Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1948, Side 23

Skinfaxi - 01.11.1948, Side 23
SKINFAXI 87 Þegar Örn Arnarson sendi Guttormi J. Guttorms- syni ljóðabréfið sumarið 1938, litur hann ekki hvað sízt á sig sem meðalgöngumann milli skáldsins og „liins þögula fjölda", sem lætur lítið yfir sér og hafði sízt möguleika til að heilsa skáldinu. Þar fann Örn hlutverk við sitt hæfi. Þegar liann hefur lýst því, að Við heilsum þér flestir í liljóði frá hreysum í sveit og horg, þá segir iiann á sinn ákveðna og örugga liátt: En nóg er samt sltjalað og skrafað af skrumandi, liáværri stétt, sem kveðst vilja leiðbeina lýðnum, svo lærist hvað satt er og rétt. Og til þess er lygin svo langorð og lastmælgin gjallandi liá og ósvifnin hrakyrt og liraðmælsk og hræsnin svo grátklökk að sjá. í svip þeirra, seintekna bóndans, hins sagnfáa verkamanns og sjómannsins svarakalda, býr saga og framtíð vors lands. Sá þöguli fjöldi er þjóðin, þungstreym og vatnsmegn á. Þótt hátt beri jakahrönglið, liún hryður því út á sjá. Og þegar hann kveður skáldið, segir hann ofur hlýtt og innilega eins og liann sé að tala um sín eigin börn: Þú skilur, live annríkt þeir eiga, til innsveita djúpmiðum frá, sem nytja vorn harðbýla liólma og liafdjúpin grimmlynd og flá. Þar líturðu landher og flota, þótt liti ei vopn þeirra hlóð. Sú hreiðfylking ein er til bjargar. Hún brauðfæðir íslenzka þjóð.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.