Morgunblaðið - 10.06.2007, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2007 59
UMRÆÐAN
RAGNAR Stefánsson er tungu-
lipur maður, sem lagar staðreyndir
sér í hag og fer lítið eftir reglum,
erfiður maður. Þeir, sem ekki
þekkja vel til, myndu ætla, að allt
væri í stakasta lagi í stjórn LBL, og
gagnrýni mín því ekki á rökum reist.
Því miður er ekki svo.
Er hægt að búast við lýðræð-
islegum vinnubrögðum
í landsfélagi, þar sem
bæði formaður, Ragn-
ar Stefánsson og vara-
formaður, Sveinn Á.
Jónsson, eru báðir úr
sama aðildarfélaginu,
Framfarafélagi Dal-
víkurbyggðar, FD, og
fagmenn á sínu sviði
sem útsmognir pólitík-
usar af gamla skól-
anum?
Hætt er við, þegar
svona er í pottinn búið,
að orðið lýðræði sé í
raun öfugmæli og ein-
ræði eigi betur við.
Staðreyndin er, að FD er aðeins
eitt af 19 skráðum aðildarfélögum
LBL og formaður og varaformaður
styðja hvor annan 100% á stjórn-
arfundum. Af því leiðir, að valda-
jafnvægi innan aðildarfélaganna í
stjórn LBL er eins lítið og hugsast
getur. Slíkt býður upp á misbeitingu
valds og spillingu eins og raun ber
vitni.
Á fyrsta stjórnarfundi LBL, eftir
að þeir félagar Ragnar og Sveinn
tóku við, valdi Ragnar varaformann
sinn, Svein á Kálfsskinni, sem ritara
fundarins.
Á fundinum bar formaður fram þá
ósk sína að stytta tveggja ára verk-
efni, Unglingurinn á landsbyggð-
inni, úr tveimur árum í eitt ár.
Þegar hér var komið sögu voru
skólarnir vel á veg komnir með að
vinna verkefnið á grundvelli tveggja
ára eins og þeir höfðu samþykkt að
taka þátt í.
Mér brá í brún og sagði, allt of
seint í rassinn gripið að fara breyta
verkefninu á miðjum ferli. Málið var
ekki meira rætt!
Í fundarlok bað ég fundarritara
að lesa upp fundargerðina. „Nei,“
sagði Sveinn, „það er enginn tími til
þess“. Stuttu síðar biður Sveinn
stjórnarmenn að skrifa undir fund-
argerðina, sem þeir gerðu.
Illur grunur sótti að mér. Ég bað
Svein að senda mér fundargerðina,
sem hann gerði ekki!
Í þessari fundargerð Sveins stóð
að samþykkt hefði verið að stytta
verkefnið um eitt ár. Staðreyndin
var að tillaga þess efnis var aldrei
borin upp.
Fyrsti aðalfundur LBL, eftir hall-
arbyltinguna 2003, var haldinn í
Dalvíkurbyggð 2004.
Því var augljóst að for-
maður og varafor-
maður ætluðu sér að
nýta tækifærið og
draga taum heima-
byggðarinnar í sinni
formannstíð.
Frá Húnavatnssýslu
sitja líka tveir menn í
aðalstjórn og næsti að-
alfundur LBL var
haldinn á Húnavöllum,
rétt við túngarðinn á
Kagaðarhóli hjá Stef-
áni Á. Jónssyni, gjald-
kera LBL. Bendir
þetta ekki til spillingar, einhvers
konar verðmætaskipta á milli sitj-
andi manna í stjórn? Enda vill helst
enginn þeirra fara úr stjórn LBL.
Er ekki óeðlilegt, að fjórir menn
af sjö í aðalstjórn komi af svo til
sama blettinum af landinu? Ég hef
stundum verið spurð að því, hvort
LBL sé aðallega fyrir Norðlend-
inga? Það er eitthvað til í því.
„Ég vil verða formaður,“ sagði
Ragnar, þegar ég var að undirbúa
stofnun Framfarafélags Dalvík-
urbyggðar árið 2001. Stuttu seinn
heyrðist: „Ég vil vera formaður í
LBL“. Í þriðja sinn endurtók sama
sagan sig, þegar ljóst var, að for-
mennskan í Hela Norden ska leva,
HNSL, sem eru heildarsamtök
frjálsra félagasamtaka á Norð-
urlöndum, átti að ganga til Íslands.
Sér til stuðnings fékk hann sam-
þykki meðstjórnenda sinna í LBL.
Þessi aðferð þekkist vel innan
stjórnmálaflokka, en hafði aldrei
verið notuð hjá HNSL. Fulltrúar
kjörnir á landsfundi sinna félaga til
að gegna erlendum samskiptum
höfðu hingað til verið álitnir hafa
fullt umboð til að taka við for-
mennsku, þegar röðin kæmi að við-
komandi landi. Ragnar Stefánsson
hafði hvorki umboð landsfundar
LBL né sat í stjórn HNSL. Eftir
Tromsö-fundinn skrifaði Ragnar
bréf til stjórnarmanna í HNSL, og
lýsti ánægju sinni með fundinn, án
nokkurra undirtekta, sem er mjög
einstakt.
Ef af líkum má ráða, eru menn í
HNSL alls ekki ánægðir með Ragn-
ar Stefánsson sem formann.
Vandræðin, sem upp komu í
Tromsö, voru aðeins vegna afskipta
Ragnars. Þegar boð kom frá lands-
kjörnum fulltrúa erlendra sam-
skipta í Noregi bæði til mín, sem
landskjörins fulltrúi erlendra sam-
skipta í LBL og hans líka, tók Ragn-
ar málið í sínar hendur í stað þess að
láta mig um það í samvinnu við sig.
Hann tilkynnti, að hann einn kæmi á
vegum LBL og neitaði að tilkynna
komu mína, sem var nauðsynlegt
formsatriði í Noregi. Þess vegna var
mér vísað út af fundinum!
Því miður er þetta ekki eina dæm-
ið um lélega framkomu Ragnars á
fundum hjá HNSL.
Að stjórna heimasíðu LBL er
óskadraumur stjórnmálamannsins,
Ragnars Stefánssonar. Þar gefst
honum tækifæri til að koma fram
með hvers kyns áróður, oft dulbúinn
í formi upplýsinga. Útsmognir
stjórnmálamenn sækja í að nota
þann miðil sér í hag. Sterkasta vopn
þeirra er fólgið í því, sem þeir sleppa
að birta, upplýsingum, sem þeir
telja vera sér í óhag. Þannig geta
þeir misnotað vald sitt á áhrifaríkan
hátt.
Frá fyrstu tíð hefur Ragnar lagt
mesta áherslu á að pólitískir flokks-
félagar hans sitji í valdastöðum inn-
an LBL. Núna eru víst fjórir af sjö
sitjandi mönnum í stjórn LBL,
Vinstri grænir! og verkefni, sem
þessir menn stjórna fá fjárstuðning,
en önnur ekki.
Þessu þarf að breyta.
Landsbyggðin lifi
Fríða Vala Ásbjörnsdóttir svar-
ar grein Ragnars Stefánssonar »Ef af líkum má ráða, eru menn í
Hela Norden ska leva,
HNSL, alls ekki
ánægðir með Ragnar
Stefánsson sem
formann sinn.
Fríða Vala
Ásbjörnsdóttir
Höfundur er stofnandi og fyrsti for-
maður LBL og fomaður LBVRN.
MIKIÐ er ég hissa á
allri umræðunni um
reykingabann á veit-
ingastöðum. Hún snýst
allt of mikið um hvar
fólk eigi að fá að reykja
og hvernig reyk-
ingaskýli veitingamenn
geti sett upp.
Miklu betra væri að
nota tækifærið og tala
um hvernig fólk getur
hætt að reykja.
Staðreyndin er sú að
mikill meirihluti reyk-
ingafólks vill hætta.
Reykingabannið á veit-
ingastöðunum er enn
ein hvatningin til að
drífa í því, enda hefur
kannski aldrei verið
auðveldara að hætta en
einmitt núna.
Aðalmálið er auðvit-
að að vilja hætta og
ákveða síðan dagsetn-
inguna. Bestur árang-
ur næst yfirleitt með
því að nýta sér stuðn-
ing. Að hætta á vilja-
styrknum einum saman getur reynst
erfitt. Rannsóknir sýna að innan við
10% tekst að ná langvarandi árangri
án frekari hjálpar.
Stuðningurinn getur verið í formi
námskeiða eða stuðningsviðtala
ásamt notkun lyfja. Hægt er að velja
þá leið að hætta í áföngum. Fyrsti
áfanginn gæti verið að losna undan
reykingavananum og
takast síðar á við nikó-
tínfíknina. Það er t.d.
hægt að gera með hjálp
nikótínlyfja.
Best er auðvitað að
losna við reykingarnar
og fíknina fyrir fullt og
allt. Til að tryggja góðan
árangur er gott að leita
stuðnings á námskeiði
eða í einkaviðtölum.
Ekki er síður ástæða til
að tala við lækni um
nikótínlaus lyf sem slá á
nikótínfíknina og frá-
hvarfseinkennin. Á
þessu sviði hafa orðið
framfarir sem létta róð-
urinn fyrir þá sem vilja
hætta að reykja. Góðar
ráðleggingar og yfirlit
um úrlausnir fyrir reyk-
ingafólk er jafnframt að
finna á vefsíðum Dokt-
or.is og Lýðheilsustöðv-
ar.
En umfram allt, svo
maður leyfi sér nú að
stela þekktu slagorði –
ekki gera ekki neitt.
Rétta tækifærið
Miklar framfarir hafa orðið
fyrir þá sem vilja hætta að
reykja segir Anna Dagný Smith
Anna Dagný Smith
»Mikill meiri-hluti reyk-
ingafólks vill
hætta. Reyk-
ingabannið á
veitingastöð-
unum er enn ein
hvatningin til að
drífa í því.
Höfundur er hjúkrunarfræðingur og
sviðsstjóri Heilsuverndarstöðvar
InPro.
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
Falleg og vel skipulögð íbúð í mikið endurnýjuðu
húsi alls 122,6 fm - 5 herb. íbúð á 2. hæð á
þessum vinsæla stað á Framnesvegi, við Lág-
holtsveg vesturbæjarmegin við Hringbraut.
Möguleiki á 4. svefnh. Mjög eftirsóknaverð
staðsetning. Verð 30,9 millj.
Alma og Ásgeir bjóða ykkur velkomin
551 9697 / 865 0503
OPIÐ HÚS! FRAMNESVEGUR 65 – 101 RVK
í DAG MILLI KL. 14:00 OG 16:00
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401.
Opið hús í dag á milli kl. 15-16
Hlíðarhjalli 41e - Kópavogur
Falleg efri sérhæð með fallegu útsýni. Þrjú mjög rúmgóð svefnherbergi þar af
hjónaherbergi með fataskáp og útgengt á austursvalir. Einnig útgengt á suður-
svalir frá stofu sem er með arinn. Eldhús með sérsmíðuðum innréttingum,
granít í borðplötu og sólbekkjum. Eign fyrir vandláta. V. 39,9 millj. 7594
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hraunás 9 - Gbæ. Einbýli
Opið hús í dag
frá kl. 14.00 til 15.00
Hraunhamar fasteignasala hefur í sölu glæsilega hannað
einbýli teiknað af Albínu Thordarson arkitekt. Eignin er
229,4 fm á 2 hæðum þar af er innb. tvöfaldur 43,1 fm bíl-
skúr með aukinni lofthæð, einnig fylgir eigninni ca.30 fm.
herbergi með snytingu á neðri hæð. Eignin er mjög vel
staðsett á frábærum útsýnisstað innst í botnlanga í Ása-
hverfi í Garðabæ. Eignin skiptist í forstofu, hol, gest-
asnyrtingu, herbergi, þvottahús, og bílskúr. Á efri hæð er stofa, borðstofa, eld-
hús, gangur, 3 herb. baðherb. hjónaherb. með baðherb. og fataherb. inn af. Inn-
réttingar eru allar glæsilegar sérsmíðaðar úr Hlyn og gólfefni eru flísar.Gólfhiti er
í stærstum hluta hússins. Lýsing er hönnuð af Lúmex. Fallegur garður. Glæsileg
vönduð eign í sérflokki.
Eignin getur verið laus fljótlega.
Birna tekur á móti áhugasömum væntanlegum kaupendum í dag milli 14.00 og 15.00.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn