Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1948, Page 11

Skinfaxi - 01.11.1948, Page 11
SKINFAXI 75 Kirkja og leikhús. Næsti dagur var sunnudagur. Fyrir liádegi voru guðsþjónustur á tveim stöðum samtímis. Kirkjurnar voru þéttskipaðar, og gjallarhornum var komið fyrir úti handa þeim, sem ekki komust inn. En þeir voru ekki margir, sem héldust þar við því að nú var tekið að rigna eins og hellt væri úr fötu. Hugur minn hvarfl- aði til unglingsáranna, er þeir Aðalsteinn Sigmunds- son og Sigurður Greipsson stóðu fyrir mótum austur i Þjórsártúni og við vöknuðum mótsdaginn við það, Harðangursfiðla að sunnlenzk rigning, eins og hún getur verið áköf- ust, buldi á gluggum, svo að allt virtist tapað. Slíkt steypiregn varnaði eitt sinn máls Árna próf. Pálssyni, og fannst fólki, að það hefði mikið misst. En stundum glaðnaði lika til, þegar á daginn leið, og svo fór hér í Ilarðangri að þessu sinni. Er guðsþjónustunum lauk, varð nokkurt hlé til matar. Stjórn Ungmennafélags Noregs bauð nokkr- um gestum til miðdegisverðar. Er lionum lauk, sagði fyrrnefndur Jakob Vik oddviti Kvamhéraðs nokkur orð. Undir borðum var ég kynntur Inge Krokann rit- höfundi og frú hans. Skyldi liann halda ræðu á mót- inu síðar um daginn. Þau hjónin minntust á Snoi’ra- liátíðina í Björgvin og gátu þess sérstaklega, að þeim liefði þótt merkilcgt og ánægjulegt að hcyra til eins gestanna, er talaði milli þátta í leikhúsinu i Bergen

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.