Skinfaxi - 01.11.1938, Page 54
134
SKINFAXI
Lög þessi eru aðeins ársgömul, og enn sem komið er,
vitanlega litil reynsla fengin um áhrif þeirra eða árang-
ur. Undirbúningur að framkvæmdum var þó þegar haf-
inn í fyrra og ekkert til sparað, að árangur gæti orðið
bæði fljóttækur og mikill.Meðstoðí þeirri grein laganna,
er kveður svo á, að gera megi „ráðstafanir til útbreiðslu
þekkingar á gildi íþrótta“, hefir verið bafinn víðtækur
áróður með aðstoð blaða, hvetjandi bæklinga, kvik-
mynda, útvarps o. s. frv. Á götum og gatnamótum blasa
við vegfaröndum feitletruð vígorð og eggjanir. Og
um landið þvert og endilangt þjóta fyrirlesarar og far-
andsýningar. Með myndum og línuritum, örfandi dæm-
i'.m lil eftirbreytni og ögrandi dæmum til varnaðar, er
reynt að brenna það inn í buga og bjarta hvers einasta
manns, að það sé borgaraleg skylda hans að vinna að
bættri líkamsrækt sinni, — skylda bans gagnvart bon-
um sjálfum, fjölskvldu lians, bæjar- og sveitarfélagi
hans og þjóðfélaginu í heild.
Kvittað fyrir móttöku.
Nýlega lét Ríksútvarpi'ð hlustendur sina heyra áróðursræðu
fyrir Góðtemplara. Flutti hana Pétur G. Guðmundsson. Hann
lauk máli sinu á því, að fullyrða: „Enn hefir enginn annar
bindindisfélagsskapur en góðtemplarareglan lánazt til lengdar.“
U.M.F.Í. — bindindisfélagsskapur, sem hefir lánazt i 31
ár — lætur útvarpsráðsmanninn Pétur G. Guðmundsson um
að samríma þessa fullyrðingu margræddu hlutleysi Rikisút-
varpsins. En hitt er vert að ungmennafélagar athugi og muni
vel, að svona og einmitt svona, með blákaldri fyrirlitningu,
þakka margir forystumenn templara, og „Reglan“ sjálf stund-
um, yfir 30 ára samvinnu Umf. að bindindismálum. Slík asna-
spörk geta víst kallazt að vinna að málinu af einlægni og
skynsemi!