Morgunblaðið - 03.06.2007, Síða 1

Morgunblaðið - 03.06.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 149. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is SUNNUDAGUR Í FARAR- BRODDI PÚSLUSPIL KATR- ÍNAR S. BRIEM VIÐBURÐARÍK ÆVI >> 30 ALDRAÐ UNGSKÁLD LEIFUR EIRÍKSSON 100 ÁRA Í DAG LÍFIÐ Á HRAFNISTU >> 40 MÁ ÞETTA? Á TÖSKUM, BOLUM OG GLÖSUM Í FÁNALITUNUM >> 6 Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is KOLSVÖRT skýrsla Hafrannsóknastofnunarinn- ar leggur til að hámarksafli á næsta fiskveiðiári verði aðeins 130.000 tonn, sá minnsti síðan 1937. Það er 63.000 tonnum minna, um 30%, en kvótinn á þessu fiskveiðiári. Auk þess leggur stofnunin til að veitt verði 20.000 tonnum minna af ufsa og 10.000 tonnum af ýsu. Gangi þessar tillögur eftir þýðir það um 15 milljarða tap útflutningstekna í þorskinum einum saman miðað við gengi og afurðaverð nú. Það er um þriðjungs samdráttur frá því sem var á síðasta ári, en þá skilaði þorskurinn um 50 milljörðum króna í útflutningstekjur. Við þetta má svo bæta um 5 milljarða samdrætti vegna minni afla af þorski og ýsu. Þetta þýðir um 15% samdrátt í heildarútflutningi sjávarafurða miðað við útflutn- inginn á síðasta ári. Hvergi er lagður til aukinn afli nema í humri, um 100 tonn frá aflamarki þessa árs. Þá leggur stofnunin á ný til upphafskvóta í loðnu, sem að þessu sinni verður 205.000 tonn. Um stöðu þorskstofnsins segir í skýrstu stofn- Kolsvört veiðiráðgjöf Hafró  Hafrannsóknastofnunin leggur til 63.000 tonna niðurskurð í þorskveiðum  Leiðir til 15 milljarða samdráttar í útflutningstekjum fyrir þorskinn  Samdráttur í afla af ýsu og ufsa gæti leitt til 5 millj- arða samdráttar  Stærð veiðistofns þorsks talin nálægt sögulegu lágmarki og nýliðun er slök unarinnar um ástand og horfur nytjastofna sjávar fyrir næsta fiskveiðiár, að stærð veiðistofnsins sé nú metin nálægt sögulegu lágmarki og stærð hrygningarstofnsins er aðeins helmingur þess sem talið er að gefi hámarksafrakstur. Nýliðun síðustu sex árin hefur verið slök og meðalþyngd allra aldurshópa er í sögulegu lágmarki. Forstjóri stofnunarinnar segir í inngangi að skýrslunni að ljóst sé að án stefnubreytingar við nýtingu þorsk- stofnsins sé hvorki að vænta stækkunar hrygning- arstofnsins né aukinnar nýliðunar, sem sé for- senda aukinna aflaheimilda á komandi árum. | 6                               NÚRSÚLTAN Nasarbajev hefur verið við stjórnvölinn í Kasakstan frá því landið fékk sjálfstæði eftir hrun Sovétríkjanna. Stjórnmál þar í landi eru nú eitt fjölskyldudrama. Einvaldurinn í Kasakstan ÁSAKANIR og gagnásakanir ein- kenna mál Alexanders Litvínenkós, sem var myrtur í London í nóv- ember. Fyrir átta árum lýsti hann ótta sínum á myndbandi. Írafárið vegna Litvínenkós „FASISMI“, „fantaskapur“, „for- sjárhyggja“ og „félagsverkfræði“ voru orð, sem heyrðust á Ölstofunni síðasta kvöldið sem þar mátti reykja. Nú er reykurinn bannaður. Síðasti reykinga- dagurinn HVERNIG breytist fiskur við geymslu? Þetta er ein af þeim spurningum sem hægt er að fá svör við á Hátíð hafsins við Reykjavíkurhöfn í dag. Þar verður m.a. sýndur heill þorskur; nýr, 2-3 daga gamall og 10 til 12 daga gamall og gefst gestum kostur á að lykta af flökunum og finna mun á lykt misferskra flaka. Í dag verður einnig sjómannamessa í Dómkirkjunni, hægt verður að fara í hvalaskoðun, skoða varðskip við Faxagarð og furðufiska á Miðbakka. Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur víða um land í dag. Dagskráin er fjölbreytt og lögð er áhersla á að höfða jafnt til barna og þeirra sem eldri eru. Tilgangurinn með deginum er að kynna starf sjómanna og jafn- framt að efla samhug sjómanna. Sjómannadagurinn var fyrst haldinn í Reykjavík og Ísafirði 1938 og breiddist út um allt land á fáum árum. Talið er að um tvö þúsund sjómenn hafi tekið þátt í skrúðgöngu í Reykjavík árið 1938, en á seinni árum hefur hátíðahöldunum víða verið breytt. Morgunblaðið/ÞÖK Afli Sigurður Jón Sigurðsson, sjómaður í Vestmannaeyjum, var ánægður með fiskinn sem hann kom með að landi. Viltu finna lykt af nýj- um og gömlum þorski? Sjómannadegi fagnað um allt landVIKUSPEGILL „ÞAÐ er stór- merkilegt að við skulum ekki vera búnir að eyða þorskinum gjör- samlega. Mér finnst veiðar síð- ustu árin hafa verið alltof miklar og of mikið gert af því að veiða æt- ið frá þorskinum, loðnu, rækju og kolmunna,“ segir Kristján Pétursson, skipstjóri á Höfrungi III. AK, í viðtali í Morg- unblaðinu í dag. „Það er bara bull þegar menn halda því fram að það sé allt fullt af þorski í hafinu og við veiðum alltof lítið. Sem betur fer hefur þorsk- urinn staðið sig með eindæmum vel því þetta virðist vera ótrúlega sterkur stofn.“ Kristján segir að til þess að ná upp þorskstofninum hér við land þurfi að friða ætið og minnka álag- ið enn meira en gert er. Margir haldi því fram að það sé óþarfi að takmarka fiskveiðar. Það sé því miður ekki svo. „Veiðunum verður að stjórna,“ segir Kristján. | 36 Veiðarnar of miklar Kristján Pétursson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.