Skinfaxi - 01.04.1940, Side 9
SKINFAXI
9
Styrki má veita til:
1. Hverskonar mannvirkja og Uekja, sem mi'ða að bættum
skilyrðum til íþróttaiðkana, einkum efniskaupa og aðstoð-
ar kunnáttumanna.
2. Til íþróttaskóla og námskeiða.
3. Til útbreiðslu íþrótta og aukinnar íþróttamenntunar.
Eigi má veita styrki til venjulegra íþróttamóta né einstakra
kappleika eða til verðlaunagripa, til rekstrarkostnaðar félaga
eða til fastrar íþróttakennslu i almennum skólum, né ferða-
laga iþróttafélaga.
7. gr. Þessir aðilar geta notið styrks úr íþróttasjóði:
1. íþróttasamband íslands (Í.S.Í.), Ungmennafélag íslands
(U.M.F.Í.), svo og félög og félagasambönd innan vébanda
þeirra.
2. Bæjar-, sveitar- eða sýslufélög ,og skólar.
3. Samtök þeirra aðila, sem gelur í 1. og 2. tölul. þessarar
greinar, svo sem iþróttasamtök slík, er ræðir um í 25. gr.
laga þessara.
8. gr. Umsóknir um styrki úr íþróttasjóði skulu sendar
íþróttanefnd samkvæmt reglum, er liún setur.
Við úthlutun úr sjóðnum skal taka tillit til þess:
1. Hve mikið framlag umsækjanda er i vinnu og fé.
2. Hve almenna þýðingu úthlutunin geti haft.
3. Hve heilbrigðisgildi framkvæmdar þeirrar, er styrks nýt-
ur, er mikið.
4. Að stuðningurinn dreifist með tíinanum sem jafnast um
landið eftir fólksfjölda.
5. Að hve miklu leyti félögin standi undir rekstrarkostnaði
sínum með iðgjöldum félagsmanna.
Mannvirki, sem styrkt eru úr sjóðnum, skulu vera til al-
mennra afnota, eftir þvi sem við verður komið, en eigi má
nota þau til neins þess, sem brýtur í bága við afnot þeirra til
íþrótta.
9. gr. Setja skal reglugerð um mannvirki þau, er styrks
hafa notið eða njóta úr íþróttasjóði, og skal hún staðfest af
fræðslumálastjórninni. í reglugerð skulu vera ákvæði um stjórn
mannvirkis, viðhald og notkun.
10. gr. Nú vill einhver þeirra aðilja, sem taldir eru í 7. gr.,
koma upp iþróttamannvirki og fá til þess styrk úr iþrótta-
sjóði, og skal hann þá leita samþykkis iþróttanefndar um gerð
mannvirkis og stað. Skylt er íþróttanefnd að láta aðilum ó-
keypis í té uppdrætti og aðrar leiðbeiningar um gerð íþrótta-