Morgunblaðið - 25.11.2007, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 25.11.2007, Qupperneq 30
bókarkafli 30 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ G uðni Ágústsson hefur lifað dramatísku lífi. Hann ólst upp í frum- stæðu bændasamfélagi en varð ráðherra á 21. öldinni, hann var feiminn piltur í Héraðsskólanum á Laugarvatni en varð einn vinsælasti stjórnmála- maður þjóðarinnar; hann lenti í hringiðu mikils valdabrölts þar sem átti að koma honum út úr póli- tík en stóð eftir sterkari en áður. Í bókinni Guðni – Af lífi og sál ræðir hann um viðkvæm pólitísk deilumál liðinna ára, s.s. brotthvarf Halldórs Ásgrímssonar úr íslenskri pólitík, Íraksstríðið og fjölmiðlamálið svo fátt eitt sé nefnt. En í bókinni er einnig fjallað um einkalíf Guðna, meðal annars sagðar sögur frá uppreisn æskunnar á sjöunda ára- tugnum, greint frá uppákomum í starfi hans sem þingmanns og ráð- herra og dregnar upp myndir af uppvexti hans í sextán systkina hópi á Brúnastöðum. Höfundur bókarinnar, Sigmundur Ernir Rún- arsson, byggir hana á samtölum sínum við Guðna og samferðamenn hans, birtum og áður óbirtum heimildum, meðal annars minn- isblöðum Guðna, sem ekki hefur verið vitnað til áður. Á leynifundi með forsetanum Guðni segir að fjölmiðlamálið hafi verið eitthvert erfiðasta úr- lausnarefni sem hann hafi glímt við á pólitískum ferli sínum. Þar lenti hann í hlutverki nokkurs konar sáttasemjara. Deilurnar stóðu sem hæst sumarið 2004 en endalokin voru afar dramatísk. Forseti Ís- lands neitaði að staðfesta fjölmiðla- lögin og ákvað ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks þá að leggja fram nýtt frumvarp. Þessi niðurstaða stjórnarliðsins er þó ekki eindregnari en svo að framsóknarmenn eru enn mjög ef- ins um hvort halda eigi lagasetn- ingu um eignarhald á fjölmiðlum til streitu. Margir flokksmenn eru á því að nóg sé komið. Þeir eru ein- faldlega orðnir þreyttir á því að róa á móti straumnum. Enn er Guðni sendur af stað – og nú í merkilegan leiðangur. Ráð- herrum Framsóknarflokksins leik- ur hugur á að vita hug forseta Ís- lands til nýs og endurbætts fjölmiðlafrumvarps. Hann er gerð- ur út af formanni sínum og sendur suður á Bessastaði. Það er almennt vitað í flokknum að kært er á milli Guðna og Ólafs forseta, enda eru þeir gamlir baráttufélagar úr ung- liðahreyfingu flokksins frá ólgu- tíma Möðruvellinga og þar fyrir ut- an er Guðni einn af fáum þingmönnum flokksins sem hafa stutt Ólaf Ragnar opinberlega á forsetastóli. Guðni þykir því rétti maðurinn í þessa friðarför út á Álftanes. Halldór formaður leggur mikið upp úr samstarfi við Guðna varaformann sinn á þessum við- sjárverðu tímum og telur einsýnt að hann sé rétti maðurinn í þennan óvenjulega rannsóknarleiðangur suður á Álftanes. Muni aftur neita að undirrita Guðni heldur á fund forsetans undir hádegi í hásumri. Það er mugga úti en þó hlýtt. Honum er vel tekið. Á borðum er dýrindis lambasteik. Hann greinir það þó á forsetanum að hann er þreyttur. Það er greinilegt að átök síðustu vikna hafa tekið mjög á hann og svo virðist sem glettnin sé horfin úr ásjónu þessa gamla áhlaups- manns í íslenskri þjóðmála- umræðu. Hann virðist miður sín og líður bersýnilega illa. Guðni þreifar því varlega á forsetanum en er samt í mun að komast að því hvaða hug hann beri til nýja fjölmiðla- frumvarpsins. Svarið er afdrátt- arlaust. Forsetinn gefur Guðna fastlega til kynna að hann muni hafna nýju lögunum rétt eins og þeim fyrri. Hann verði að vera samkvæmur sjálfum sér. Ólafur Ragnar gefur það jafnframt til kynna í þessu samtali þeirra Guðna að átökin við Sjálfstæðisflokkinn snúist ekki aðeins um þetta eina frumvarp heldur og ekki síður um framtíð forsetaembættisins. Átökin síðustu vikur varði ekki aðeins sinn persónulega heiður. Meginatriðið sé að verja embættið, frelsi þess og stöðu á ögurstundu. Guðni snýr til baka af fundinum og getur ekki losnað við þá mynd úr kollinum sem hann hefur fengið af forsetanum á þessum sérstæða fundi; þar hafi setið beygður maður og sár rétt eins og eldmóðurinn hafi slokknað um stund. Guðni seg- ir ráðherrum í flokki sínum hver afstaða forsetans er – honum verði ekki bifað – og það verður að nið- urstöðu ráðherra flokksins að leggja frumvarpsdrögin til hliðar og reyna ekki frekar á flokkinn, fólkið og forsetann í þessu máli. Það fari best á því að nema hér staðar og slíta þingi, ekkert nema enn frekari átök muni hljótast af því að keyra málið enn lengra, nú sé rétt að hvíla umræðuna og standa með öðrum hætti að laga- setningu um eignarhald á fjöl- miðlum í framtíðinni. Davíð hneykslaður á sam- starfsflokknum Um þetta leyti er Halldór for- maður kominn austur á Hornafjörð vegna veikinda móður sinnar og það verður því hlutskipti Guðna sem varaformanns flokksins að eiga einkafund með Davíð Odds- syni til að kynna honum afstöðu framsóknarmanna í málinu. Davíð bregst reiður við þessum tíðindum. Honum er þungt í skapi. Hann er enn sannfærðari en áður um að framsóknarmenn séu hræddir við forsetann, þar á bæ séu menn nú meiri veimiltíturnar. Guðni reynir að koma Davíð í skilning um það að það einasta sem fengist með frek- ari lagasetningu væri enn önnur synjun forsetans. Davíð kveðst ekki trúa því. Forsetinn myndi ekki leggja í annan slag, auðvitað myndi hann samþykkja breytt og endurbætt frumvarp. Guðni reynir af fremsta megni að halda stillingu sinni frammi fyrir reiðum forsætis- ráðherra. Hann segir honum að það þýði ekkert að rífast lengur um þetta mál. Nú sé lag að snúa við áð- ur en það sé orðið of seint. Málið sé allt fremur misheppnað, bæði hrað- inn á því og sjálf málsmeðferðin. Davíð verði að gera sér grein fyrir því að ríkisstjórnarflokkarnir séu búnir að tapa orrustunni. Augnabliksþögnin eftir þessi síð- ustu orð Guðna er hlaðin spennu. Það sljákkar heldur í Davíð en hann er samt enn hneykslaður á samstarfsflokknum sínum. Hann er á því að Framsókn sé að míga á sig af hræðslu. Þið eruð verri en krat- arnir, algerlega kjarklausir, bætir Davíð svo við. Daginn eftir veikist Davíð Odds- son og er lagður inn á sjúkrahús og glímir næstu mánuði við erfið veik- indi. Missti þetta óvart út úr sér Í bók Guðna og Sigmundar Ernis er að finna fjölmargar kostulegar sögur af þingmanns- og ráðherra- ferli Guðna. Ein þeirra gerist í Vestmannaeyjum en undir lok for- sætisráðherratíðar Steingríms Hermannssonar var mikill vandi uppi í sjávarútvegi. Lét hann þá hafa eftir sér að fækka yrði fisk- vinnsluhúsum til að hagræða í greininni, meðal annars í Eyjum. Ummæli forsætisráðherrans ollu stórfelldu uppnámi í þessari stærstu verstöð landsmanna og var Guðni sendur af hálfu flokksins til að friða útgerðaraðalinn á staðn- um. Guðni boðaði til fundar um kvöldið en hitti fyrr um daginn að máli fulltrúa Samtogs, eignarhalds- félags frystihúsanna í Eyjum um útgerð og sjósókn. Fundinum er lýst svo í bók Guðna og Sigmundar: Þetta er ójafn fundur. Guðni sit- ur einn fyrir enda ógurlegs eik- arborðs og allur útgerðaraðallinn á móti honum, allt fílefldir karlar með sverar hendur og axlir á við afreksmenn í aflraunum. Þarna eru meðal annarra Arnar Sigurmunds- son, Bjarni Sighvatsson, Einar Sig- urjónsson, Eyjólfur Martínsson, Guðmundur Karlsson, Haraldur Gíslason, Magnús Kristinsson og Sigurður Einarsson. Guðna finnst hann næsta dvergvaxinn gegnt þessum útgerðarrisum en hann reynir af fremsta megni að stilla þá af og róa taugarnar. Það gengur illa en hefst þó á endanum þegar Guðni biður viðstadda að hafa ekki áhyggjur af orðum Steingríms; hann hljóti bara að hafa misst þetta óvart út úr sér! Út um gluggann Guðni telur sig hafa komist þokkalega lifandi frá þessum fundi við stóra eikarborðið og heldur þessu næst upp á gistiheimilið Gestgjafann sem sá ágæti fram- sóknarmaður Pálmi Lórenzson rekur ásamt Mary konu sinni Sig- urjónsdóttur. Guðni hefur pantað svefnstaðinn seint og fær einna lakasta herbergið uppi í risi í bak- húsi á þriðju hæð með einum litlum þakglugga. Hann lætur sér það nægja og skýst þangað að aflokn- um kvöldverði til að undirbúa ræðu sína um kvöldið. Svo hyggst hann ganga á vit örlaga sinna eftir hálf- tíma hugleiðslu um orðaval og áherslur. En herbergisdyrnar eru læstar. Harðlæstar. Guðni skilur þetta ekki. Nú eru góð ráð dýr. Það er enginn sími í herberginu. Hann reynir að ná athygli með hrópum og banki og af því það dugar ekki vitund byrjar hann að öskra og Systkinahópurinn Guðni ólst upp í sextán systkina hópi á Brúnastöðum. Barnaskarinn var miklu fljótari en snúningsvélin í heyskapnum og því var hún minna notuð en efni stóðu til. Stóð sterkari eftir Guðni Ágústsson og Margrét Hauksdóttir kona hans á dramatísku augnabliki á flokksþingi Framsóknarflokksins. Guðni lenti í hringiðu mikils valdabrölts þar sem átti að koma honum út úr pólitík en stóð eftir sterkari en áður. Forsetinn gefur Guðna fastlega til kynna að hann muni hafna nýju lögunum rétt eins og þeim fyrri. Hann verði að vera sam- kvæmur sjálfum sér. Morgunblaðið/ÞÖK Skálmað af fundi Guðni Ágústsson lýsir í bók sinni heiftarlegum átökum við Halldór Ásgrímsson. Þau náðu há- marki á frægum Þingvallafundi þar sem Guðna fannst Halldór koma illilega aftan að sér. Hann skálmaði af þeim fundi „heitur og illur í framan“, eins og segir í bókinni. Á akri stjórnmálanna Guðni Ágústsson segir í nýrri bók, sem Sig- mundur Ernir Rún- arsson skráði, frá þætti sínum í stormasömu stjórnarsamstarfi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Bókin nefnist Guðni – Af lífi og sál.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.