Morgunblaðið - 25.11.2007, Qupperneq 54
Laugavegi 170, 2. hæð •
Opið virka daga kl. 8-17
Sími 552 1400 • Fax 552 1405
www.fold.is • fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er
694 1401
Melabraut 21 - Parhús – Seltjarnarnes
Opið hús í dag frá kl.15-16
Fallegt parhús með bílskúr og aflokuðum garði. Á efri hæð eru tvö stór
svefnherbergi og glæsilegt baðherbergi.Á neðri hæð er nýtt eldhús, stofa
og sólstofa m/kamínu.Vönduð gólfefni. Rúmgóðuir bílskúr m/ mikilli loft-
hæð. Húsið og garðurinn hefa verið mikið endurnýjað og eignin sérlega
glæsileg. Góð eign með frábæra staðsetningu. Verð 45,9 millj.
Austurbrún 30
- Parhús með aukaíbúð. Laust strax
Opið hús í dag frá kl. 14-15
Fallegt 191,6 fm parhús ásamt 30 fm bílskúr á eftirsóttum stað í Reykjavík.
Eignin er á tveimur hæðum. Á efri hæð eru 3 svefnherbergi og baðherbergi
stór stofa á neðri hæð með arni. Eldhús með eikarinnréttingu, þvottahús
og búr inn af því. Hluti neðri hæðar hefur verið útbúin sem 2ja herbergja
íbúð en auðveldlega mætti sameina hana við aðalíbúðina. Verð 64,8 millj.
Þrastarhöfði 6 í Mosfellsbæ - 4ra herb
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Falleg endaíbúð í nýju fjölbýli með sérinngang af svölum. Þrjú rúmgóð
svefnherb. m. fataskápum. Þvottahús innan íbúðar. Baðherb. M. baðkari
og sturtu. Fallegar og vandaðar innréttingar úr Hlyni. Útg á suðvestur sval-
ir frá stofu/eldhúsi. Verð 33 millj. Valdimar og Edda á bjöllu. 7726
Óskum eftir húseign
Vantar gistiheimili eða húseign með mörgum
vistarverum fyrir traustann kaupanda.
Ýmsar staðsetningar koma til greina.
54 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Óskar R. Harðarson og Jason Guðmundsson, löggiltir fasteignasalar
F A S T E I G N A S A L A N
MIKLABORG
Síðumúla 13 Sími 569 - 7000 www.miklaborg.is
Álfhólsvegur - byggingarréttur
Til sölu 1500 fm byggingarréttur (birt flatarmál) af nýju nýju fjölbýlihúsi
á fallegri hornlóð í rótrónu hverfi í Kópavoginum. Lóðin er vel staðsett
og verður mikið útsýni frá flestum íbúðunum. Hér er hægt að hefjast
handa strax. Samþykkt hefur verið nýtt deiliskipulag á lóðinna þar
sem núverandi hús yrði rifið og byggt nýtt fjölbýlishús í staðinn sem
yrði þrjár hæðir með 13 íbúðum, kjallara og bílageymslu (fjöldi bíla-
stæða verður 26 í bílageymslu). V. 150 m. 6979
Til leigu í Skeifunni
Gott tæplega 360 m² verslunar- og skrifstofuhúsnæði til leigu og
afhendingar fyrir jól. Um er að ræða endabil sem leigist eingöngu til
lengri tíma og skiptist í ca 250 m² á jarðhæð og 110 m² efri hæð.
Innangengt er upp á efri hæðin, sem getur t.d. nýst sem lager og/eða
skrifstofuaðstaða. Verslunarhúsnæðið liggur vel við umferð, er bjart
með gluggum á þrjá vegu, steinteppi á gólfum og
með ágætri lýsingu. Bílastæði beint við inngang.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu
Leigulistans (Guðlaugur 896-0747).
Sími 511 2900
M
bl
9
41
43
4
Í GARÐINUM hefur sjávar-
útvegur verið burðarstoð atvinnulífs.
Fyrir rúmu ári unnu hjá fiskvinnslu-
fyrirtækjum í bænum 40% þeirra
sem búa í Garðinum og sækja at-
vinnu í byggðarlaginu.
Öflug fiskvinnslufyr-
irtæki í Garðinum hafa
styrkt stöðu sína ár frá
ári með aukinni afla-
hlutdeild. Kvótaeign
Garðbúa hefur þannig
aukist hægt og bítandi
á undanförnum árum
og styrkt stöðu fisk-
vinnslufyrirtækja,
sveitarfélagsins og af-
komu íbúanna. Á þessu
fiskvinnsluári dregst
vinnsla í byggðarlaginu
hins vegar verulega
saman. Skerðing þorskkvóta um
33,5% kemur þar af leiðandi mjög illa
við fiskvinnslufyrirtæki í Garðinum,
starfsmenn þeirra og bæinn í heild.
Garðbúar með erlent ríkisfang
hafa verið fjölmennir í fiskvinnslu.
Rúmlega 12% af 1.487 íbúum Garðs
voru með erlent ríkisfang í desember
2006 samkvæmt vef Hagstofunnar. Í
dag hefur þetta hlutfall lækkað og
um 10,5% íbúanna eru með erlent
ríkisfang þó að íslenskum Garðbúum
hafi ekki fækkað. Þegar Hagstofan
tók saman miðársmannfjölda á land-
inu og flokkaði eftir sveitarfélögum
hafði Garðbúum fjölgað en staðan er
ekki sú sama nú.
Garðbúar sem hafa
flust til annarra landa á
árinu eru mun fleiri en
hafa flutt til okkar frá
öðrum löndum. Þetta
er reyndar lýsandi fyrir
ástand sem skapast
með skerðingu kvótans
í byggðum sem byggja
afkomu sína að mestu á
sjávarútvegi.
Kallað eftir stuðn-
ingi ráðamanna
Fram hefur komið að
byggðir á svokölluðu vaxtarsvæði
njóti ekki mótvægisaðgerða ríkisins
vegna niðurskurðar á þorskkvóta.
Þetta er mér með öllu óskiljanlegt,
einkum í ljósi þessara staðreynda
sem tíundaðar eru hér að ofan. Stutt
er síðan við Suðurnesjamenn þurft-
um að þola fjölmennustu fjölda-
uppsagnir í sögu þjóðarinnar við
brottför varnarliðsins. Nú bætist við
niðurskurður á þorskkvóta. Atvinnu-
ástandið á Suðurnesjum er óstöðugt
og ráðamenn þurfa að líta til Suð-
urnesja með stuðning í huga, einkum
við þær aðgerðir sem heimamenn
eru nú þegar að vinna að, s.s. þróun
atvinnutækifæra á Keflavík-
urflugvelli og álversframkvæmda í
Helguvík.
Helguvík nýr
hornsteinn stöðugleika
Mat á umhverfisáhrifum álvers í
Helguvík hefur nýlega fengið já-
kvæða umsögn Skipulagsstofnunar.
Þar kemur m.a. fram að talið er að
álverið muni ekki valda verulega nei-
kvæðum og óafturkræfum áhrifum á
umhverfi og samfélag. Skipulags-
stofnun telur að áhrif álvers í Helgu-
vík á vinnumarkað muni að miklu
leyti ráðast af stöðu atvinnumála á
Suðurnesjum og víðar, bæði á bygg-
ingartíma og þegar rekstur hefst.
Fjármálaráðuneytið spáir því að at-
vinnuleysi muni aukast hér á landi
frá því sem nú er á næstu tveimur ár-
um. Þau störf sem verða til í álverinu
í Helguvík og vegna starfsemi sem
tengist því munu skapa stöðugleika í
atvinnumálum Suðurnesjamanna.
Þeim stöðugleika þurfum við á að
halda enda fylgja honum vel launuð
störf og fyrirtæki sem vinnur með
samfélögunum á Suðurnesjum.
Aðalfundur Sambands sveitarfé-
laga á Suðurnesjum sem haldinn var
10. nóvember sl. lýsti yfir fullum
stuðningi við fyrirhuguð áform um
byggingu álvers í Helguvík. Ég hvet
þingmenn okkar og aðra ráðamenn
þjóðarinnar að athuga vel hvaða
áhrif bæði brottför varnarliðsins og
skerðing þorskkvóta hefur haft á
einstakar byggðir á Suðurnesjum og
vinna með okkur að aðgerðum sem
nauðsynlegar eru til að skapa stöð-
ugleika á svæðinu.
Fast þeir sóttu sjóinn …?
Oddný Harðardóttir skrifar um
byggðamál á Suðurnesjum » Atvinnuástandið áSuðurnesjum er
óstöðugt og ráðamenn
þurfa að líta til Suð-
urnesja með stuðning í
huga …
Oddný Harðardóttir
Höfundur er bæjarstjóri
Sveitarfélagsins Garðs.