Skinfaxi - 01.11.1948, Blaðsíða 62
126
SKINFAXI
ins, tekur hægri armur ekki þátt i hlaupahreyfingunum og
veldur röskun á þeim. Vegna þessa undirbúa margir boðskiptin
þannig: Viðtakandi bregður við til spretts, þegar boðflytjandi
liefur náð vissri fjarlægð frá honum, notar báða arma í hraða-
aukningarskrefunum og leitast þannig við að ná fullum liraða
sem fyrst, telur skrefin frá þvi viðbragðið hófst og þegar
hægri armur sveiflast aftur í fimmta skrefi, kemur hann hend-
inni fyrir í boðskiptastöðu og heldur henni þannig þar til boð-
skiptin eru um garð gengin.
Seinni aðferðin býr i haginn fyrir boðskipti á meiri liraða,
en óöruggari er hún talin, vegna þess, að viðtakandi metur
skakkt tímann og stefnuna, eða fatast við aftursveiflu hægri
arms við að koma hendinni i hina réttu afstöðu.
Fyrri aðferðin er talin öruggari, þar sem hún býr boðflytj-
anda mark (höndin) til þess að miða við yfir allt boðskipta-
svæðið.
Mismunandi boSskipti:
Eins og hér hefur verið gert, er venjulegt, að kennarar segi
nemendum sínum: „Takið á móti með hægri hendi, en afhendið
með vinstri".
Þessi venjulega aðferð byggist á því, að viðtakandi stendur
innst á braut sinni og hefur betra svigrúm til hægri, út á
brautina.
Nokkrar boðhlaupssveitir hafa brotið þessa venju og talið
það sér hagkvæmt. Hver hlaupari hleypur með keflið og skil-
ar þvi með sömu hendi og hann tók við því.
Með þessu lagi taka 2. og 4. hlaupari við keflinu með hægri
hendi. Sú þriðji tekur sér stöðu við ytri brún hlaupabrautar
sinnar og snýr sér til vinstri og tekur við keflinu með vinstri
hendi. Með þessu þarf enginn hlauparanna að tefja sig á
færslu keflisins úr hægri í vinstri. En óhagræðið er tvöfalt:
1) þriðji hlauparinn tekur sér stöðu, sem venjulega er í and-
stöðu við keppinautana og 2) burður keflisins í liægri hendi
færir frekar með sér hættu á því, að það rekist i og hrjótí
úr hendi.
Niðurröðun keppenda í boðhlaupssveit:
Sjaldan eru keppendur jafnir að hlaupahæfni eða að beit-
ingu getu sinnar í keppni.
Kennari eða fyrirliði, sem þekkir styrkleika og veikleika
keppenda, raðar þeim niður samlcvæmt eftirfarandi: