Morgunblaðið - 15.02.2007, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007 51
menning
BRESKA rokksveitin Arctic Mon-
keys kom, sá og sigraði við afhend-
ingu bresku tónlistarverðlaunanna
í Lundúnum í gærkvöldi. Sveitin
var valin besta breska hljómsveitin
og plata þeirra, Whatever people
say I am, that’s what I’m not, var
valin besta breska platan. Þeir fé-
lagar sáu sér þó ekki fært að mæta
til að taka við verðlaununum.
Þá hlaut bandaríska sveitin The
Killers einnig tvenn verðlaun, sem
besta alþjóðlega hljómsveitin og
plata þeirra, Sam’s Town, var valin
sú besta á alþjóðlegum vettvangi.
James Morrison hlaut verðlaun
fyrir besta frammistöðu karla á
tónlistarsviðinu á Bretlandi og Amy
Winehouse hlaut sömu verðlaun í
flokki kvenna. Það voru hins vegar
þau Justin Timberlake og Nelly
Furtado sem hlutu verðlaun sem
bestu alþjóðlegu tónlistarmennirnir
og skoska sveitin The Fratellis fékk
hlustendaverðlaun Radio 4 sem
besta hljómsveitin. Rokksveitin
Muse þótti besta tónleikasveitin að
mati hlustenda Radio 2. Bestu ný-
liðarnir á alþjóðlegum vettvangi
eru hljómsveitin Orson frá Banda-
ríkjunum, en það voru áhorfendur
MTV-sjónvarpsstöðvarinnar sem
kusu. Þema hátíðarinnar í ár var
hatur og ást, en á öðru sviðinu voru
flutt tónlistaratriði sem tengjast
hatri og á hinu ástaratriði. Hljóm-
sveitin Oasis tróð upp á fyrrnefnda
sviðinu og Take That á á því síð-
arnefnda, en Oasis fékk sérstök
heiðursverðlaun fyrir framúrskar-
andi framlag sitt til tónlistar.
Apar og
morðingjar
sigursælir
Reuters
Svart og hvítt Hljómsveitirnar The Killers og Take That komu báðar fram, en sú fyrrnefnda hlaut tvenn verðlaun á hátíðinni í gærkvöldi.
Sáttur James Morrison var valinn
besti breski tónlistarmaðurinn.
Svalur Noel Gallagher á rauða
dreglinum í Lundúnum.
Koss Nelly Furtado var valin besta
alþjóðlega tónlistarkonan.