Skinfaxi - 01.11.1948, Page 33
SKINFAXI
97
Kronborg er ævaforn
kastali frá því Danir og
Svíar börðust við Eyr-
arsundið, eins og kunn-
ugt er. Þar eru nú
geymd mörg af dýr-
mætustu málverkum
Dana, eftir marga hol-
lenzka snillinga frá
miðöldum. Þar er
merkilegt sjóminja-
safn, kirkja og æva-
fornt fangelsi, þar sem
í er líkneski af Holgeiri
danska. Háir turnar
prýða þessa miklu
byggingu, og er útsýni
þaðan mjög fagurt.
3. Til Kaupmannahafnar var farið 17. júní, og var
það eftirminnilegasti og yndislegasti dagur mótsins,
þótt allir kæmu dauðþreyttir heim að kvöldi. Ferð-
ast var eftir fyrir fram gerðri áætlun, og timinn not-
aður til hins ýtrasta.
Minningalundurinn við Hellerup var fyrst skoðaður.
Þar eru grafir 150 Dana, sem létu lífið í viðureign-
inni við Þjóðvcrja, bæði í Danmörku og Þýzkalandi.
Danska ríkið og Frelsishreýfingin danska eru að gera
])arna mjög veglegan garð unýþverfis grafirnar. Þar
mun margur Daninn eiga hljóða stund á ókomnum
árUm og minnast þess, hvers virði frelsið er.
Jcns Marinus Jensen skýrði i stuttri en hugnæmri
ræðu, hvernig þessi garður væri til orðinn. Að þess-
ir ungu menn, sem hér hvíldu og flestir hefðu verið
stúdentar og aðrir námsmenn, hefðu átt eitt sjónar-
mið, að verja frelsi og heiður Danmerkur og lagt
])ar allt í sölurnar. Síðan var þeirra föllnu minnzt
7