítil og komi of
seint. Í raun geisi í landinu
borgarastyrjöld milli stærstu
trúflokkanna, súnníta og
sjíta, og bandarísku
hermennirnir geti ekki glímt
samtímis við skæruliða þeirra
fyrrnefndu og vopnaðar sveitir
þeirra síðarnefndu.
Erlendis, til dæmis í Evrópu
og Mið-Austurlöndum, telja
menn áætlun Bush ónýta og
á Bandaríkjaþingi er hún
einnig gagnrýnd.
Íraksáætlun Bush gagnrýnd
AP
Ófriður Sannkölluð óöld ríkir í Írak, einkum í Bagdad og ná-
grenni hennar. Hryðjuverk eru þar daglegt brauð og oft þann-
ig, að bílar hlaðnir sprengiefni eru sprengdir upp.
Magni Ásgeirsson missir af
fyrstu tón-leikum
rokk-sveitarinnar Super-nova
á tónleika-ferðalagi sem
hefst í Flórída á þriðju-daginn,
en Magni og félagar hans úr
Rock Star-þáttunum hita upp
fyrir sveitina. Ástæðan er sú
að Magni fær ekki
atvinnu-leyfi í tæka tíð.
Skipu-leggjendur
tón-leikanna í
Banda-ríkjunum skiluðu ekki
nægjan-lega góðri umsókn
fyrir Magna og því fór sem fór.
Ekki er ljóst hvað Magni
missir af mörgum tón-leikum,
en hann fer út um leið og
hann hefur fengið leyfi.
Missir af
tón-leikum
Magni Ásgeirsson
Menntamála-ráðherra og
rektor Há-skóla Íslands
gerðu í vikunni samning um
þriggja milljarða króna
viðbótar-framlag til skólans.
Peningana á að nota í
rann-sóknir næstu fimm
árin. Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir,
menntamála-ráðherra,
sagði að samningurinn
markaði tíma-mót. Eftir
fimm ár verður fram-lag til
rann-sókna orðið hærra en
fram-lag til kennslu við
há-skólann.
Peningana á að nota til
að bæta rann-sóknir,
kennslu-stofur, les-aðstöðu
og félags-aðstöðu. Líka á
að kaupa bækur og raf-ræn
tíma-rit og fjölga
nám-skeiðum í
framhalds-námi.
Kristín Ingólfsdóttir,
rektor HÍ, segir að Há-skóli
Íslands ætli áfram að vera
besta fjár-festing
sam-félagsins.
Sigurður Örn Hilmarsson,
for-maður Stúdenta-ráðs,
sagði að samningur-inn
væri mikil-vægur fyrir
Há-skóla Íslands og fyrir allt
sam-félagið.
Há-skólinn fær
þrjá milljarða
Morgunblaðið/Kristinn
Samningur Skrifað var undir
á fimmtudag
Verð á mat er 62% hærra á
Íslandi en í 15 ríkjum
Evrópu-sambandsins. Þetta
eru niðurstöður könnunar
hagstofu Evrópu-sambandsins
vegna ársins 2005.
Ríkis-stjórnin mun í næstu
viku kynna hvernig staðið
verður að lækkun tolla á
landbúnaðar-vörum. Ástæðan
fyrir því að ekki er búið að
kynna breyttar reglur er sú að
verið er að klára samning sem
unnið hefur verið að við
Evrópu-sambandið um
viðskipti með
land-búnaðarvörur.
Um 62% hærra
verð á matvörum
Morgunblaðið/Ásdís
Matur er dýr á Íslandi. Sama
á við um föt og húsnæði.
ENSKI knattspyrnu-
maðurinn David
Beckham hefur
samið við LA
Galaxy. Beckham
er leikmaður
spænska liðsins
Real Madrid en í
sumar mun hann
flytja til Los
Angeles og leika í
bandarísku
atvinnumannadeildinni.
Beckham er 31 árs gamall og
hefur hann verið hjá Real
Madrid frá árinu 2003. Hann
var áður í enska liðinu
Manchester United
en á síðasta ári var
hann ekki valinn í
enska landsliðið
eftir heims-
meistaramótið í
Þýskalandi.
Samningur
Beckhams við LA
Galaxy er til fimm
ára en hann er án
efa frægasti
fótboltamaðurinn sem hefur
samið við bandarískt
fótboltalið. Beckham fær um
18 milljarða í laun á næstu
fimm árum frá LA Galaxy.
David Beckham
til Los Angeles
David Beckham
Netfang: auefni@mbl.is