Skinfaxi - 01.11.1948, Blaðsíða 7
SKINFAXl
71
formaður í BiaSamannafélagi Noregs. Hann var stöð-
ugt í sambandi við félaga og starfsbræður utan fanga-
búðanna. Oft var hann nærri uppvis að starfsemi
sinni. Næstum dag hvern var einhver þjáningabróðir
sekur fundinn og skotinn. Sletten slapp.
í veizlu í Björgvin sat ég til borðs með þjóðminja-
verði borgarinnar, ásamt frú lians og L. Jerdal, blaða-
manni og formanni í öðru aðalungmennafélaginu i
Björgvin. Siðast liafði fundi þeirra borið saman hjá
Gestapo. Þjóðminjavörðurinn var að koma frá yfir-
heyrslu, Jerdal var að ganga inn, þar sem hann hlaut
8 ára fangelsisdóm í þýzkum fangabúðum.
Hér skal því skotið inn i til gamans, að frú forn-
minjavarðarins hafði ekki verið í veizlu áður með
rikiserfingjanum og fannst mikið til um. Bjóst hún
sínu bezta skarti. En það var kjóll, sem hún hafði
fengið sendan frá íslandi, er leiðin til Noregs opnaðist
eftir striðið. Er styrjöldinni lauk, fóru þeir menn, er
gengið höfðu gegnum eldraunirnar, að gera sér grein
fyrir, livað hefði eiginlega mest lijálpað.
Margir bentu einkum á kristindóminn. Um fyrr-
nefndar tillögur i þá átt urðu nú miklar umræður á
þessu þingi í Ungmennafélagi Noregs. Urslitin urðu
þau, að gamla upphaflega stefnuskráin var látin
standa áfram nær óbreytt þannig: „Ungmennafélag
Noregs vinnur að menntun þjóðarinnar á þjóðlegum
norslcum grundvelli, og að samheldni og samvinnu
æskulýðsins.“ Jafnframt var birt yfirlýsing frá stjórn-
inni, þar sem komizt var m. a. þannig að orði: „Um-
ræðurnar um þetta mál hafa hnigið ákveðið i þá
átt, að með þjóðlegum norskum grundvelli sé átt við
hina kristnu menningarundirstöðu, er vér höfum tek-
ið í arf frá feðrum vorurn." Þannig var á þinginu
lögð áherzla á hinn kristilega grundvöll starfsins, þótt
það væri ekki bundið með ákveðnum orðum í sjálfri
stefnuskránni.