Skinfaxi - 01.11.1948, Blaðsíða 55
SKINFAXI
119
félag sitt, lög þess, skilyrði 'fyrir samfélagi manna,
grundvallaratriði hins vestræna lýðræðis, eða að
minnsta kosti veit nokkur deili á þessu, stendur ör-
uggari en ella i haráttunni um mannssálirnar. Vart
verður og meiri dýptar og raunsæis í starfi finnsk-
sænsku ungmennafélaganna en áður, meiri kröfur
eru gerðar til einstakra félaga.
En þetta krefst betri foryslu i félögunum og þess
vegna liefur menntun og þjálfun forystumannanna
orðið eitt helzta viðfangsefni félaganna nú. Er nú rætt
um skóla með lýðháskólasniði er starfi að þessu.
Margt skilur að lönd og þjóðir Norðurlanda. Ólikt
er margt um starfsemi æskulýðsins i þessum löndum.
En það er gott, norræni stofninn er fyrir það lim-
ríkari. Lífsskilyrði okkar og framtíðarmöguleikar eru
ólík. En sameiginleg líftaug liggur um hugsanir okk-
ar og tilfinningar, söngur okkar á sér samhljóm og
saga oklcar, verðmælirinn er einn, er við metum mann-
gildið og hvað mestu varðar í lífinu, svo að við töl-
um um Norðurlönd sem heild, jafnvel án tillits til
landfræðilegrar samstöðu. Við getum talað um and-
ans ríki Norðurlanda, og til þess viljum við einnig
teljast.