Morgunblaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 40
trúarbrögð
40 SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
A
llur bekkurinn var
kvaddur í herinn. Við
vorum sextán ára og
bækistöðvar okkar
voru í miðri Hamborg.
Stuttu eftir að við hófum herþjón-
ustu, í júlí árið 1943, var borgin
lögð í rúst. Ég var umkringdur
dauða og þjáningum og það hafði
mikil áhrif á mig. Ég varð heltek-
inn af vangaveltum um lífið, til-
gang þess, og merkingu þess að
lifa hörmungar af þessu tagi af.“
Svona lýsir guðfræðingurinn dr.
Jürgen Moltmann reynslu sinni af
þjónustu í þýska hernum í heims-
styrjöldinni síðari.
Moltmann, sem er einn kunnasti
og áhrifamesti guðfræðingur sam-
tímans, kom til Íslands í síðustu
viku og flutti fyrirlestra um kenn-
ingar sínar í Háskóla Íslands og í
Skálholti.
Trúaður stríðsfangi
Eftir stríð var Moltmann stríðs-
fangi bandamanna í þrjú ár, fyrst í
Belgíu, þá í Skotlandi og loks á
Englandi. Í belgíska fangelsinu
höfðu fangarnir lítið við að vera,
og Moltmann var kvalinn af sam-
viskubiti og minningum af stríð-
inu. Bandarískur herprestur gaf
honum eintak af Nýja testament-
inu og hann gluggaði í það af ein-
skærum leiða. Smám saman heill-
aðist hann af boðskapnum sem þar
var að finna og að lokum fór svo
að hann tók trú. „Ég fann fyrir
nærveru Guðs á bak við gaddavír-
inn,“ segir hann.
Moltmann var ekki vel að sér í
kristnum fræðum og kynnti sér
þau því frá grunni. Í fangabúð-
unum opnaðist honum nýr heimur
trúar og þar lagði hann grunninn
að guðfræðilegri hugsun sinni.
Týndi sonurinn
Moltmann var alinn upp við trú-
leysi og vísindahyggju. Hann leit
mjög upp til Alberts Einstein og
var hrifinn af þýskum bók-
menntum, sérstaklega verkum Go-
ethes og Nietzsches. „Eftir stríðið
og reynslu mína í fangabúðunum
varð ég, vegna trúarinnar, svarti
sauðurinn í fjölskyldunni. Fyrir
stríð hafði ég hugsað mér að læra
raungreinar. Guðfræði og trúar-
brögð voru mér fjarri. Hefði ég
ekki gengið í gegnum það sem ég
upplifði í stríðinu væri ég líklega
stærðfræðingur eða eðlisfræð-
ingur. Kannski hefði ég unnið að
þróun kjarnavopna eða byggingu
orkuvera.“
Þess í stað lærði hann guðfræði
og lauk doktorsprófi frá Gött-
ingen-háskóla þegar hann var 26
ára. Fyrstu fimm árin eftir út-
skrift var hann prestur nærri
Bremen. „Þetta var lítið presta-
kall, um fimmhundruð sálir og
nærri þrjú þúsund kýr,“ segir
Moltmann. „Hvort kýrnar hafa sál
er önnur spurning,“ bætir hann
við lágum rómi og brosir.
Að þessum fimm árum liðnum
kenndi hann við ýmsa þýska há-
skóla. Hann gegndi virtri og eft-
irsóttri stöðu guðfræðiprófessors
við Tübingenháskóla í nærri þrjá-
tíu ár áður en hann settist í helg-
an stein árið 1994. Nú ferðast
hann um allan heim og flytur fyr-
irlestra.
Von og kærleiksríkur Guð
Trúarkenningar og hugmyndir
Moltmanns eru ávöxtur viðleitni
hans til að sætta sig við og skilja
reynslu stríðsáranna. „Guðfræði
mín byggist ekki á hefðbundnum
kristnum fræðum eða getgátum
um eðli Guðs, heldur speglar hún
reynslu mína og þrár. Grunnstef
hennar er virðing fyrir lífinu,“
segir hann.
Útgangspunktur hans er að Guð
sé ekki fjarlægur og sinnulaus
heldur ástríkur og samúðarfullur.
Þar af leiði að maðurinn sé ekki
einn heldur sé Guð hjá honum í
öllum þrautum.
„Þjáningar eru jákvæðar, því sá
Von og þjáning
guðfræðingsins
Morgunblaðið/Sverrir
Stríðsfangi Moltmann tók trú í fangabúðum í heimsstyrjöldinni síðari. Eiginkona hans er einnig þekktur guðfræðingur og hann segist vera giftur „ömmu þýsku kvennaguðfræðinnar.“
Guðfræðingurinn Jürgen Moltmann tók trú þegar
hann var stríðsfangi í heimsstyrjöldinni síðari. Hann
sagði Oddnýju Helgadóttur frá lífshlaupi sínu og
áhyggjum af spillingu umhverfisins og heift í trúar-
brögðum.
Heimsferðir bjóða
frábært tilboð á síð-
ustu sætunum til
Montreal í júní.
Þetta er einstakt
tækifæri til að njóta
lífsins í þessari stór-
kostlega spennandi
borg sem er önnur
stærsta borg Kan-
ada. Í borginni mæt-
ast gamli og nýi ti-
minn, rík sagan og
iðandi nýbreytnin á
einstaklega skemmtilegan hátt. Það er frábært að skoða sig um, ver-
sla og njóta lífsins í Montreal; fallegar byggingar, endalaust úrval
verslana og veitingastaða og mjög hagstætt verðlag. Gríptu tækifær-
ið og smelltu þér til Montreal og
njóttu þess besta sem þessi
spennandi heimsborg hefur að
bjóða.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Montreal
Kanada
frá kr. 29.990
Síðustu sætin í júní
Verð kr. 29.990 -
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með
sköttum í júní.
Verð kr. 49.990 -
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tví-
býli á Travelodge Montreal m/morgunverði í 7
nætur, 21. og 28. júní.
Verð kr. 59.990 -
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tví-
býli á Best Western í 7 nætur, 21. og 28. júní.
Munið Mastercard
ferðaávísunina Verð kr. 59.990 - 4 nætur í
Montreal og 3 nætur í Mont Tremblant
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tví-
býli á Travelodge Montreal m/morgunverði í 4
nætur og 3 nætur á La Tour des Voyageurs í
Mont Tremblant, 21. og 28. júní.