Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1948, Page 76

Skinfaxi - 01.11.1948, Page 76
140 SKINFAXI HÉRAÐSMÓT U.M.S. NORÐUR-ÞINGEYINGA var lialditi í Ásbyrgi 18. júlí og hófst kl. 13,30, að lokinni guðsþjónustu á sama stað. Sr. Páll Þorleifsson á Skinnastað prédikaði. Karlakór Akureyrar söng og Karl Kristjánsson oddviti, Húsavík, flutti ræðu. Auk þess voru flutt nokkur kvæði og stutt ávörp. Úrslit urðu: 100 m hlaup: Árni Sigurðsson (Umf. Núpsveitunga) 12,1 sek. Hann vann einnig: kúluvarpið (9,67 m), kringlukastið (27,26 m) og hástökkið (1,61 m). 800 m hlaup: Þorgeir Þórarinsson (Umf. Leifur heppni) 2,17,5 mín. Hann vann einnig 3000 m hlaup (9,48,3 min). Langstökk: Grímur B .Jónsson (Umf. Öxfirðinga) 5,89 m. Þrístökk: ÓIi Gunnarsson (Umf. Núpsveitunga) 12,27 m. Spjótkast: Guðmundur Jónsson (Umf. Öxfirðinga) 37,30 m. I handknattleik kvenna, sigraði Umf. Núpsveitunga, Umf. Leif lieppna i Kelduhverfi og Umf. Þistilfirðinga. Jafntefli var hjá þeim siðari. Umf. Núpsveitunga vann mótið með 21 stigi. Umf. Öxfirðinga hlaut 19 stig. Umf. Leifur heppni, Kelduhverfi hlaut 12 stig. Umf. Þistilfirðinga hlaut 2 stig. Flest stig einstaklinga hlaut Árni Sigurðsson (Umf. Núp- sveitunga) 12 stig. Mótið var fjölmennt, þrátt fyrir skúraveður. HÉRAÐSMÓT SKARPHÉÐINS var haldið að Þjórsártúni 4. júlí. Sigurður Greipsson, for- maður Skarphéðins, setti mótið með ræðu. Þá flutti sr. Sigur- björn Einarsson dósent ræðu og Lúðrasveitin Svanur lék. Úrslit urðu: 100 m hlaup: Simon Kristjánsson (Umf. Selfoss) 11,6 sek. 1500 m hlaup: Árni Sigurðsson (Umf. Selfoss) 5:10,3 min. 3000 m víðavangshlaup: Eiríkur Þorgeirsson (Umf. Hruna- manna) 11:28,0 mín. 80 m hlaup kvenna: Sigrún Stefánsdóttir (Umf. Hvöt) 11,3 sek. Spjótkast: Áki Granz (Umf. Selfoss) 45,09 m. Hástökk: Kolbeinn Kristinsson (Umf. Gelfoss), 175 m. Hann vann einnig stangarstökkið (3,50 m). Langstökk: Oddur Sveinbjörnsson (Umf. Hvöt) 6,65 m og þrístökkið (13,75 m). Kúluvarp: Sigfús Sigurðsson (Umf. Selfoss) 14,48 m. Hann vann einnig kringlukastið (37,69 m).

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.