Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1948, Side 13

Skinfaxi - 01.11.1948, Side 13
SKINFAXI 77 Skard prófessor frá Oslóarháskóla ræðu, sem var út- varpað gegnum ríkisútvarpið um leið og hún var flutt. Ræða Skards var sérlega snjöll, og kom hann víða við. Hann ræddi um, hver vandi væri búinn lýðræð- inu. Heimurinn væri i sárum og menn væru hræddir við atomorkuna, og sundrungarský grúfðu yl'ir. Það væri því ekki að undra, að margir væru ráðþrota. En sagan sýnir þó, að ofbeldið hrósar ekki varanlegum sigrum, og vér lifum ekki í tóradal vonleysisins. En hætturnar eru margvíslegar, sem ógna menningu vorri. Lýðræðisfyrirkomulagið leggur oss vanda á herðar. Lýðræðið er og meir i orði en á borði rneðal vor. Sveita- fólkið er lakar sett en borgarbúar. Víða til sveita er engu meir gert húsmóðurinni til hagræðis, og henni til léttis við störfin en tíðkast meðal svertingja í Am- eríku. Þjóðlcgri menningu vorri er áfátt.. Uppeldis- skilyrði æskulýðsins eru ekki sem skyldi. Ræðumaður taldi, að Norðmönnum hæri að tileinka sér það, sem gott væri bæði að austan og vestan, en vegur þeirra ætti að vera þeirra eigin lausn á vandamálunum. Annar aðalræðumaður mótsins var Inge Krokann, sem áður var minnzt á, kunnur nýnorskuhöfundur. Ilann flutti mjög athyglisverða ræðu. Hann er lami, og dróst áfram á tveim stöfum. 1 ræðustólnum leggur hann stafina frá sér, styðzt fram á stólbrúnina og hefur mál sitt. Og maður gleymir því samstundis, að ]>etta er farlama maður. Krokann sagðist ekki sjálfur vera fær um að taka þátt i hinni ytri uppbyggingu Iandsins, en hann henti á liina innri leið andlegrar viðreisnar. Hann var bjartsýnn á æskulýðinn, en benti á, að liann yrði að tileinka sér lífsskoðun lýðháskól- anna en hafna efnishyggju vélamenningarinnar. Það var eftirtektarvert, live fólkið hlustaði kyrrlátt og með eftirtekt á ])essa ræðumenn, ])ótt Iivor þeirra um sig talaði fast að klukkustund. Eftir að ræðunum lauk flutti ég stutt ávarp. Ung-

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.