Morgunblaðið - 15.02.2007, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
TÆPLEGA 10 málum sem upp hafa
komið hjá lögreglunni á höfuðborg-
arsvæðinu á undanförnum vikum og
mánuðum hefur verið lokið með
sáttaleið. Lögregluyfirvöld binda
miklar vonir við að góður árangur
verði af þessu úrræði en um er að
ræða tilraunaverkefni sem standa á í
tvö ár.
Hörður Jóhannesson yfirlögreglu-
þjónn sagði að þetta úrræði, sátta-
miðlun, hefði farið af stað í haust.
Reynsla væri ekki komin á það en
menn byndu vonir við að árangur af
þessu yrði góður. Áherslan yrði ekki
síst á yngra fólk sem væri að byrja
að brjóta af sér. Ekki væri gert ráð
fyrir að þeir sem gerst hefðu sekir
um alvarleg eða ítrekuð brot ættu
kost á sáttamiðlun.
Þolandinn kynnist
aðstæðum brotamannsins
Sáttaleið byggist á talsvert ann-
arri hugmyndafræði en við eigum að
venjast í afbrotamálum. Þegar brot
er framið, t.d. rúða brotin í bíl, tekur
lögregla málið að sér. Brotið er rann-
sakað og brotamaðurinn látinn sæta
refsingu. Sá sem brotið framdi og sá
sem brotið er gegn hittast hins vegar
aldrei. Hörður sagði að sáttaleiðin
þýddi hins vegar að gerandinn og
þolandinn hittust og þolandinn gerði
gerandanum grein fyrir hvaða afleið-
ingar brotið hefði haft, bæði fjár-
hagslega og eins tilfinningalega. Þol-
andinn kynntist einnig aðstæðum
brotamannsins. Brotamaðurinn
bæðist afsökunar á athæfi sínu og
ætlast væri til að báðir gengju sáttir
frá fundi. Sáttin gengi einnig út á að
málsaðilar kæmu sér saman um með
hvaða hætti tjónið yrði bætt.
Hörður sagði að sáttaleið gæti
bæði falist í því að málinu væri lokið
án þess að refsing kæmi til, en einnig
gæti hluti af sáttinni falist í því að
brotamaðurinn tæki út refsingu.
Hefur varnaðaráhrif
Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson,
verkefnisstjóri hjá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu, sagði að þetta úr-
ræði, sáttaleið, væri notað í ná-
grannalöndum okkar. Norðmenn
hefðu mikið notað þetta. Sama ætti
við um Finna og Svía. Þessu úrræði
hefði einnig verið mikið beitt í
Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu
og Nýja-Sjálandi. Hann sagðist
binda miklar vonir við þessa leið.
Norðmenn hafa beitt sáttaleið í
meira en 20 ár. Í skýrslu sem Haf-
steinn lagði fram um þessi mál er
hins vegar ekki lagt til að við förum
nákvæmlega sömu leið og Norð-
menn. Þar í landi hafa sjálfboðaliðar
séð um að koma á sáttum, en hér á
landi verða lögreglumenn í þessu
hlutverki.
Talsmenn uppbyggilegrar réttvísi
halda því fram að afbrot valdi skaða
og skapi þar með þarfir hjá þeim
sem verða fyrir beinum eða óbeinum
áhrifum af völdum afbrotsins. Með
sáttaleið er verið að reyna að bæta
þennan skaða eða draga sem mest úr
áhrifum hans með því að koma til
móts við þarfir fólks og þá sérstak-
lega þarfir þolenda. Slíku markmiði
er fyrst náð þegar tekist hefur að
hlúa þannig að fólki að það losni und-
an vanlíðan sinni og hafi fengið sín-
um þörfum eins vel fullnægt og
sanngjarnt og réttlátt þykir.
Sáttamiðlun er talin líklegri til að
hafa sérstök varnaðaráhrif á brota-
mann en hinar hefðbundnu aðferðir
sem beitt er við meðferð refsimála.
Brotamaður fær tækifæri til að sitja
andspænis þeim einstaklingi sem
hann braut gegn og horfast í augu
við afleiðingar gjörða sinna. Komist
þeir að samkomulagi færist brotið
ekki á sakaskrá.
Gerandi og þolandi ræða saman
Í SÍÐUSTU viku var beitt sáttamiðlun í máli pilts
sem sprengdi strætisvagnaskýli með heima-
tilbúinni sprengju í Hafnarfirði. Tjónið var um-
talsvert. Komið var á fundi með piltinum og for-
eldrum hans, lögreglu og eigendum
strætisvagnaskýlisins, þ.e. Hafnarfjarðarbæ.
Samkomulag náðist um að falla frá kröfum gegn
því að pilturinn ynni eina viku hjá þjónustu-
miðstöð bæjarins. Laun hans munu renna upp í
kostnað sem hlaust af sprengjunni.
Sáttamiðlun stendur öllum til boða sem náð
hafa sakhæfisaldri en sé þolandi eða gerandi
yngri en 18 ára skal lögráðamaður samþykkja
að sáttamiðlun verði beitt. Lögreglan telur þetta
nýja úrræði vera til hagsbóta fyrir bæði þol-
endur og gerendur og þar með samfélagið allt.
Sprengdi strætisvagnaskýli
og vinnur í viku hjá bænum
„NÓATÚN hefur engar undanþágur
frá tóbakslögum. Það er alveg ljóst að
starfsfólk okkar má ekki selja tóbak
nema það hafi náð 18 ára aldri,“ segir
Bjarni Jóhannesson, rekstrarstjóri
Nóatúnsverslana, en Morgunblaðinu
barst í gær ábending þess efnis að
ungmenni yngra en 18 ára hefði af-
greitt tóbak í Nóatúnsverslun og bor-
ið því við að verslunin hefði undan-
þágu frá lögum.
Að sögn Bjarna hefur umrætt ung-
menni augljóslega ekki þekkt starfs-
reglur fyrirtækisins nægilega vel og
tekur hann fram að þær hafi verið
áréttaðar við alla verslunar- og vakt-
stjóra. Bendir hann á að í sumum til-
vikum sé starfsfólk á kassa yngra en
18 ára, en vilji viðskiptavinur kaupa
tóbak hjá viðkomandi beri honum að
ná í sér eldri samstarfsfélaga, en
tryggt eigi að vera að ávallt sé starfs-
maður á vakt sem sé eldri en 18 ára.
Í lögum um tóbaksvarnir frá árinu
1984 er kveðið á um að ungmenni
yngri en 18 ára megi hvorki kaupa né
selja tóbak. Í reglugerð 543/2001 er
kveðið á um tímabundnar undanþág-
ur við 18 ára aldurstakmarki vegna
sölu tóbaks. Tekið er fram að und-
anþágur skuli aðeins veita í undan-
tekningartilvikum og aldrei lengur en
til sex mánaða í senn. Óheimilt er að
veita undanþágu vegna ungmenna
yngri en 16 ára. Umsóknum um und-
anþágur skulu fylgja upplýsingar um
að umsækjandi hafi auglýst eftir
starfsmönnum 18 ára og eldri, en eng-
ar umsóknir borist.
Hjá Jakobínu H. Árnadóttur, verk-
efnisstjóra tóbaksvarna á Lýðheilsu-
stöð, fengust þær upplýsingar að til
undantekningar heyrði að sótt væri
um undanþágu frá 18 ára aldurstak-
markinu.
Engin
undanþága
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„FÓTBOLTINN er ákveðin ástríða. Þetta er list-
grein sem er gaman að pæla í enda er þetta af-
skaplega skemmtilegur leikur,“ segir Björn
Kristinn Björnsson, knattspyrnuþjálfari til
margra ára. Björn gekk til liðs við Fylki sl. haust
og þjálfar þar meistaraflokk kvenna í knatt-
spyrnu en þar áður þjálfaði hann hjá Breiðabliki
og var yfirþjálfari hjá KA til margra ára. Björn
er menntaður UEFA-B þjálfari frá KSÍ. Hjá
Breiðbliki leiddi Björn, í samstarfi við Úlfar Hin-
riksson og Guðmund Magnússon, meistaraflokk
kvenna til sigurs, því liðið varð bæði Íslands-
meistari og bikarmeistari. Það sem fáir hins veg-
ar vita í knattspyrnuheiminum er að Björn er
einfættur því hann missti annan fótinn neðan við
hné í umferðarslysi fyrir nokkrum áratugum.
Í samtali við Björn vill hann lítið gera úr þeirri
staðreynd að hann vanti annan fótinn og leggur
áherslu á að það sé engin hindrun, hvorki í þjálf-
unarstörfunum né neinu öðru sem hann taki sér
fyrir hendur enda hafi tækni við smíði gervifóta
fleygt fram. „Mér finnst þetta ekki vera neitt
merkilegt og hef aldrei haldið þessu á lofti sem
knattspyrnuþjálfari. Ég veit ekki af hverju fólki
finnst þetta svona merkilegt. Tannlæknir sem
fær tvær stíftennur er ekkert verri tannlæknir
fyrir vikið. Þetta hefur aldrei pirrað mig eða
truflað í þjálfunarstörfunum því öll kennslan fer
hvort sem er fram í höfðinu,“ segir Björn og tek-
ur fram að miklu erfiðara væri sem þjálfari að
þurfa að kljást við sykursýki á háu stigi eða vera
150 kíló að þyngd.
Mikilvægt að rækta hæfileika sína
Að sögn Björns hefur hann ávallt verið þeirrar
skoðunar að fólk eigi að gera það sem það sé
hæfast til. „Fyrir mér er ekki spurning hversu
gamall þú getur orðið heldur hvernig þú lifir líf-
inu. Við breytum ekki fortíðinni. Við getum hins
vegar haft áhrif á núið og framtíðina. Við þurf-
um að lifa í núinu og einbeita okkur að því sem
við ætlum og viljum. Maður þarf að finna út úr
því í hverju maður er góður og rækta það. Ég tel
mig vera mjög góðan þjálfara sem hefur náð
langt og það kemur fótaskortinum ekkert við.“
Spurður hver sé lykillinn að góðu gengi í
íþróttum og þjálfun þegir Björn stutta stund og
svarar síðan: „Ég get í sjálfu sér ekki svarað því.
Það er hins vegar alveg ljóst að þú nærð ekki
langt, hvort heldur það er í afreksíþróttum eða
hverju öðru sem þú tekur þér fyrir hendur,
nema hafa mjög sterka sjálfsmynd. Ég hef
ákveðna reynslu af örlítilli brekku sem ég hef
þurft að krafla mig upp og kannski oftar en
margur annar. Þetta er svo sem ekki alltaf auð-
velt en þannig er það líka í íþróttum. Þetta er
ekkert alltaf gaman og auðvelt þegar þú ert
komin upp í afreksflokk,“ segir Björn og bætir
við að það sem skili honum langt sé mikill áhugi
á fótbolta sem íþrótt, enda hafi hann stúderað
greinina af miklum áhuga. „Mér hefur gengið af-
skaplega vel og skilað bæði ánægðum iðkendum
og sigurvegurum,“ segir Björn og tekur fram að
ein besta umbunin fyrir þjálfara sé þegar þeim
sem hann hefur þjálfað vegnar vel.
Þess má að lokum geta að Björn er ekki eini
knattspyrnuáhugamaðurinn í fjölskyldunni, því
báðar dætur hans, Björk og Laufey, hafa stund-
að íþróttina af miklum kappi og voru t.a.m. í 17
ára landsliðinu og eru nú í 19 ára landsliðinu.
Laufey þjálfar hjá Breiðabliki og Björk hjá
Fylki.
Besta umbun þjálfara er
þegar leikmönnum vegnar vel
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sterkur karakter Björn Kristinn Björnsson knattspyrnuþjálfari ásamt meistaraflokki kvenna hjá Fylki.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sett af stað tilraunaverkefni sem byggist á svokallaðri sátta-
leið Tæplega 10 málum hefur lokið með sátt Lögreglan bindur miklar vonir við þetta úrræði
MIKLIR skruðningar bárust frá
Blöndu í Húnaþingi vegna jaka-
burðar í gærkvöldi. Ruddi áin sig
með miklu afli og telst þetta óvenju-
legt á þessum tíma árs ekki síst í
ljósi þess að nú er ekki hláka í
Húnaþingi.
Þegar mest lét þá stóð áin hátt og
vestan árinnar munaði ekki miklu
að hún færi upp á Blöndubyggðina.
Fljótt sjatnaði þó í ánni og streymdi
hún lygn til sjávar.
Jakaburður
í Blöndu
♦♦♦