Skinfaxi - 01.11.1948, Page 3
SKINFAXI
67
mennafélögin. Dráttur sá, sem varð á að blaðið kæmi
út að nýju var m. a. vegna þess að þrír af blaðamönn-
um þess höfðu verið fluttir til Þýzkalands, og aðeins
einn þeirra komið lifandi aftur. Hafði liann horfið
að öðru blaði. I blaðinu var og að þessu sinni kveðja
frá Jóhannesi Paturssyni, er hann reit blaðinu sköninm
fyrir andlát sitt.
Úr Harðangri
„Kæru Gula Tidend. Gömlum vinum og vegum
skyldi enginn gleyma. Velkomin séuð þið, er þið
ltomið út að nýju. Þegar er þið koniuð fyrst út, árið
1904, réttuð þið hönd stuðnings, vináttu og frændsemi
til vor á útskerjum í sjó vestur, þar sem Sverrir fædd-
ist forðum. Og þið studduð oss dyggilega í sjálfstæðis-
baráttu vorri allt íil 9. apríl 1940, er vargur brauzt í
vé inn. Hjartans þakkir fyrir sambug og samvinnu.
Og er þið hefjið göngu ykkar á ný, munuð þið reynast
söm í vorn garð og áður. Vér þörfnumst þess og ekki
síður nú en áður, er vér norræn þjóð Færeyja liöfum
enn ekki öðlazt aftur óðalsrétt vorn í eigin landi. Þér