Skinfaxi - 01.11.1948, Qupperneq 85
SKINFAXI
149
Bjarni Andrésson:
U.M.F. Snæfell í Stykkishólmi 10 ára.
U. M. F. Snæfell var stofnað 23. okt. 1938. Það var stofnað
upp úr tveim félögum, sem voru starfandi Iiér í þorpinu,
Þórólfi Mostrarskegg, félagi ungra manna, og Perlu, félagi
ungra stúlkna. Þessi félög gengu sem heild i það á stofn-
fundi. Daníel Ágústínusson, kennari og ritari U. M. F. í., var
fyrsti formaður þess, Auður Jónsdóttir ritari og Haraldur ís-
lcifsson féhirðir. Stofnendur voru 49. Nú eru um 110 félagar
í því. Starfið var margþætt. Verkefnin næg, sem hiðu úr-
lausnar. Hugsjónaeldur, samfara bjartsýni og trú á félagsleg-
an mátt, einkenndi félagsstörfin. Meðan sá sami eldur brann
i brjósti félaganna, bera störfin vott um dugnað og félags-
legan áhuga. Fundarstörf eru og liafa verið ein meginstörf
félagsins.
Fyrsta árið voru fundirnir flestir, cn siðan 7 til jafnaðar
á ári.
Sérstakir flokkar störfuðu um skeið innan félagsins, svo
sem málfundaflokkur, tóbaksbindindisflokkur og skákflokkur.
Félagið gaf út handritað blað, sem liét Árblik. Blaðið flutti
greinar um ýmisleg efni, en andans eldur kulnaði smám sam-
an í brjóstum félaganna og blaðið hætti að koma út. Bland-
aður kór starfaði innan félagsins á fyrstu árum þess, undir
stjórn Jóns Eyjólfssonar, kaupmanns. Félagið hefur gengizt
fyrir opinberum skemmtunum og oftast reynt að bjóða gest-
um upp á sómasamleg skemmiatriði. Þar hafa verið flutt meðal
annars: erindi, söngur, upplestur, leikrit og ýmislegt fleira.
Leikstarfsemi var, áður en „bíóið“ kom til sögunnar, allmikill
þáttur í störfum félagsins. Félagar og aðrir velunnarar fé-
lagsskaparins lögðu þar á sig fórnfúst starf i þágu lifandi
menningar og fluttu bæjarbúum marga góða skemmtun. Það
var minnisstæð nýbrcytni í venjubundnu liversdagslífinu að
sjá hér á leiksviði leikrit eins og Mann og konu og Leyni-
mel 13, svo að nefnd séu tvö þau stærstu, sem ég sá. fþrótta-
málin hafa frá upphafi verið aðalmál félagsins. Það var liugs-
að, rætt og ritað um byggingu íþróttahúss innan vébanda fé-
lagsins löngu áður en kom til mála að reisa það lms, sem nú
er komið upp. íþróttavöllur var á sinum tíma eitt glæsilegasta
hugsjónamál félagsins; mál, sem er nú orðið að veruleika.
Það liefir kostað mikið fé og vinnu að hrinda þvi máli í fram-
kvæmd. Þar unnu saman ungir og gamlir tvær stundir á dag
eftir vcnjulegan vinnutíma og starfsgleðin ljómaði á hverju