Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1948, Side 37

Skinfaxi - 01.11.1948, Side 37
SKINFAXI 101 mand“s býli. Svara þau lil nýbýlanna hér. Ríkið kaupir landið og byggir, en selur svo undir koslnaðar- verði. Býlið hét Grönvang og átti 10 ha. land. Annar var Biviumgaard, eign og aðsetursstaður Knud Kristensen fyrv. 'forsætisráðherra. Liggur hann örskammt frá Krogerup. Búa þar nú tveir synir hans, Óli og Hans. Landstærð er 22 lia. Sá þriðji var einn af hinum stóru herragörðum, en þeim hefur fækkað mjög í Danmörku hin síðari ár. Yar eigandi lians konsúll og kaupmaður i Kaup- mannahöfn, Owesen að nafni. Þar bjó ráðsmaður og 6 verkamenn með fjölskyldur sinar, sem unnu á bú- garðinum. Hann liét Danstruplund og átti 137 ha. lands. Mjaltavélin var flutt á hjólasleða út í hagann, þar sem kýrnar voru dag og nótt, sextíu að tölu. Áður en lagt var i þessa 'ferð, var hið fróðlega er- indi um danskan landbúnað flutt. Hann berst nú við margvíslega örðugleika, og er framleiðslan á flestum búgörðum landsins langtum minni en fyrir stríð, og veldur livorttveggja, fólksekla í sveitunum og þröng- ur markaður erlendis. Skilnaðarstund. Laugardagskvöldið 19. júní var skilnaðarhóf að Krogerup. Söfnuðust allir saman i borðsal skólans og var selið lengi fram eftir i góðum fagnaði. Fulltrúar frá hinum ýmsu þjóðum fluttu kveðjuorð. Beindusl þakkirnar fyrst og fremst til Jens Marinus Jensen, og voru honum afhentar margar góðar gjafir. Við ís- lendingarnir gáfum honum íslenzkan borðfána og bókina fsland í myndum, áritaða af okkur, með sér- stöku þakklæti fyrir vinsemd lians í garð U. M. F. f. Allir voru sammála um, að möt þetta hefði tekizl með sérstökum ágætum og hefði orðið öllum þátttak- endunum til ógleymanlegrar ánægju og æskulýðs- starfi Norðurlandanna til eflingar, einkum ef sam-

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.