Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1948, Side 83

Skinfaxi - 01.11.1948, Side 83
SKINFAXI 147 Frá sambandi sænsks sveitaæskulýðs (Jordbrukar- ungdomens Forbund). Erik Johnson flutti 16. júní 1948 erindi á æskulýösvikunni í Kroogerup um Jordbrukarungdomens Forbund. Nefndi han erindi sitt Framlag æskulýðsins til viðreisnar sveitanna. Fara hér á eftir nokkrir þættir úr ])ví. Erik Johnson er og for- maður Sambands norrænna ungmennafélaga i sveitum. Svíar eiga nú í miklum vanda hvað málcfni æskulýðsins sncrtir. Við verðum að leggja okkur fram til ])ess að leitast við að stöðva eða minnsta kosti að draga úr flótta fólksins úr sveitum til þéttbýlisins. Það verður að bæta lífsskilyrðin i sveitunum til þess að unga fólkið vilji vera þar og þær um- bætur verða að vera efnalegar, þjóðfélagslegar og menningar- legar. Samband sveita og bæja þarf að vera lifrænt og hvor aðilinn veitandi hinum. Iðnaður bæjanna hefur til dæmis þýðingu fyrir sveitirnar, en hann fer iirt vaxandi, en jafn- framt þarf liann að fá vinnukraft úr sveitunum. En því fer fjarri að jafnvægi sé milli sveita og bæja eins og nú standa sakir. Árin 1941—’45 fóru um 200.000 manna úr sveitum lil bæja. 1 sveitinni geta þrjár stúlkur valið milli fimm pilta, en i bæjunum eru fimm síúlkur um þrjá pilta. Þctta horfir alvar- lega, þegar gætt er fólksfjölgunar. Margur lijúskapur ferst fyrir og margt barnið sér ekki dagsins ljós, sein fæðzt hefði með jafnari skiptingii karla og kvcnna ,í sveitum og bæjum. l'nglingar, sem vinna heima, fá sjaldan nokkiir eiginleg laun. Þeir fá aðeins vasapeninga fyrir þvi, sem telja vcrður hið allra nauðsynlegasta. En þetta er mikil yfirsjón af for- eldrunum. Það hefur sín sálrænu áhrif að piltar og stúlkur fái laun fyrir vinnu sína, sem þau svo geta farið mcð eftir eigin geðþótta. Það hefur verið sagt og með allmiklum rétti, að vinna í sveitum sé erfiðari en í bæjum. En hér hafa orðið breytingar til batnaðar. Vélanotkun fer sífellt i vöxt í landbúnaðinum. Nú er varla sá bær með fleiri en 6 kúm, sem er án mjalta- vélar. Ungmennafélög sveitanna vinna á tvennum vettvangi, annars vegar er hið hagnýta og leiðbeinandi, liins vegar er hin menningarlega, uppeldislega starfsemi. Við höfum fasta leiðbeinendur og ráðunauta, sem ferðast um meðal félaganna, lialda erindi og fyrirlestra, stjórna mámshringjum og ýmis- konar annarri starfsemi. 10+

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.