Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1948, Page 61

Skinfaxi - 01.11.1948, Page 61
SKINFAXI 125 rúm fyrir grip sitt um keflið og að áhættu hefur það i för með sér og hömlun á hraða, ef boðflytjandi verður að þrýsta kefli að iikama sinum, til þess að færa það til í liendi sér, svo að viðtakandi fái svigrúm fyrir grip sitt. Færsla keflisins úr hægri hendi i vinstri, þarf að fram- kvæmast með sem minnstri röskun á hlaupalagi og þvi er mælt með því að færslan fari frain á fyrsta hlaupskrefi eftir lioðskiptin, þvi að þá er álitið að hún valdi minnstri röskun. Séð eða óséð boðskipti: Aðferðir D og E við boðskipli, sem sýndar eru á 2. mynd, varða óséð boðskipti. Aðferðirnar A, B og C varða einkum liin séðu boðskipti . Á það var áður minnzt, að óséð boðskipti væru notuð, þegar boðflytjandi lilypi 300 m. boðsprett eða skemmri. Það skal þó tekið fram, að eigi viðtakandi að eiga boðskipti við boð- flytjanda, sem lilaupið hefur lengri hoðsprett, en 300 metra, jiá noti hann séð boðskipti. Hvaða boðskipti skal nota: Þegar velja þarf boðskipti, er rétt að liafa eftirfarandi í liuga: 1) Tegund boðhlaupsins (lengd boðspretta). 2) Hagkvæmni boðskipta. 3) Aðlögun keppendanna við breytt boðskipti. 4) Hve mikillar gætni varðandi öryggi hver aðferð krefst. 5) Ilve mikið af hlaupalengdinni seiling viðtakanda og boð- flytjanda við boðskiptin nemur. 0) Hver aðferðanna veitir viðtakanda og boðflytjanda boð- skipti á sem mesturn hraða. 7) Fjarlægð boðflytjanda frá viðbragðslínu viðtakanda, þeg- ar viðtakandi má spretta úr spori. Fjariægð þessi er 5% metri til 6Vi metri, en lagar sig eftir hlaupahæfni boðflytjanda. Ef boðflyíjandi cr sprettharður má fjarlægðin vera meiri. Atriði varðandi óséð boðskipti: Viðtakandi teygir aftur hægri arm, og þegar boðgflytjandi nær þeirri fjarlægð frá viðbragðslir.u, að viðtakanda er óhætt að bregða við til spretts, snýr hann höfði sinu fram og sprettir úr spori. Hægra armi er haldið í boðskiptistöðu frá viðbragðslínu og þar til boðskiptin hafa farið fram. Vegna þessa undirbúnings hægri handar til viðtöku keflis-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.