Morgunblaðið - 25.11.2007, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 25.11.2007, Qupperneq 34
landgræðsla 34 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Á seinni hluta 19. aldar var svo komið hér á landi að þær leifar af skóglendi, sem enn fundust, áttu víða í vök að verjast og þar með annað gróið land. Eyðingin var einna mest á Suðurlandi. Þá var ekki annað sýnna en heilu sveitirnar legðust undir sand eins og Rang- árvellirnir, Landsveit og Skeiðin í Ár- nessýslu. Þá var einnig talsverð gróð- ureyðing af völdum sands í Þingeyjarsýslum. „Framsýnir menn sáu að hér horfði í algert óefni – sandurinn lagði heilu jarðirnar í eyði og skógar að mestu eyddir,“ segir Sveinn Runólfs- son, landgræðslustjóri. „Í Landsveit æddu sandgárarnir fram og inn í skóginn sem þar var enn. Það ýtti enn undir eyðingaröflin að menn hjuggu skóginn til þess að hann yrði ekki sandinum að bráð í stað þess að leyfa trjánum að taka við sandfokinu og hefta það. Á það verð- ur að líta að eldiviðarskortur hrjáði Íslendinga og bændur og búalið leit- uðu mjög í skóginn eftir eldiviði. Það var fyrst og fremst framsýni Hannesar Hafstein, ráðherra, að þakka að skógræktar- og land- græðslulögin náðust í gegn. Fengnir höfðu verið danskir sérfræðingar til þess að vera Íslendingum til ráðu- neytis um varnir gegn uppblæstr- inum, en þeir höfðu öðlast reynslu af starfi á Jótlandsheiðum. Þegar Al- þingi sótti Dani heim árið 1906 sá Hannes til þess að þingmenn kynntu sér árangur landgræðslustarfsins á jósku heiðunum. Hannesi tókst síðan með harðfylgi að fá lög samþykkt á Alþingi haustið 1907. Dönsku ráðgjafarnir höfðu samið ítarleg drög að frumvarpi þar sem m.a. var gert ráð fyrir að bændur bæru ábyrgð á búfé sínu. En þing- menn vildu sem minnst þrengja að landbúnaðinum og á endanum urðu lagagreinarnar einungis fimm. Þar af fjallaði ein um varnir gegn upp- blæstri en hinar snerust um skóg- rækt.“ Sandgræðsla hafin Árið 1906 var ungur Hafnfirðingur, Gunnlaugur Kristmundsson, sendur til náms í Danmörku og kom hann heim árið eftir. Var hann þegar send- ur austur í sveitir til þess að hefja sandgræðslustarfið áður en lögin voru samþykkt. Agnar Kofoed Han- sen var síðan ráðinn skógrækt- arstjóri 1. mars 1908. Varð hann yf- irmaður sandgræðslumála og Gunnlaugur sandgræðslumaður. Á fyrstu árum sandgræðslunnar var einkum beitt þremur aðferðum. Verstu svæðin voru girt og friðuð fyr- ir ágangi búfjár. Þá voru hlaðnir grjótgarðar eða smíðaðir úr timbri. Í skjóli þeirra var sáð melgresi. Með þessu móti var reynt að hamla gegn ágangi sandsins. Sveinn segir að friðunin hafi skilað miklum árangri og menn hafi fljótt gert sér grein fyrir gildi hennar. „Fáir núlifandi Íslendingar gera sér grein fyrir því hvað ástandið var í rauninni skelfilegt,“ bætir Andrés Arnalds, fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins, við. „Í upphafi starfsins og lengi frameftir öldinni færðust heilu sandgárarnir ofan af hálendinu og stefndu inn á gróið land. Þeir bættust við þann sand sem fyrir var og svona valt þetta áfram eins og sístækkandi snjóbolti. Norður í Öxarfirði var ástandið ekki skárra. Þar voru margra kíló- metra breiðar sandöldur á ferðinni og fóru allt að 400 metrum á ári. Svo seint sem á 9. áratugnum sáum við að sandur við Grænulág á Austurafrétt hafði þokast um 300-400 metra í einu hvassviðrinu. Þessi eyðing landkosta er í raun hreinar náttúruhamfarir.“ Helstu áfangarnir Sveinn Runólfsson telur að á fyrstu 40 árum landgræðslustarfsins hafi náðst ótrúlegur árangur þrátt fyrir takmarkaðar fjárveitingar, en á þeim tíma var aðeins varið um 200 millj. kr. á verðlagi ársins 2006 til sand- græðslumála (5 millj. á ári). „Ég fullyrði að þá hafi tekist að forða ýmsum sveitum frá algerri auðn svo sem ofanverðum Rang- árvöllum, Landsveit, Skeiðum í Ár- nessýslu, Meðallandinu o.fl. Annað skeiðið hófst árið 1948 þeg- ar hafist var handa við að rækta sand- ana til beitar og túnræktar. Hafði þetta mikil áhrif á búsetu og land- búnað svo sem undir Eyjafjöllum og víða í Austur-Skaftafellssýslu. Varð þetta ásamt bættum samgöngum og vörnum gegn ágangi jökulánna und- irstaða þeirrar gróðurbyltingar sem orðið hefur þar um slóðir og hvergi á landinu er árangur landgræðslu- starfsins sýnilegri en á Rangárvöllum og í Austur-Skaftafellssýslu.“ Aukinn heyfengur dró úr þeirri gegndarlausu vetrarbeit sem tíðkast hafði, en gerði jafnframt bændum víða kleift að fjölga búfé meira en beitilandið þoldi. Þá dró jafnframt úr beit á hálendinu sem er víða lítt gróið. Sveinn telur einnig að með fram- ræslu votlendis, sem hófst að marki upp úr 1950, hafi bændur getað nýtt betur heimalönd sín og hún hafi því ekki verið alslæm. Árið 1958 var farið að sá erlendu grasfræi og áburði úr flugvélum. Sennilega er þeirra þekktust Páll Sveinsson, sem var í notkun fram til ársins 2006. Nú hafa bændur eignast mjög afkastamikil tæki, dráttarvélar og dreifara og hafa tekið við að sá í heimalönd sín þar sem þess er þörf. Þegar flugvélarnar voru teknar í notkun voru slík tæki ekki til í land- inu og því skiptu flugvélarnar sköp- um við landgræðsluna. Þjóðargjöfin Á 1100 ára afmæli búsetu á Íslandi samþykkti Alþingi 5 ára átak til þess að efla landgræðslustarfið. Þá var miklu fé varið til landgræðslu og skógræktar. Einnig var fjármunum varið til rannsókna á gróðurfari, beit- arþoli og innlendrar fræframleiðslu. Á síðari hluta síðustu aldar komu svo til sögunnar gróðurkort og gervi- tunglamyndir sem sýndu svo að ekki varð um villst hversu mikill vandinn var. „Eftir fyrstu 40 árin voru ýmsir enn þeirrar skoðunar að landið væri ekki jafnilla farið og haldið hafði verið fram,“ segir Sveinn. „En nú ger- breyttust allar forsendur. Afstaða manna breyttist og fjölmargir ein- staklingar og stofnanir hafa gengið í lið með okkur við að klæða landið að nýju. Ísland er það land Evrópu sem hefur farið einna verst vegna búsetu manna og okkur ber skylda til þess að bæta fyrir þann skaða sem við höfum valdið með búsetu okkar á liðnum öldum.“ Bændur græða landið Að tillögu Andrésar Arnalds hófst formlegt samstarf við bændur um landgræðslu árið 1990. Bændur fá greiddan hluta áburðarkostnaðar og Landgræðslan sér þeim fyrir gras- fræi þar sem þess þarf. Starfsfólk Landgræðslunnar heim- sækir þá 650 bændur sem taka þátt í verkefninu. Þeir leggja fram vinnu, reynslu, vélar og tæki. Lagt er á ráð- in um ýmis mál svo sem landnytjar, upprekstur o.fl. Landgræðslustjóri telur þennan þátt starfseminnar einn hinn mikilvægasta í starfi stofnunar- innar um þessar mundir. „Það má einnig skipta land- græðslustarfinu sjálfu í nokkur tíma- bil,“ segir Andrés. „Í fyrstu var um eins konar slökkvistarf að ræða og menn einbeittu sér fyrst og fremst að erfiðustu sandfokssvæðunum. Gunn- laugur Kristmundsson starfaði að þeim málum ásamt fámennu liði. Upp úr 1965 hóf Landgræðslan að einbeita sér að sjálfum gróðurvernd- arþættinum og það hefur skilað um- talsverðum árangri. Aukinn heyfengur dró úr þeirri gegndarlausu vetrarbeit sem tíðkast hafði, en gerði jafnframt bændum víða kleift að fjölga búfé meira en beitilandið þoldi. Aukinn heyfengur þýddi einnig að sauðfé fjölgaði og varð um tíma of margt í högum. Það verður að segjast eins og er að þetta olli ákveðnum núningi milli land- Morgunblaðið/Kristinn Þorlákshöfn Með framræslu votlendis, sem hófst að marki upp úr 1950, hafa bændur getað nýtt betur heimalönd sín. Tötrum klætt Ísland er ekki eðlileg ásýnd þess. Hún stafar fyrst og fremst af mannavöld- um og hana ber að bæta. Landsveit Í Landsveit æddu sandgárarnir fram og inn í skóginn. Aukin landgæði meiri verðmæti Um þessar mundir er fagnað 100 ára afmæli landgræðslustarfs á Ís- landi. Arnþór Helgason tók hús á þeim Sveini Runólfssyni og Andrési Arnalds af því tilefni. Skylda Andrés Arnalds og Sveinn Runólfsson segja að Ísland sé það land Evrópu sem hefur farið einna verst vegna búsetu manna og því beri okkur skylda til að bæta fyrir skaðann sem búsetan hefur valdið á liðnum öldum. Gunnlaugsskógur Eins og undanfarin 100 ár verður áfram þörf fyrir land- græðslu, enda verður ræktanlegt land sífellt dýrmætara. Í HNOTSKURN » Landgræðsla ríkisins mið-ar aldur sinn við setningu laga um skógrækt og varnir gegn uppblæstri lands en þau voru staðfest 22. nóvember 1907. » Sama ár hófst sand-græðslustarfið á vegum ríkisins. » Landgræðslan er ein elstastofnun sinnar tegundar í heiminum og er reynsla Ís- lendinga í baráttu við landeyð- ingu því mikil. » Ný lög um sandgræðsluvoru sett 1914, 1923 og 1945, en árið 1965 var nafninu breytt úr Sandgræðslu Íslands í Landgræðslu ríkisins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.