Morgunblaðið - 25.11.2007, Síða 79

Morgunblaðið - 25.11.2007, Síða 79
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 79 Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • Akureyri sími: 461 1099 E N N E M M / S IA • N M 3 0 70 1 Frábær kjör – takmörkuð gisting Sand Castles Sunset Jamaica Grande Resort Glæsileg lúxusgisting Gran Bahia Principe Jamaica – nýtt lúxushótel Opnaði í des. 2006 Allt innifalið í 10 eða 11 daga - frá aðeins 149.990 kr. Allt innifalið í 10 eða 11 nætur - frá aðeins 145.390 kr. Gran Bahia Principe Jamaica – allt innifalið Mjög gott fjögurra stjörnu hótel við ströndina í hjarta Ocho Rios með góðri aðstöðu. Aðstaða og aðbúnaður hótelsins var end- urnýjað nýlega. Glæsilegur garður með 5 sundlaugum, veitinga- stöðum, börum o.fl.. Herbergi eru með sjónvarpi, síma, loftkæl- ingu, baðherbergi, öryggishólfi og svölum/verönd. Örstutt er í mannlífið fyrir þá sem kjósa að leita út fyrir hótelið. Einfalt en þokkalegt hótel við Turtle Beach ströndina, skammt frá miðbæjarkjarna Ocho Rios. Á hótelinu eru íbúðir með einu svefnherbergi, stúdíóíbúðir og hótelherbergi. Íbúðir og her- bergi eru með loftkælingu, sjónvarpi, síma og ísskáp. Öll her- bergi/íbúðir með svölum. Fallegur sundlaugargarður, bar, veit- ingastaður og móttaka. Góður kostur fyrir þá sem vilja einfaldari gistingu með minni þjónustu en góða staðsetningu og verð. MasterCard Mundu ferðaávísunina! Stórglæsilegt og nýtt fimm stjörnu glæsihótel við ströndina í Runaway Bay. Hér finnur þú alla þá þjónustu í fríinu sem hægt er að óska sér. Glæsilegan garð með 3 sundlaugum, barnalaug- um, fjölda veitingastaða, bara, verslana, líkamsrækt og tenn- isvöllum. Golfvellir og fjölbreytt sjósport í nágrenninu. Hótelið er með 700 herbergi sem öll eru svítur með nuddbaðkari. Öll herbergi eru með gervihnattasjónvarpi, síma, loftkælingu, bað- herbergi, öryggishólfi og svölum/verönd. Þetta er stórglæsilegt hótel og örugglega eitt það allra besta á Jamaica – hér er dekr- að við þig í aðbúnaði og þjónustu. Allt innifalið: • Morgunverðarhlaðborð • Hádegisverðarhlaðborð • Kvöldverður (val um 5 veitingastaði) • Innlendir drykkir • Aðgangur að diskóteki hótelsins • Aðgangur að líkamsrækt • Sólbekkir, sólhlífar og handklæði • Skemmtidagskrá á daginn og kvöldin • Minibar m/vatn, gos og bjór (fyllt á daglega) • Köfunarkennsla í sundlauginni (1 klst.) • Frítt á brimbretti, tennis, báta án mótors eða reiðhjól (í 1 klst.) Hvað er í boði • 5 veitingastaðir • 5 barir • 3 sundlaugar • Verslanir • Öryggishólf (gegn gjaldi) • Barnagæsla • Líkamsrækt • Heilsulind • Barnaklúbbur • Tennisvellir • Fjölbreytt sjósport • Diskótek • Píanó bar, Karaoke bar og sport bar • Mótor- og reiðhjólaleiga • Læknisþjónusta • Golf, Runaway Bay Golf Club • Kayakar • Skemmtidagskrá fyrir börnin Jamaica er ein fegursta eyja Karíbahafsins og hún býður stórkostlega náttúrufegurð og veðurfar. Á Jamaica ríkir einnig einstakt andrúmsloft og menningin á sér vart hliðstæðu í Karíbahafinu. Sandstrendurnar eru drifhvítar og með þeim feg- urstu í heimi. Eyjan skartar náttúruperlum eins og Dunn’s fossunum, Blue Mountains og YS fossunum sem eru einstakar og láta engan ósnortinn. Reggie tónlistin ómar allsstaðar, taktur Bob Marleys fægasta sonar Jamaica. Þeir sem hafa komið til Jamaica eru flestir sammála um að eyjan hafi einstakt aðdráttarafl. Hún er einn þessara heillandi áfangastaða Karíbahafsins sem laða ferðmenn til sín aftur og aftur. *) Netverð á mann m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði á Sand Castles í 10 eða 11 nætur. Verðdæmi eru netverð á mann m.v. í gistingu tvíbýli. Verð getur breyst án fyrirvara. Öll herbergi eru svítur 14. febrúar – 10 nætur og 24. febrúar – 11 nætur Frá 109.890 kr.* Glæsileg viðbót!Getum nú loksins boðið gistingu á þessu frábæra hóteli í ferðum okkar í febrúar!Jamaica ÞAÐ var á síð- asta ári að und- irrituðum bár- ust þær sorg- arfréttir til eyrna að hinir fjölhæfu og afar vinsælu Hjálmar væru hættir. Það reyndist víst of erfitt að starfrækja hljómsveit sem búsett var í tveimur löndum en annar helmingur þeirra sex hæfileikaríku tónlistarmanna sem prýða bandið kom frá Svíþjóð. Það leið þó ekki á löngu áður en hóp- urinn sameinaðist að nýju, sveitin sendi frá sér smellinn „Vagga Vagga“ og við það varð ekki aftur snúið. Síðastliðið haust héldu Hjálmar í þriðja sinn í hljóðver til að búa til plötu. Það er engin spurning að marg- ir bíða spenntir eftir þessari þriðju plötu Hjálma, og að Ferða- sót á eftir að seljast eins og heitar lummur, og gott og vel því hún er góð og bestu lögin, já bestu lögin eru ansi góð. Vandamálið við Ferðasót er hins vegar hversu ris- lág hún er og í raun einhæf. Alltaf er platan góð og fagmannlega framreidd fram í fingurgóma en neistinn sem gerir Hjálma að Hjálmum þjáist af súrefnisskorti. Þetta er alltof öruggt og fyr- irsjáanlegt, meira af því sama sem gerði þá svo frábæra en það vant- ar eitthvað og Hjálmar virka eins og þeir séu í vinnunni. Platan var tekin upp á rúmri viku, lögin koma flest frá Þor- steini Einarssyni, gítarleikara og söngvara, og það sama gildir um flesta textana, en í fyrri verkum lét Sigurður Halldór Guðmunds- son meira til sín taka, bæði í laga- smíðum, textagerð og söng. Þor- steinn er frábær söngvari með yndislega framsögn, textar hans og lög eru þannig gerð að þau snerta mann oft djúpt og fá mann til að hugsa um það þjóðfélag sem við búum í. Gott dæmi um þetta er „Nú er lag“, en sjálfur meistari Bob Marley myndi stoltur vera af þessum óð. Segja má að Ferðasót sé platan hans Þorsteins, móð- urmálið kann hann svo textarnir eru vel úr garði gerðir, lögin hans fá að njóta sín. Faðir hans á einn- ig tvo texta, „Vagga Vagga“ og „Leiðin okkar allra“, en þess má geta að hann hefur áður komið við sögu og átt texta á fyrri plötum Hjálma. Einnig má bæta því við að unnusta Þorsteins, Sigríður Eyþórsdóttir, á eitt lag á plötunni. En þrátt fyrir góð lög eins og „Nú er lag“, „Leiðin okkar allra“ og „Vísa úr Álftamýri“, þá skortir Ferðasót breidd þegar kemur að því að fylla heila skífu Hjálma af ferskum tónum. Í titillaginu má þó finna töfra og er gaman að heyra samsöng Þorsteins og Sigurðar, gott hefði verið að fá meira af slíkum pælingum. Lagið er einnig gargandi snilld þar sem blandað er saman reggíi og íslenskum þjóðlagaarfi. Banjóleikurinn í lag- inu er síðan algjört konfekt. „Þú veist í hjarta þér“ hefur líka skemmtilegan blæ en bæði lag og texti eru eftir Þorstein Valdimars- son. Lagið hefur trúarlegan blæ, sem má svo sannarlega finna á þessari skífu. Því má svo bæta við að Skólakór Kársness hljóðritaði einmitt þetta sama lag 1983 en þess ber að geta að útsetningin var önnur þá. Í dag er staðan sú að hinir sænsku frændur spila ekki lengur í Hjálmum en í þeirra stað hefur Flís brugðið á leik með sveitinni og kemur tríóið eflaust til með að hleypa nýju lífi í tilveruna. Á því leikur enginn efi í huga mér að sú samsuða á eftir að bæta kryddi í líf Hjálma sem aldrei fyrr, og komist sveitin fljótlega á ný í hljóðver með lög úr fleiri áttum verður útkoman rosaleg. Hér er áskorun: Hjálmar, ekki bíða of lengi og komið með þá fjórðu sem allra, allra fyrst. Eftirspurn Jóhann Ágúst Jóhannsson TÓNLIST Geisladiskur Hjálmar - Ferðasót  LIAM Gallagher, söngvari bresku rokksveitarinnar Oasis, hefur varað bresku söngkonuna Amy Winehouse við því að halda áfram að sukka. Gallagher telur að söngkonan eigi að halda sig frá áfengi og öðrum fíkniefnum þar sem hún ráði alls ekki við þau. „Hún leikur sér að eldinum og brennir sig. Þannig gengur þetta fyrir sig. Ef hún veit að það sem hún er að gera er ekki gott þarf hún að hætta því.“ Gallagher, sem sjálfur er þekktur fyrir villt líferni, segir hins vegar að ef hann væri enn á svipuðum aldri og Wine- house myndi hann sukka enn meira. „Hún er ung og ég myndi örugglega gera það sama í hennar sporum, nema hvað að ég myndi nota tvisvar sinnum meira af fíkniefnum en hún gerir. En ég er annars viss um að hún vex upp úr þessu,“ sagði söngvarinn umdeildi í viðtali við The Sun og bætti því svo við að hann kynni ágætlega að meta tónlist Winehouse. „Hún er fín, mér finnst „Rehab“ alveg ágætt lag,“ sagði Gallagher sem sjaldnast er hrifinn af þeirri tón- list sem aðrir gera. Gallagher varar Winehouse við Villtur Liam Gallagher er 35 ára. Skrautleg Amy Winehouse er 24 ára gömul.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.